Morgunblaðið - 28.09.2018, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2018
TANGARHÖFÐA 13
VÉLAVERKSTÆÐIÐ
kistufell.com
Það er um 80% ódýrara að
skipta um tímareim miðað við
þann kostnað og óþægindi
sem verða ef hún slitnar
Hver er staðan á tíma-
reiminni í bílnum þínum?
Hringdu og pantaðu
tíma í síma
577 1313
– fyrir dýrin þín
Ást og umhyggja fyrir dýrin þín
Veldu bosch hundafóður fyrir hundinn þinn
Þýskt hágæða fóður – fersk innihaldsefni án aukaefna.
Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | Akranes | Sími 511-2022 | www.dyrabaer.is
15 kg
8.990 kr.
„Það hafa stór orð verið látin falla í
þessu máli og mér finnst alveg tilefni
til þess að þeir sem hafa gert það
sýni úr hverju
þeir eru gerðir og
biðjist afsökunar
á þeim,“ sagði
Bragi Guð-
brandsson, fyrr-
verandi forstjóri
Barnaverndar-
stofu, í samtali við
mbl.is í gær í kjöl-
far þeirrar niður-
stöðu úttektar
velferðarráðuneytisins að hann hafi
ekki farið út fyrir verksvið sitt í að-
komu sinni að barnaverndarmáli í
Hafnarfirði þar sem Bragi átti í sam-
skiptum við föðurafa barns sem
grunur var um að hefði verið beitt
kynferðisofbeldi.
Velferðarráðuneytið komst upp-
haflega að þeirri niðurstöðu í febrúar
síðastliðnum að Bragi hefði ekki
gerst brotlegur í starfi en hefði farið
út fyrir verksvið sitt í málinu. Í maí
var síðan ákveðið að framkvæma áð-
urnefnda úttekt sem framkvæmd
var af Kjartani Björgvini Bjarnasyni
dómara og Kristínu Benediktsdóttur
dósent leiddi í ljós að ráðuneytið
hefði ekki verið í aðstöðu til þess að
fullyrða að Bragi hefði farið út fyrir
verksvið sitt í málinu. Þá hefði verið
brotið bæði gegn rannsóknarreglu
stjórnsýsluréttar og andmælarétti
hans.
Fram kemur í niðurstöðu velferð-
arráðuneytisins að misbrestur hafi
orðið á málsmeðferð ráðuneytisins
sem leitt hafi til fyrri niðurstöðu þess
í febrúar þar sem ekki hafi verið far-
ið að grundvallarreglum stjórnsýslu-
réttarins og var sú niðurstaða felld
úr gildi. Þá verði, eftir athugun á
gögnum málsins og framgöngu
Braga, ekki séð að hann hafi sem for-
stjóri Barnaverndarstofu farið út
fyrir verksvið sitt.
„Þessar ávirðingar hafa núna hvílt
á mér í tíu mánuði og ég hef tekið
þær nærri mér þar sem ég hef helg-
að líf mitt baráttunni fyrir bættum
rétti barna og vernd þeirra,“ sagði
Bragi og bætti við að hann teldi nið-
urstöðuna hafna yfir allan vafa.
„Sýni úr hverju þeir eru
gerðir og biðjist afsökunar“
Bragi
Guðbrandsson
Bragi segir niðurstöðu úttektarinnar hafna yfir allan vafa
BAKSVIÐ
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Að undanförnu mun hafa verið grunnt á því
góða á milli þingmanna Pírata og ýmissa ann-
arra þingmanna á Alþingi. Þetta hefur Morg-
unblaðið eftir nokkrum þingmönnum, bæði
stjórnarliðum og stjórnarandstæðingum, sem
hafa fullyrt í eyru blaðamanns að Píratar væru
afskaplega erfiðir í samstarfi. Píratar sem
Morgunblaðið hefur rætt við vísa því á bug, að
þeir séu erfiðir í samstarfi.
Einn þingflokksformaður sem rætt var við
orðaði þetta svo: „Píratar eru mjög flóknir í
samskiptum. Varðandi gang mála hér á þinginu
þurfa menn að eiga alls konar samstarf og sam-
ráð, bæði formlegt og óformlegt. Í haust hafa
Píratar verið alveg sérstaklega erfiðir í sam-
skiptum og viljað hafa allt í mjög föstu formi,
sem getur virkilega þvælt ákvarðanatöku og af-
greiðslu mála.“
Stopul mæting
Meðal þess sem þingmenn hafa gagnrýnt í
fari Pírata er hversu mæting þeirra Þórhildar
Sunnu Ævarsdóttur, þingflokksformanns Pír-
ata og Halldóru Mogensen, varaformanns þing-
flokksins, hafi verið stopul á fundi formanna
þingflokka með forseta Alþingis nú í haust og
einhver annar þingmaður Pírata hafi mætt í
þeirra stað. Þetta hafi orðið til þess að þingmenn
Pírata hafi á stundum ekki verið með á nótunum
hvað varðar dagskrá þingsins og hleypt vissum
óróa í þingsal af þeim sökum. Auk þess er það
gagnrýnt hversu umboðslausir þeir Píratar eru,
sem mæta á fundina, því þeir verði að geta borið
allt skriflega undir þingflokk sinn áður en til
samþykkis komi. Þetta flæki mál á stundum
verulega.
Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata,
flutti ræðu á Alþingi sl. þriðjudag, undir liðnum
Störf þingsins. Þar sagði Helgi Hrafn m.a.: „Í
umræðum á fundum forsætisnefndar og fund-
um þingflokksformanna með forseta hefur í fjöl-
mörg skipti verið gengið að samþykki þing-
flokksformanna eða þingflokka vísu með tilvísan
í hefðir þar um. Nýlegt dæmi er ætlað samþykki
varðandi skertan umræðutíma um skýrslur ráð-
herra.
