Morgunblaðið - 28.09.2018, Side 27

Morgunblaðið - 28.09.2018, Side 27
MINNINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2018 ykkar allar helgar sem við vildum. Þið áttuð virkilega fallegt heimili og verðlaunagarð, þar sem ævintýrin gerðust og ekki var leiðinlegt að fá að fara inn í gróðurhús til ömmu og fá að þefa af rósunum hennar. Þegar ég flutti í nýja húsið mitt með Snæfellsjökul í stofu- glugganum sagðir þú að það væri fátt fallegra en þegar sólin sest á bak við jökulinn, síðan þá hef ég verið dugleg að mynda þessa feg- urð og mun halda því áfram. Þú hafðir unun af að skoða þessar ljósmyndir hjá mér og gerðir það alveg þar til þinn síðasta dag. Ég á svo margar fallegar minningar um þig og þakklæti er efst í huga. Ég er svo þakklát að þið tókuð pabba að ykkur með opnum örmum og hlýju í hjarta. Þakklát að eiga þig sem afa, skólastjóra, kennara og frábæra fyrirmynd. Þakklát að þið lögðuð á ykkur ferðalag til að heimsækja okkur þegar við bjuggum í Lúxemborg. Og svo mætti lengi telja. Elsku afi minn, þín er sárt saknað og mun minning þín lifa í hjörtum okkar að eilífu. Þín Herdís Rós. Á mínum skólaferli við Barna- og gagnfræðaskólann í Stykkis- hólmi var Lúðvíg lengstum skóla- stjóri, virtur af nemendum og samstarfsfólki. Hann tók við stjórn skólans árið 1965 á um- brota- og uppreisnartímum sem náðu jafnvel til efstu bekkja grunnskóla. Íslensk ungmenni ögruðu með síðri hártísku, frjáls- legum klæðnaði og nánari sam- skiptum kynjanna á skólaböllum. Lúðvíg reyndist réttur maður á réttum tíma. Hann hélt í góðar reglur og gildi skólastarfsins en var líka opinn fyrir hugmyndum og frumkvæði unglinganna í sam- ræmi við nýja strauma. Hólmar- ar hafa í gengum árin verið heppnir með skólastjórnendur og Lúðvíg sat þeirra allra lengst, kennari og skólastjóri í Stykkis- hólmi í 40 ár. Nemendur hans spönnuðu þrjár til fjórar kyn- slóðir. Lúðvíg var ekki síður góður og skemmtilegur kennari. Meðfram skólastjórastarfinu kenndi hann ensku og fleiri námsgreinar á unglingastigi. Mér eru minnis- stæðastar kennslustundir í átt- hagafræði. Engar kennslubækur en þeim mun áhugaverðari tímar. Lúðvíg var hafsjór af fróðleik og víðlesinn í virtum erlendum tíma- ritum. Með leiftrandi og lifandi hætti fræddi hann okkur krakk- ana um nýjustu geimvísindi og fyrstu gerð tölva, stuttu fyrir tíma sjónvarpsins, viðfangsefni sem heimurinn batt miklar vænt- ingar við í nánustu framtíð. Í Stykkishólmi var löng hefð fyrir stuðningi skólans við upp- byggilegt félagsstarf barnanna. Öflugt starf Barnastúkunnar Bjarkar var ekki síst að þakka þessu góða samstarfi. Allir krakkar í Hólminum gengu í stúku og sóttu fundi eins og ekk- ert væri sjálfsagðara. Það virtist sem vinirnir Árni Helgason, faðir minn, og Lúðvíg skólastjóri hefðu svarist í fóstbræðralag um vel- ferð stúkunnar og þeirrar skemmtunar og tilbreytingar sem starfið reyndist börnunum. Lúðvíg taldi sér sjálfsagt og skylt að mæta á alla fundi stúkunnar og sá til þess að kennarar skólans æfðu skemmtiatriði með nem- endum til