Morgunblaðið - 28.09.2018, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 28.09.2018, Qupperneq 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2018 ✝ ÞórhildurSigurjónsdóttir fæddist í Reykjavík 30. maí 1955. Hún lést á Landspítal- anum við Hring- braut 14. septem- ber 2018. Faðir hennar var Sigurjón Marteinn Jónsson, f. á Litla- Sandi, Borg. 4.12. 1922, d. 18.11. 1956, móðir Kristín Björg Borg- þórsdóttir, f. í Hafnarfirði 18.9. 1926, d. 15.1. 1987. Fósturfaðir Guðmann Guðbrandsson, f. á Stokkseyri 17.5. 1926, d. 19.5. 1999. Systkini Þórhildar eru: Borgþór, f., 31.10. 1943, Birgir, f. 10.6. 1946, Herdís, f. 10.2. 1949, og hálfsystir sammæðra Bára, f. 23.4. 1964. Hinn 21. september 1974 gift- ist Þórhildur Jóni Ólafssyni meistara í veggfóðrun og dúk- lögn, f. í Reykjavík 27.2. 1954, sonur hjónanna Ólafs Þ. Jóns- sonar frá Hafnarfirði, f. 3.10. 1927, d. 14.3. 1992, og Sesselju fyrsta heimili á Hverfisgötu 50 og bjuggu þar árin 1973-1978 og Berglind Mjöll fæðist þar 1976. Þá fluttust þau í Háukinn 5 og bjuggu þar frá 1980-1985, þá fæddist Ólafur Már og þau fluttu á Smyrlahraun 14. Þaðan fluttu þau aftur í Háukinn 5 árið 1985 og hófu að byggja í Lyng- bergi 35 og hafa búið þar frá árinu 1991. Þórhildur var fyrst og fremst húsmóðir en vann þó við ýmis störf í gegnum árin, þar af verslunarstörf, í fiskvinnslu í Sjólastöðinni, sem leiðbeinandi á leikskólanum Kató, við skúr- ingar á Sýsluskrifstofum Hafnarfjarðar, sem leiðbeinandi á leikskólanum Hlíðarbergi og við lagerstörf í Pharmaco, síðar Vistor. Hin síðari ár vann hún við bókhald og dúklagningar hjá J. Ólafsson ehf. Þórhildur tók þátt í að stofna Samtök barna með sérþarfir. Hún hafði sérstakan áhuga á málefnum fatlaðra og baráttu þeirra. Þórhildur var einn af stofnendum Íþróttafélagsins Fjarðar í Hafnarfirði vorið 1992 og fékk hún gullmerki Fjarðar árið 2012 og ÍBH árið 2015 fyrir óeigingjörn störf. Útför hennar fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði í dag, 28. september 2018, klukkan 13. Zophoníasdóttur, f. á Merkisteini við Eyrarbakka 3.12. 1930, d. 31.5. 2007. Börn Þórhildar og Jóns eru: 1) Sigurjón Marteinn, f. í Hafnarfirði 26.8. 1970. 2) Berg- lind Mjöll, f. í Hafnarfirði 1.2. 1976, gift Óskari Sigurðssyni, f. 4.11. 1972, börn þeirra eru Eyþór Orri, f. 21.7. 1997, og Hjördís Anna, f. 14.12. 2003. 3) Ólafur Már, f. í Reykjavík 19.3. 1985, kvæntur Sólrúnu Hafþórs- dóttur, f. 26.6. 1985, börn þeirra eru Jón Þór, f. 18.5. 2008, Súsan Klara, f. 7.12. 2011, og Sonja Lillý, f. 14.6. 2013. Þórhildur, eða Dódó eins og hún var alltaf kölluð, fæddist í Reykjavík og bjó í Efstasundi 58. Hún flutti í Hafnarfjörð 1964 og bjó þá í Bröttukinn 8. Ung kynntist hún Jóni og eignaðist Sigurjón 1970. Eftir gagnfræða- skólapróf eignuðust þau sitt Elsku mamma mín svo ljúf og góð kvaddi okkur allt of ung. Ég átti margar góðar stundir með mömmu þar sem við vorum allt- af svo góðar vinkonur. Mamma var alltaf ung í anda og skildi svo vel börn og ungt fólk. Hún var einstök amma og sóttu barnabörnin hennar fimm öll í að umgangast hana og hún elsk- aði þau öll svo heitt og innilega. Við mamma vorum bundnar sterkum böndum og hafði hún alltaf trú á mér í öllu sem ég tók mér fyrir hendur. Hún lagði hart að mér að mennta mig og verða sjálfstæð og ábyrg. Ég á henni mömmu svo margt að þakka. Ég þakka henni þó mest fyrir samverustundirnar. Ég naut þess innilega þegar ég var fimm ára að labba í bakarí með henni og kaupa snúð og