Þingflokkur Pírata samþykkti eftirfarandi
ályktun á þingflokksfundi mánudaginn 24. sept-
ember 2019: „Samþykki þingflokks og þing-
flokksformanns Pírata við tillögu forseta Al-
þingis eru veitt skriflega en liggja að öðrum
kosti ekki fyrir.“...
Svo það sé alveg skýrt er þetta ekki tillaga til
umræðu heldur ákvörðun sem þingflokkur Pí-
rata hefur tekið. Við ráðum því ekki hvernig
hlutir fara fram hér en við ráðum því hins vegar
sjálf hvað við samþykkjum....“
Hvorki þingflokksformenn né þingmenn úr
forsætisnefnd, að undanskildum Píratanum
Jóni Þór Ólafssyni, sem er 5. varaforseti Alþing-
is, vildu tjá sig um þessa ræðu Helga Hrafns.
Þeir töldu að slíkt væri einungis til þess fallið að
stökkva olíu á eldinn og sögðust ekkert vilja
segja, sem reitt gæti Pírata til reiði.
Eitthvað virðist þó hafa sljákkað í þingmönn-
um, þar með töldum Pírötum, því Jón Þór Ólafs-
son sagði m.a. í ræðu á Alþingi í fyrradag undir
liðnum störf þingsins: „Hæstv. þingforseti,
Steingrímur J. Sigfússon, hitti þingflokk Pírata
hér áðan og við ræddum ákveðin álitamál sem
verið hafa uppi varðandi ákvarðanir og upplýs-
ingagjöf. Þar kom mjög skýrt fram lausnamiðuð
nálgun í því hvernig við gætum gengið betur
upplýst inn á fundi til að geta tekið ákvarðanir
og þurfum ekki að vera óviss um það eftir á og
hlaupa síðan upp í ræðustól og rífast um það.
Þetta eru fagleg vinnubrögð. Takk.“
Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis,
var í gær spurður hvort samstarfið við Pírata
hefði gengið svo brösuglega, að erfitt hefði
reynst að ákveða hvaða þingmál væru sett á
dagskrá.
Steingrímur kvaðst vera í þeirri stöðu sem
forseti þingsins, að hann myndi seinastur allra
manna tjá sig um slík mál, væri þeim á annað
borð til að dreifa og baðst undan því að tjá sig
um samstarf þingflokksformanna og forsætis-
nefndar.
Óformlegt gott spjall
Forseti var spurður hvað hann vildi segja um
ræðu Helga Hrafns á þingi á þriðjudag og álykt-
un þingflokks Pírata um að samþykki Pírata
væru veitt skriflega: „Ég átti fínan fund með
þingflokki Pírata í gær (miðvikudag). Það var
óformlegt gott spjall sem við áttum. Við fórum
yfir þessa ályktun þingflokksins og fleira og
málin skýrðust. Hvað mig varðar, er því málið í
góðum farvegi að vinna úr,“ sagði Steingrímur.
„Ætli megi ekki segja að þessi ályktun þing-
flokks Pírata sé sprottin af því að þau vilja meiri
formlegheit í sambandi við það hvernig það er
staðfest að ákvarðanir hafa verið teknar. Þrátt
fyrir að þetta séu Píratar, sem sumir hafa haldið
að væri anarkískur flokkur, þá eru þau mjög
upptekin af forminu, þegar til kastanna kemur.
Ég er alveg sannfærður um að þetta er ekki ein-
hver illvilji af hálfu Pírata, heldur hitt, að þau
eru mjög upptekin af því að öll svona afgreiðsla
sé í mjög föstu formi og ekki sátt við að mál séu
afgreidd munnlega. Mér hefur að vísu ekki þótt
slík afgreiðsla vera neitt vandamál, því á fund-
um formanna þingflokkanna, eru tíu vitni að því
sem þarna fer fram, átta þingflokksformenn og
tveir embættismenn, auk forseta, þannig að það
er sæmilega stór hópur sem er vitni að því sem
þarna er rætt og ákveðið,“ sagði Steingrímur.
Píratar sagðir erfiðir í samstarfi
Forseti Alþingis segist hafa átt fund með þingflokki Pírata og mál séu nú komin í góðan farveg
Alþingi 149. löggjafarþing Íslendinga var sett
11. september sl. Guðni Th. Jóhannesson, for-
seti Íslands, í ræðustól á setningarathöfninni.
Helgi Hrafn
Gunnarsson
Morgunblaðið/Hari
Jón Þór
Ólafsson
Steingrímur J.
Sigfússon
Áslaug Thelma
Einarsdóttir,
fyrrverandi for-
stöðumaður ein-
staklingsmark-
aðar hjá Orku
náttúrunnar
(ON), og Helga
Jónsdóttir, starf-
andi forstjóri
Orkuveitu
Reykjavíkur
(OR), hittust á fundi síðdegis í gær.
Áslaugu Thelmu var sagt upp
störfum hjá ON, dótturfélagi OR,
fyrir um hálfum mánuði og hefur
hún gagnrýnt Bjarna Má Júlíusson,
fyrrverandi framkvæmdastjóra
ON, fyrir óviðeigandi hegðun gagn-
vart starfsfólki fyrirtækisins.
Lögmaður Áslaugar, lögmaður
OR og Berglind Rán Ólafsdóttir,
starfandi framkvæmdastjóri ON,
sátu fundinn einnig, en samkvæmt
heimildum mbl.is er Áslaug Thelma
bundin trúnaði um efni hans.
Áslaug Thelma
fundaði með
forstjóra OR
OR Húsakynni
Orkuveitunnar.