flutnings á stúku- fundum. Við systkinin, og ábyggilega flestir Hólmarar, verðum Lúðvíg ævinlega þakklát fyrir þennan stuðning, sem var langt frá því að vera sjálfgefinn. Enda þótt liðin sé nær hálf öld frá því að Lúðvíg útskrifaði mig með landspróf lifir minningin um góðan skólastjóra allt til þessa dags. Að ég skyldi síðar velja mér sama starfsvettvang og Lúðvíg var ekki síst vegna þeirrar fyrir- myndar sem Lúðvíg var mér. Alltaf þegar fundum okkar bar saman af tilviljun eða af góðu til- efni þá mætti mér einlægt bros og þétt handtak vináttu og vænt- umþykju. Einlæg hvatning, hrós og góðar óskir fylgdu mér ávallt í starfi frá þessum heiðursmanni. Lúðvíg Halldórsson var skóla- stjórinn minn og sannur vinur fjölskyldu minnar. Hann bar ald- urinn einstaklega vel fram á efri ár og virtist við góða heilsu. Þótt hann væri fluttur suður og ætti rætur í Skagafirði átti Hólmur- inn alltaf stað í hjarta hans. Ég sendi fjölskyldu Lúðvígs mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Minningin um mætan mann lifir. Helgi Árnason. Haustið 1951 komu saman að Laugarvatni 25 ungmenni víðs vegar að af landinu til að hefja nám í menntaskóla sem þá var verið að koma á legg þar. Í þess- um hópi var Lúðvíg Alfreð Hall- dórsson og kom frá Sauðárkróki. Þessi hópur varð fljótlega mjög samstilltur og námfús, enda höfðu skólastjórinn og kennar- arnir lag á að vekja með okkur metnað um að standa okkur, svo að sú hugsjón mætti rætast að menntaskóli í sveit ætti rétt á sér. Okkur Lúðvíg varð fljótlega sér- lega vel til vina, enda létt að kynnast honum svo opinskár, glaðvær og skemmtilegur sem hann var. Við áttum einnig ýmisleg sam- eiginleg áhugamál, svo sem útilíf og íþróttir. Varð iðkun körfubolta fljótt eitt helsta áhugamál okkar á því sviði, en á þeim tíma voru skólarnir að Laugarvatni vagga þeirrar íþróttar á Íslandi. Vorum við Lúðvíg að sjálfsögðu í bekkj- arliðinu okkar, sem alltaf var það besta á staðnum! Einnig fórum við saman í gönguferðir og vorum á skautum á Laugarvatni, sem í minningunni er oftast ísi lagt. Eftir Laugarvatnsárin skildu leiðir, ég var næstu sjö árin að- allega í Þýskalandi en Lúðvíg hóf strax um haustið kennslu við grunnskólann í Stykkishólmi og kenndi þar stærð-, eðlis- og efna- fræði. Við þann skóla starfaði hann æ síðan sem kennari og lengst af sem skólastjóri, að frá- töldum þeim tíma sem hann nam í Kennaraskóla Íslands og dvaldi í Bandaríkjunum eftir að hafa hlotið Fulbright-styrk. Lúðvíg var einstaklega farsæll í starfi og virtur jafnt af samstarfsmönnum sem nemendum. Í Stykkishólmi kynntist Lúð- víg Guðrúnu Rögnu Kristjáns- dóttur, sem varð eiginkona hans, og um svipað leyti hafði ég kynnst í Berlín Kristínu konu minni. Síðar eftir að ég sneri al- kominn heim að námi loknu tók- um við Lúðvíg aftur upp þráðinn en nú með eiginkonum. Eftir að ég tók að vinna að skipulags- og byggingarmálum fyrir Stykkis- hólmsbæ fjölgaði mjög ferðum mínum í Hólminn og stundum var Kristín þá með mér í för. Nutum við þá jafnan frábærrar gestrisni Lúðvígs