appels- ín, bara einn snúð og skipta á milli. Við áttum margar góðar stundir yfir saumavélinni þegar ég var unglingur og þolinmæðin sem hún hafði þegar efnisbútar og tvinni voru út um allt. Sam- verustundir í garðinum í Lyng- bergi að reyta arfa og tína rifs- ber. Spánarferðin okkar síðasta sumar toppar þó allar góðar stundir sem við höfum átt, við nutum þess að sóla okkur og ferðast. Ég á eftir að sakna þess að samverustundirnar urðu ekki fleiri en þakka fyrir allar sem við áttum. Takk, elsku mamma, ég er sú sem ég er í dag því ég átti svo góða mömmu. Góður guð geymi þig. Kveðja, Berglind Mjöll (Bella). Árið er 1970. Brekkugatan þar sem við bræður bjuggum er ómalbikuð og við yngstu bræð- urnir fimm og sex ára að leika okkur, væntanlega í drullupoll- um þegar við tökum eftir því að ung kona kemur gangandi með barnavagn í áttina að okkur. Þetta var Dódó en hún var kær- astan hans Nonna, næstelsta bróður okkar, sem var 16 ára. Í okkar augum var hún fullorðin kona. Hún átti barn, en í raun var hún bara 15 ára unglingur. Við spurðum hana „hvað á barn- ið að heita“ hún brosti blíðlega og sagði „það er leyndarmál“. Þetta er okkar fyrsta minning um Dódó. Fyrstu jólin á Brekkugötunni með okkur bræðrum reyndust Dódó erfið, við rifum upp pakkana í tempói sem hún hafði aldrei upplifað áð- ur og hátíðarstemningin líktist helst kappleik þar sem við bræð- ur héldum fullum dampi allt kvöldið. Dódó ákvað eftir þetta að þau myndu halda sín eigin jól. Nonni og Dódó fengu snemma það ábyrgðarmikla hlutverk að vera foreldrar drengs með downs-heilkenni, mikils gleði- gjafa og grallara sem okkur Brekkugötubræðrum þótti sér- staklega gaman að vera með, passa og kenna ýmis brögð og takta sem þóttu ekki alltaf við hæfi. Þó Dódó yrði snemma mamma þá spáðum við aldrei í hversu ung hún var og hversu mikla ábyrgð hún hafði. Hún var frábær manneskja, glæsileg, gáfuð og með fallega og blíða nærveru. Það var alltaf gott að koma til Dódó og við bræður vorum tíðir gestir á Hverfisgöt- unni, það var einfaldlega gott að að koma í litlu fallegu íbúðina til Dódó. Okkur fannst einhvern- veginn Jón og Dódó búa á Hverfisgötunni tíu ár en þau voru nú bara fjögur. Við eigum þér mikið að þakka, Dódó, því þú tókst þátt í uppeldi okkar það var ljúft að getað leitað til þín. Þú varst okk- ur stundum sem skilningsrík mamma á þeim árum sem við þurftum kannski mest á því að halda. Takk, Dódó, fyrir allar góðar stundirnar á Hverfisgöt- unni, Háukinn og Lyngbergi „þrír og fimm“. Það er ákaflega sárt að kveðja þig, kæra mágkona, við eigum eftir að sakna þín mikið en hug- ur okkar er hjá fjölskyldu þinni sem þú elskaðir og varst tilbúin að fórna öllu fyrir. Nonni, Siggi, Bella, Óli Már, Óskar, Sólrún og barnabörn, þið eigið okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Örn og Theodór. Við Þórhildur Sigurjónsdóttir urðum samferða í lífinu fyrir 10 árum, þegar við urðum „sam- ömmur“ þriggja barna. Í sjö ár bjuggum við innan göngufjarlægðar, smárölt með- fram læknum í Hafnarfirði, og fengum því að rifja upp móð- urgleði saman og friðsæld nýs lífs. Fögnuðum lífskrafti nýrrar kynslóðar, sem blómstraði eins og bláklukkur í nýju sumri. Iðin, lagin, hláturmild, gest- risin, hlý, og næm, Þórhildur axlaði ábyrgð ung, lærði fljótt dýpstu gildin, og lifði samkvæmt þeim. Hún bretti upp ermarnar, klæddi, mataði, þreif, bjó til, bjó að, lagaði, sinnti, kenndi, hugg- aði, hugsaði fyrir öllu. Hún klæddi sitt fólk snjallhönnuðum lopaflíkum. Hún