Morgunblaðið - 28.09.2018, Page 4
B
astið var vinsælt á hippaárunum og fram á ní-
unda áratuginn en svo hefur það ekki sést mik-
ið, nema kannski í einstaka sumarbústað í
Grímsnesinu. Eða hjá fólkinu sem fór með
„ljóta“ dótið sitt í bústaðinn. En nú kveður við annan tón.
Bastið þykir nefnilega alls ekki ljótt núna heldur er það
mikil heimilisprýði. Ef þú ert að hugsa um jörðina þá er
bastið ákaflega umhverfisvænt.
Reyr er létt, endingargott og sveigjanlegt hráefni sem
færir náttúruna svolítið inn til okkar. Vörurnar eru iðu-
lega handofnar og því er hver þeirra einstök. Nátt-
úrulegur liturinn fer eftir tegund, jarðvegi og loftslagi.
Reyr er þar að auki vistvænt hráefni því hann vex hratt,
eða 2 til 4 metra á ári.
SINNERLIG loftljósið frá IKEA er unnið úr
bambus-trefjum en það efni er einnig endingargott og
sterkt hráefni sem endurnýjast hratt miðað við hefð-
bundnar viðartegundir og því mun vistvænni kostur.
Þessi baststóll
frá IKEA er alltaf
klassískur.
GAGNET stóllinn er hluti
af 75 ára afmælislínu
IKEA. Hann seldist strax
upp þegar hann kom í
sölu í lok ágúst. Von er á
honum aftur fljótlega.
Ef þú vilt eitthvað
nýtt og ferskt þá
er bastið málið
Ef einhver er að velta fyrir sér hvað er alveg nýtt og
ferskt í hausttísku heimilanna þá er hægt að fullyrða
að innkoma bast-húsgagna hafi ákveðið forskot.
Marta María | mm@mbl.is
SINNERLIG ljósið frá IKEA skap-
ar mikinn hlýleika inni á heim-
ilinu. Sama hvernig stíllinn er.
Nomad stóllinn passar vel
við ljósan sófa og þennan
skandínavíska stíl.
Bast pulla
úr IKEA.
Nomand stóllinn
fæst í Norr11.
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2018
Vandaðir álsólskálar
og glerhýsi
Höfðabakka 9
110 Reykjavík
Sími 578 6300
skelinehf@ skelinehf.is
www.skelinehf.is