Morgunblaðið - 28.09.2018, Blaðsíða 6
V
ið eigum að vera okkar
eigin ritstjórar þegar kem-
ur að því að velja hvað við
skoðum og meðtökum á
netinu og samfélagsmiðlunum.
Velja og hafna, henda því út sem
hentar okkur ekki, henda því út sem
lætur okkur ekki líða vel, skoða það
sem er áhugavert og veitir okkur
innblástur. Sem sagt klæðskerasn-
íða það sem við tökum inn. Hér er
ég að tala um netið og innanhúss-
hönnun þótt þetta megi heimfæra á
margt annað.
Það er gríðarlegur áhugi á innan-
hússhönnun og því að vinna með út-
lit og yfirbragð heimilisins. Það er
líka ótrúlega auðvelt að sökkva sér í
að skoða einhvern veginn allt, og
líklega ekkert, án þess jafnvel að
taka eftir því hvað verið var að
skoða. Ég hef skrifað um þetta áður
en finnst mikilvægt að nefna þetta á
þeim forsendum að með því að vera
vandlátur á það sem maður skoðar
þá fær maður svo miklu meira út úr
þeim tíma sem eytt er. Það gæti
nefnilega komið á daginn, að með
því að rýna í og fletta til dæmis í
gegnum Pinterest-möppurnar sem
vandlega hefur verið pinnað í, megi
lesa meira um sjálfan sig en maður
gerir sér grein fyrir.
Því er ekki að neita að sem innan-
hússhönnuður þá skynjar maður
ákveðna pressu hjá mörgum þegar
kemur að því að hafa heimilið sitt
flott / fallegt / spennandi / á ákveð-
inn hátt. Það er pressa fólgin í
endalausum samanburði, gildum
sem ómögulegt er að ná og full-
komnun sem flæðir í gegnum huga
okkar og okkur finnst að eigi að
eiga við um okkur líka þegar kemur
að þessum miðlum. Pressan leiðir
að mínu mati til þess að gleðin tap-
ast og óöryggi skapast í því að
vinna með heimilið sitt. Úr getur
orðið ákveðin keppni í að gera
barnaherbergið svona og stofuna
hinsegin. En hverju er þá verið að
gleyma? Keppni í innanhússhönnun
með eigið heimili getur ekki skilað
sér í persónulegu umhverfi. Per-
sónulegur stíll er víðs fjarri. Hann
gleymist algjörlega.
Að fylgja öllum sem allir hinir
fylgja og meira til gerir fátt fyrir
okkur. Þá er verið að mata okkur á
stíl sem er kannski á endanum alls
ekki okkar. Margt af því sem er
verið að skoða á að vera nýtt, betra,
meira, vinsælt. Auðvitað er líka
gaman að fylgjast með en við þurf-
um að staldra við og gera okkur
grein fyrir því sem er núna og
hversu gott það getur verið. Ekki
rjúka til og fylgja einhverju allt
öðru en okkar innsæi. Um það snýst
eigin stíll. Fyrir hvað við stöndum
og erum. Hvernig við hugsum.
Hvernig er draumaheimilið?
Á námskeiðunum mínum sem ég
held í innanhússhönnun, fer ég yfir
mikilvægi þess að vinna vel að hug-
mynd svo hún geti orðið að veru-
leika, eða eins og við óskuðum okk-
ur. Hversu stórt eða lítið sem
verkið er sem vinna á að, þá skulum
við eyða sem mestum mögulegum
tíma í góðan undirbúning svo fram-
kvæmdin taki sem skemmstan tíma.
Við hugum að öllum þörfum sem
herbergið / íbúðin / húsið sem verið
er að vinna með, þarf að bera. Við
gerum kostnaðaráætlun. Þá skulum
við sleppa allri þarfagreiningu og
gefa huganum frelsi. Frelsi til inn-
blásturs. Frelsi til að fylla inn á lok-
aða möppu á Pinterest (tek Pinte-
rest sem dæmi vegna vinsælda) sem
heitir einfaldlega: Draumaheimilið.