ræktaði garð sinn og hlúði að fólki, lét allt og alla „blómgast sem grængresi“ (Jesaja 66). Jón, Siggi, Bella, Óskar, Ey- þór, Hjördís Anna, elsku Óli Már og Sóla, Jón Þór, Súsan Klara, og Sonja Lillý, við Hafþór sendum innilegustu samúðar- kveðjur að vestan. Sarah M. Brownsberger. Gulli og perlum að safna sér sumir endalaust reyna, vita ekki að vináttan er verðmætust eðalsteina. (Hjálmar Freysteinsson) Í dag kveðjum við kæra vin- konu, Þórhildi Sigurjónsdóttur, eða Dódó eins og hún var alltaf kölluð. Vinátta okkar varð til í Flensborg veturinn 1970. Á þessum langa tíma hefur margt verið brallað, ógleymanlegt var það þegar okkur datt í hug að fara í dansskóla og læra að tjútta, þar höldum við að Jón og Dódó hafi fundið taktinn sem entist þeim í gegnum lífið. Dódó varð fyrst okkar til að gera marga hluti, eignast barn, giftast og kaupa íbúð á Hverf- isgötunni. Verkefnið var stórt þegar hún unglingurinn eignað- ist hann Sigga, þá komu mann- kostir hennar vel í ljós því hún barðist alla tíð ötullega fyrir réttindum fatlaðra, á henni sannaðist máltækið margur er knár þó hann sé smár. Dódó var smávaxin og grönn, hún var meira að segja svo stelpuleg 21 árs tveggja barna móðirin að eitt sinn þegar hún var stödd í verslun með börnin bað afgreiðslumaðurinn hana að vera úti með krakkana því hann hélt að hún væri í vist að passa þau. Minningarnar eru margar og ljúfar. Saumaklúbburinn okkar fór margar ferðir innanlands og utan og við náðum að heimsækja allar eyjar landsins nema Flatey á Skjálfanda. Í öllum þessum ferðum komu skipulagshæfileik- ar Dódóar vel í ljós, hún sá um að allir fengju nóg að borða og hagsýn var hún með afbrigðum. Á góðri stund hló enginn eins og Dódó; tárin runnu niður eftir kinnunum á henni. Hún hafði einstaklega góða nærveru og var mikil handavinnukona. Það lék bókstaflega allt í höndunum á henni, hvort heldur það var í eldhúsinu eða í dúklagningu með Jóni. Hún hugsaði vel um fólkið sitt og naut þess að hafa barna- börnin hjá sér og gerði mikið af því. Dódó greindist með krabba- mein vorið 2016 og gekk í gegn- um erfiðar meðferðir, vissi að hverju stefndi og tók því með æðruleysi. Við vinkonurnar náð- um að eiga góða stund saman á spítalanum viku áður en hún lést. Dódó kvaddi hljóðlega eins og hún hafði lifað. Við þökkum yndislegri vin- konu samfylgdina og sendum fjölskyldunni innilegar samúðar- kveðjur. Oddný, Ragnheiður, Rósa og Sigríður (Sísí). Kveðja frá Fjallafreyjum Það er með sorg og söknuði í hjarta sem við kveðjum hana Þórhildi, eða Dódó sem hún var alltaf kölluð. Við eigum eingöngu góðar og fallegar minningar um hana. Létt og lipur á fæti, bros- mild, hjartahlý og hjálpsöm eru orðin sem okkur finnst lýsa henni best. Dódó var samferða þessum hópi okkar í nærri 30 ár, aðallega í leikfimi og jóga en einnig í nokkrum gönguferðum með Fjallafreyjunum. Hún var alltaf Fjallafreyja í hjarta sínu og fylgdist vel með þeim ferðum sem farnar voru þótt hún tæki ekki alltaf þátt í þeim. Þegar hún veiktist fyrir rúm- um tveimur árum grunaði okkur ekki að hún myndi lúta í lægra haldi fyrir þessum skæða sjúk- dómi sem krabbameinið er, allt virtist vera á uppleið, en það fór á annan veg. Dódó tók örlögum sínum af æðruleysi og við erum fullvissar um að nú líði henni vel í ljósinu eilífa á nýju tilverusviði. Við þökkum henni samfylgdina í gegnum árin. Fjölskyldu hennar sendum við okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Minningin um elsku Dódó lifir