og Guðrúnar og gistum oft á heimili þeirra. Eitt af byggingarverkefnum mín- um í Stykkishólmi var hönnun grunnskólahúss og varð Lúðvíg ráðgjafi minn við ýmsa þætti í fyrirkomulagi hússins og kom með margar góðar ábendingar. Lúðvíg var mjög fær og ná- kvæmur í því sem hann tók sér fyrir hendur, hann var t.d. góður kylfingur og snjall stangveiði- maður. Því síðarnefnda kynntist ég vel þegar hann bauð mér eitt sinn í veiði í Selvallavatni. Þar dáðist ég að því hvernig hann sveiflaði fim- lega stönginni með línuna á lofti og öngullinn lenti svo nákvæm- lega þar sem hann átti að lenda. Í einni heimsókn okkar Kristínar til Stykkishólms bauð Lúðvíg okkur Kristínu eitt kvöldið í veiðiferð í trillu rétt út fyrir höfn- ina. Þessi ferð er okkur eftirminni- leg fyrir einstaka fegurð við sólarlag á spegilsléttum sjónum – og Kristín var veiðikóngur með vænan þyrskling sem hún dró. Með Lúðvíg er fallinn frá góð- ur og gegn maður sem þeir sakna mest er þekktu hann best. Fjöl- skyldu hans og vinum vottum við Kristín okkar dýpstu samúð. Ormar Þór Guðmundsson. Við Lúðvíg Halldórsson, fyrr- verandi skólastjóri, áttum gott og náið samstarf í Stykkishólmi um langt árabil. Með þessum línum vil ég minnst þessa mæta mans sem var áhrifavaldur í samfélag- inu og metnaðarfullur sem Hólm- ari, en um leið sannur Skagfirð- ingur, sem lagði áherslu á uppruna sinn. Þegar ég fluttist með fjölskyldu minni til Stykk- ishólms og tók við starfi bæjar- stjóra kynntist ég Lúðvíg þegar hann bauð mig velkominn í Rotaryklúbb Stykkishólms og vegna samskipta okkar við rekst- ur skólans og ekki síður sem faðir barna sem settust á skólabekk hjá honum. Lúðvíg starfaði í tíu ár sem kennari í Stykkishólmi og síðan í heil tuttugu og níu ár sem skóla- stjóri við Grunnskóla Stykkis- hólms. Áhrif hans á samfélagið voru mikil. Grunnskóli staðarins er stærsta og fjölmennasta stofn- un hvers sveitarfélags og því fer ekki á milli mála að samstarf skólastjóra og bæjarstjóra er mikið. Í okkar tilviki var sam- starfið náið og á það féll aldrei skuggi. Mér er minnisstætt þegar bæjarstjórn og stjórnendur skól- ans þurftu árið 1975 að endur- meta áætlun um byggingu nýs skólahúss. Skólabyggingu sem hafði verið undirbúin var frestað en þess í stað ákveðið að ljúka við að byggja Félagsheimilið og Hót- el Stykkishólm. Sú framkvæmd var satt að segja meira en nægj- anlegt verkefni fyrir fjárhags- lega getu bæjarins á þeim tíma. Auðvitað var þetta erfið ákvörð- un að fresta framkvæmdum. Eft- ir að Lúðvíg hafði kynnt sér alla málavexti og áform bæjaryfir- valda gekk hann til liðs með stjórnendum bæjarins. Hann lagðist á árar við að kynna verk- efnið sem best fyrir þeim sem höfðu haft miklar væntingar til þess að fá nýtt skólahús í stað gamla skólans sem gat ekki leng- ur hýst þann fjölda nemenda sem skólann sátu. Húsnæðismál skól- ans voru leyst til bráðabirgða með því að nýta hluta hótelsins fyrir kennslustofur. En skólahús- ið reis og var tekið í notkun tíu árum síðar og það var stoltur skólastjóri sem setti Grunnskóla