Þar skulum við geyma allt sem
gleður okkur og viðkemur hugs-
uninni um heimilið okkar sem okkar
eigin heim. Eitthvað sem okkur hef-
ur alltaf dreymt um, þótt heillandi,
spennandi. Án þess að hafa einhver
markmið og viðmið í huga. Við flett-
um síðan endalaust í gegnum þessa
möppu um tíma, hendum út og bæt-
um við. Vinnum með hana án allrar
pressu, því fyrir okkur standa þess-
ar myndir fyrir hugtakið „heima“.
En athugið að þessa möppu má allt-
af búa til án þess að vera að fara í
einhverjar framkvæmdir. Verkefnið
er þá einmitt það eitt að vinna með
eigin stíl, átta sig á honum, til að
öðlast öryggi til að standa á sínu.
Með því að gefa huganum tíma,
frelsi og að hugsa eingöngu um það
eitt að geyma í þessari möppu það
sem manni þykir fallegt, þá ætti að
vera kominn vísir að því sem segir
til um hver manns persónulegi stíll
er. Við ættum að geta lesið í gegn-
um myndirnar í möppunni hver við
erum og hvað er „heima“ fyrir okk-
ur. Þarna skulum við staldra við og
átta okkur á því að tilgangurinn
með möppunni er ekki sá að gjör-
breyta heimilinu okkar og þykja allt
ómögulegt hjá okkur. Þvert á móti.
Við skulum njóta þess að hafa áttað
okkur á því hvað það er sem við vilj-
um. Og kannski er það beint fyrir
framan okkur! Draumaheimilið er
okkar og með möppunni góðu vitum
við hvað okkur langar að gera
heima, hvað væri gaman að gera,
hverju mætti breyta og svo fram-
vegis. Þetta gerist ekki allt í einu og
á ekki að gera það. Ég hef margoft
sagt: Heimilið verður aldrei full-
komið. Það á í raun að vera full-
komið í sínum eigin ófullkomleika!
En með því að hafa meðvitað far-
ið í gegnum það hvað hentar okkur
og hvað ekki á netinu og samfélags-
miðlum. Verið vandlát og skoðað
það eitt sem heillar okkur. Geymt
myndir sem við samsömum okkur
við og því sem við eigum. Áttað okk-
ur á því hvar draumar okkar liggja
þegar kemur að heimilinu okkar. Þá
höfum við markvisst kynnst okkar
eigin persónulega stíl. Við ættum
því að finna gleðina á ný sem fylgir
því að vinna með áhuga okkar á inn-
anhússhönnun, vinna með heimilið
okkar, og njóta þess öryggis að vita
hvað við viljum án utanaðkomandi
pressu.
Halla Bára Gestsdóttir, innanhúss-
hönnuður, www.homeanddelicious.is
@homeanddelicious
Heimilið verður aldrei fullkomið
Hvernig geta netið og samfélagsmiðlarnir kennt okkur meira um okkur sjálf og hvernig við viljum hafa hlutina heima?
Látið okkur staldra við og meta umhverfi okkar á jákvæðan hátt? Halla Bára Gestsdóttir innanhússhönnuður skrifar
um gildi þess að vera vandlátur á hvað maður skoðar og að sleppa takinu á hugmyndinni um fullkomið heimili.
Halla Bára Gestsdóttir innanhússhönnuður
segir að fólk þurfi að vera örlítið sjálfstæðara
þegar það býr sér til umgjörð í kringum sig.
Keppni í innanhúss-
hönnun með eigið
heimili getur ekki
skilað sér í persónu-
legu umhverfi.
Persónulegur stíll
er víðs fjarri. Hann
gleymist algjörlega.
6 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2018
Z-brautir &
gluggatjöld
Opið mánud.-föstud. 10-18 Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | S. 525 8200 | www.z.is |
Mælum, sérsmíðum og setjum upp
Úrval - gæði - þjónusta
Falleg gluggatjöld
fyrir falleg heimili