með okkur björt og falleg. F.h. Fjallafreyja, Sigríður Skúladóttir. Skilyrðislaus vinátta er dýr- mætust þeirra gjafa sem lífið færir okkur. Ég var svo lánsöm að kynnast Dódó þegar ég hóf störf á Blikaási, heimili Sigga okkar, fyrir 15 árum og með okkur þróaðist fljótt einstök og traust vinátta. Það var svo auðvelt að láta sér þykja svo undurvænt um hana Dódó, hún var með fallegt og hreint hjarta, hlýtt faðmlag og kærleiksríka nærveru og allt í kringum hana svo bjart og fagurt. Lyngbergið hefur alltaf verið fastur viðkomustaður og hafa ófáar dýrmætar samverustundir orðið til þar, Dódó passaði upp á að ekki liði of langt á milli heim- sókna og minnti mig á með fal- legum skilaboðum ef hana var farið að lengja eftir heimsókn- inni. Við áttum ekki erfitt með að gleyma okkur við eldhúsborð- ið tímunum saman og ræða hug- leikin málefni og deila gleði okk- ar og sorgum. Dódó hugsaði einstaklega vel um fólkið sitt, setti þarfir ann- arra ávallt ofar sínum og barna- börnin voru hennar dýrmætasti fjársjóður. Dódó tókst á við verkefni lífs- ins með jákvæðni og æðruleysi og sýndi óþrjótandi styrk í erf- iðum veikindum. Hún kenndi mér svo ótal margt sem ég mun alltaf búa að, fyrst og fremst kenndi hún mér að læra að meta lífið betur og njóta hvers nýs dags. Ég kveð ástkæra vinkonu með hjartað yfirfullt af þakklæti fyrir allt, megi hún hvíla í Guðs friði. Ég þakka allt frá okkar fyrstu kynnum, það yrði margt, ef telja skyldi það. Í lífsins bók það lifir samt í minnum er letrað skýrt á eitthvert hennar blað. Ég fann í þínu heita stóra hjarta þá helstu tryggð og vináttunnar ljós. Er gerir jafnvel dimma vetur bjarta, úr dufti lætur spretta lífsins rós. (Margrét Jónsdóttir) Heiða Björk Ingvarsdóttir. Þórhildur Sigurjónsdóttir Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, SIGURÐUR H. JÓHANNSSON, Ljósvallagötu 28, Reykjavík, lést á Vífilsstaðaspítala laugardaginn 15. september. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 5. október klukkan 15. Margrét Þ. Sigurðardóttir Jónas Eydal Ármannsson Jóhann Haukur Sigurðsson Guðrún Leósdóttir barnabörn og aðrir afkomendur Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og bróðir, BERGVIN ODDSSON útgerðarmaður frá Vestmannaeyjum, lést á Landspítalanum laugardaginn 22. september. Útförin fer fram í Landakirkju laugardaginn 6. október klukkan 14. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeir sem vilja minnast hans er bent á Slysavarnarfélagið Eykyndil. María Friðriksdóttir Lúðvík Bergvinsson Þóra Gunnarsdóttir Magnea Bergvinsdóttir Þorvaður Ægir Hjálmarsson Haraldur Bergvinsson Sólveig Birna Magnúsdóttir barnabörn og systkini hins látna Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, JÓHANNES GUÐMANNSSON, Berjarima 1, Grafarvogi, lést í faðmi fjölskyldunnar á líknardeild LSH í Kópavogi sunnudaginn 23. september. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju mánudaginn 1. október klukkan 13. María Jakobsdóttir Laufey M. Jóhannesdóttir Guðmann S. Jóhannesson Rósa F. Friðriksdóttir Birgir S. Jóhannesson Anna M. Bragadóttir Rósa Jóhannesdóttir Hulda B. Jóhannesdóttir barnabörn og langafabörn Elskulegur sonur minn, KENNETH PÁLL PRICE, andaðist þriðjudaginn 11. september. Jarðarför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Arnheiður Þórhallsdóttir Systir mín, BETTY A. LILLIE, lést á Englandi 27. september. Fyrir hönd aðstandenda, Sigríður Kristín Lister

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.