Stykkishólms í nýju glæsilegu húsi árið 1985. Lúðvíg var metn- aðarfullur skólamaður og lagði áherslu á fjölbreytni í skólastarf- inu og góða menntun kennar- anna. Hann stóð með iðnaðar- mönnum staðarins við starfrækslu Iðnskólans í Stykk- ishólmi um árabil. Þá vann hann hörðum höndum með bæjar- stjórn við að koma á framhalds- deild við grunnskólann í Stykkis- hólmi sem var útibú frá Fjölbrautaskóla Vesturlands og forveri Fjölbrautaskóla Snæfell- inga. Sá skóli hefur gjörbreytt menntun ungmenna á svæðinu og styrkt byggðina á Snæfellsnesi eftir að ungmennin gátu stundað sitt framhaldsnám í heimabyggð. Lúðvíg var mikill gæfu maður að eignast sína góðu konu Guðrúnu Rögnu Kristjánsdóttur sem er fædd í Stykkishólmi og ólst þar upp í skjóli samhentrar fjöl- skyldu. Fjölskylda Lúðvígs og Guðrúnar Rögnu hefur haldið tryggð við bæinn eftir að þau fluttu til höfuðborgarinnar við starfslok Lúðvígs sem skóla- stjóra og hér býr sonurinn Hall- dór. Nú þegar Lúðvíg er kvaddur hinstu kveðju viljum við Hall- gerður kona mín votta fjölskyld- unni samúð og óskum þeim alls hins besta. Sturla Böðvarsson. ✝ Laufey Dís Ein-arsdóttir fædd- ist í Reykjavík 26. apríl 1958. Hún lést á heimili sínu í Vogagerði 1 í Vog- um á Vatnsleysu- strönd 17. septem- ber 2018. Faðir hennar var Einar Leó Guð- mundsson skó- smiður, f. 4.12. 1928, d. 26.1. 1989, og móðir hennar er Margrét Erla Ein- arsdóttir, f. 11.5. 1931. Systkini hennar eru Ragnheiður Aldís, f. 17.12. 1950, d. 7.8. 2013, Sólveig, f. 14.5. 1952, d. 17.4. 2001, Einar Marel, f. 14.5.1952, Arnbjörg, f. 18.10. 1953, og Erla Björk, f. 4.7. 1963. Maki hennar er Þorsteinn Frímann Sigurgeirsson flug- maður. Fyrirverandi eiginmenn og maki eru 1) Magnús Þór Ein- arsson, f. 9.4. 1942, þau gengu í hjónaband 1979 en skildu 1987. Börn þeirra eru a) Ríkharður Leó, f. 8.8. 1979. Unnusta hans er Ingibjörg Árnadóttir, f. 10.11. 1982. Þau eiga synina Einarssyni, bílstjóra og fram- reiðslumanni, og eignaðist son sinn, Ríkharð Leó, árið 1979. Bjuggu þau á Eggjavegi 3 í Smálöndunum. 1982 eignaðist hún dóttur sína, Telmu Dögg. Þau fluttu í Hraunbæ en keyptu sér hús á Álftanesi. Skildu þau 1987. Tók hún saman við Gísla Guðnason og flutti í Breiðholt 1988. Fluttu þau í Neskaupstað 1989. Eignaðist hún svo dóttur 1990, Margréti Erlu. Sleit hún sambúð við Gísla 1992 og fluttist til Reykjavíkur. Hún kynntist Hafþóri Hafsteinssyni sjómanni og eignaðist Elísu Hafdísi 1993 og flutti í Stykkishólm og Flatey á Breiðafirði 1994. Þau giftust 1994 en skildu 1998. Laufey bjó í Reykjavík í nokkur ár en 2004 flutti hún ásamt dætrum sínum, Margréti og Elísu, á Blönduós. Laufey kynnist Þorsteini Frí- manni Sigurgeirssyni og bjuggu þau saman hennar síðustu ár. Laufey og Þorsteinn bjuggu í Hveragerði í nokkur ár. Þau fluttu svo í Voga á Vatnsleysu- strönd 2016. Laufey samdi mörg falleg ljóð, skrautskrifaði og teiknaði mikið. Eftir hana liggja mörg ljóð og var eitt þeirra birt í Morgunblaðinu og sum voru les- in upp í útvarpi. Laufey verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju í dag, 28. september 2018, klukkan 13. Ríkharð Leonard, f. 6.7. 2011, og Ragn- ar Tý, f. 11.1. 2014. b) Telma Dögg, f. 12.5. 1982. Maki hennar er Óli Sig- dór Konráðsson, f. 1.6. 1988. Sonur Telmu er Mikael Leó, f. 22.5. 2002. 2) Gísli Guðnason, f. 8.6. 1943. Þau bjuggu saman frá 1988 en slitu sambúð 1992. Dótt- ir þeirra er Margrét Erla, f. 10.5. 1990. Maki hennar er Sig- urði Lúther Lúthersson, f. 6.2. 1989. 3) Hafþór Hafsteinsson, f. 13.4. 1959. Þau giftust 1994 en skildu 1998. Dóttir þeirra er El- ísa Hafdís, f. 2.5. 1993. Maki hennar er Þráinn Júlíusson, f. 25.5. 1993. Laufey ólst upp í Reykjavík. Hún gekk í skóla þar en var einn vetur á Hólmavík hjá Fjólu föðursystur sinni. Hún fór í sveit á Súluvelli á Vatnsnesi í Vestur- Húnavatnssýslu hjá Jóni og Guðmundu og var í skóla einn vetur fyrir norðan. Hún giftist Magnúsi Þór Nú hefur þú kvatt þennan heim, elsku mamma mín. Ég kveð þig með sorg í hjarta og miklum söknuði. Sé ég eftir að hafa ekki eytt meiri tíma með þér en minnist góðu tímanna sem við áttum saman. Alltaf stóðstu með mér og varst stolt af mér. Ég er þakklátur því hvað þú kenndir mér og fann ég alltaf hlýju frá þér. Lífsins grýttan veg fórstu áður en þú kvaddir okkur í flýti. Ég gleymi ekki blíðu röddinni þinni og hlátrinum þínum. Mér er minnisstætt þegar þú bjóst fyrir norðan, á Blönduósi, og hvað það var gaman að gera sér ferð til þín. Man ég eftir skemmtilegum jólum þegar við mættum með önd sem ég hafði veitt og þegar við gerðum einnig góða veislu á Þorláksmessu með skötu, hákarli og öllu tilheyrandi. Vorum við þá öll saman yfir há- tíðirnar. Þú varst alltaf svo ljóð- ræn og samdir mörg ljóð. Barna- bókina sem þú skrifaðir mun ég lesa fyrir syni mína, „leiðina inn í Grimmadal“. Ég man alltaf eftir því hvernig þú tókst unnustu minni, henni Ingu, vel og hvernig þið náðuð alltaf vel saman og þú leist á hana sem þína eigin. Alltaf eldaðirðu góðan mat og bakaðir góðar kök- ur. Þú varst mér afar kær og líð- ur mér eins og partur af mér hafi farið. Ég vildi óska þess að lífið hefði farið á annan veg en verð að sætta mig við farinn veg. Ég mun aldrei gleyma þér og mun ávallt minnast þín. Ég læt þetta nægja í bili og kveð þig, elsku mamma mín. Þinn sonur, Ríkharður Leó Magnússon. Vatnið holar sterkan stein þó standi hann sterkur. Strembin leiðin, sjaldan bein stingur höfuðverkur. Ég minnist þess með sorg í hjarta að finna móðurylinn. Móðir mín með ást svo bjarta nú horfin er í bylinn. Mamma ég þín sárt svo sakna þín minning er mér kraftur úr löngum svefni mínum vakna er loks hitti ég þig aftur. Ég elska þig. Þín Elísa Hafdís Hafþórsdóttir. Elsku hjartans mamma mín, það tekur mig svo sárt að missa þig, hvað þá svona fljótt. Mér finnst rétt eins og hjarta mitt skorti part af sér, að holrými hafi myndast þegar þú kvaddir. Þú varst einstök kona með sýn á lífið sem fæstir hafa og visku sem enginn annar. Ávallt þú málaðir gráan heim- inn öllum heimsins litskrúðug- ustu litum með þínu orðavali, þín- um persónuleika og þessu stóra hjarta sem kenndi til fyrir öllu og öllum nærri sem fjarri. Mamma, þú kenndir mér svo ótal margt, sem fáir hefðu getað kennt og gefið af sér. – Virðingu fyrir náttúrunni, öllum lifandi verum, þú kenndir mér að horfa á heiminn lengra en augað sér, ut- an rörsins og utan kassans. Þannig sá ég hvað heimurinn væri svo miklu meiri og stærri, að hann hefði svo miklu meira að bjóða en maðurinn telur. Laufblað var og er ekki bara laufblað, rigningin var og er ekki bara rigning, steinarnir voru og eru ekki bara grjót. Fyrir þetta ég dái þig ætíð. Þú varst svo uppátækjasöm, mikið þykir mér vænt um öll uppátæki þín, öll svo öðruvísi, öðruvísi en þekkist til hjá flestum öðrum börnum. Öllum þeim „óvenjulegu“ uppátækjum sem prýddu barnæsku mína mun ég aldrei gleyma. Það er svo sárt að hugsa til þess að ganga áfram veginn, með söknuð í hjarta og án ferðafélaga míns, að aldrei aftur fái ég að njóta návistar þinnar og þess sem að þú hafðir að gefa með því að vera til – því sem ég kem ekki í orð, en verð að varðveita í hug- anum. Aldrei nokkurn tímann hefur nokkuð verið jafn hrikalega vont og að missa þig, mamma, Sársaukinn er svo mikill, skarðið er svo djúpt, mikið sem það ristir að skilja. Minningu þína ég geymi við hjartað, geymi þar til ég sé þig á ný og minn tími kemur að fara. Á meðan enn geng ég lífið, þú von- andi mín gætir. Gætir og vísar mér réttu sporin. Vísar mér rétt, frá röngu. Í síðasta skipti ég í hönd þína held, held til að kveðja. Góða ferð, góða nótt, gakktu inn í ljósið. Mikið ég mun sakna þín, alla daga, alla tíð. Heyrirðu ei, þig hjartað kallar á? Heyrirðu ei storm er kveðju mína ber? Þú fagra minning eftir skildir eina, sem aldrei gleymist meðan lífs ég er. (Valdimar Hólm Hallstað) Takk fyrir allt, elsku besta mamma mín. Ég elska þig að eilífu, hvíldu í friði og megi englar guðs vísa þér réttan veg. Þín dóttir, Margrét Erla. Fyrir tíu árum í húsi á Blöndu- ósi hitti ég þig fyrst. Ég og Rík- harður sonur þinn komum í heim- sókn. Þú tókst á móti mér með opnum örmum og þínu fallega brosi og fannst mér ég alltaf hafa þekkt þig og það sama fannst þér. Þú bauðst mér upp á „spakk og hakketí“, hlógum við mikið að því af því þú ætlaðir að segja hakk og spagettí. Þú varst nú alveg viss um að sonur þinn hefði sko valið mig, sagðirðu hnyttin á svip, af því að ég væri svo lík þér. Það fannst mér fyndið og þér líka. Við skildum hvor aðra og það þótti mér vænt um. Þú sparaðir ekki fallegu orðin þín til mín. Ég er svo þakklát fyrir að hafa átt þig sem tengdamóður. Þú varst mjög skemmtileg með þinn smitandi hlátur, hjartahlý og ekki má gleyma listræn. Þú samdir mikið af flottum ljóðum og elskaðir tón- list og að syngja. Það var gaman að koma í heimsókn í sveitina og gistum við oft hjá þér. Þær minn- ingar eru mér ómetanlegar. Nú sit ég hér með hjartað fullt af sorg yfir því að þú sért farin ein- ungis sextug að aldri. Góða ferð, Laufey mín. Kveðja, Ingibjörg Árnadóttir. Laufey Dís Einarsdóttir Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.