Morgunblaðið - 28.09.2018, Page 8
Þ
egar litir eru valdir á heimilið skiptir máli að
velja ekki of marga liti, helst bara þrjá í heildina
ef um heila íbúð er að ræða. Það skiptir máli að
litirnir séu með sama grunntón og passi vel við
húsgögnin.
Upp á síðkastið hefur blár litur verið ákaflega vinsæll
en núna eru gráir og grænir tónar að verða vinsælli
ásamt brúnum, beige-lituðum og pastel-bleikum. Mjúkur
gulur og vínrauður eru líka að koma sterkir inn. Þeir eru
þó ekki notaðir saman. Þú verður að velja annaðhvort.
Það skiptir máli að mála þannig að liturinn sé látlaus
grunnur. Málningin á ekki á æpa á okkur og við eigum
ekki að fá innilokunarkennd. Ef þú færð innilok-
unarkennd þá er liturinn of dökkur. Ef það er hátt til
lofts og vítt til veggja þola rými betur dekkri liti en ef um
mjög smá rými er að ræða. Fólk er oft að velta fyrir sér
hvort það eigi að hafa rönd meðfram loftinu eða ekki. Ef
þú vilt mála í anda nútímafólks þá málar þú loftið og
veggina í sama lit. Nú ef engin leið er að mála loftið í
sama lit á ekki að vera lína meðfram loftinu. Það virðist
hærra til lofts ef það er engin lína.
Blæbrigði skipta máli þegar við veljum liti. Hver hefur
ekki lent í því að vera búin/n að kaupa 10 lítra af máln-
ingu og tónninn er með aðeins of bláum undirtón eða
eitthvað slíkt. Þess vegna skiptir máli að kaupa litlar
prufur og prófa sig áfram þegar litur er valinn. Ekki
bara apa upp eftir næsta manni.
Og ef þú vilt vera sjúklega mikið með allt á hreinu þá
málar þú gólflistana í sama lit og veggurinn þannig að
það skapist tær og falleg heildarmynd.
Málaðu eins
og vindurinn
Hér flæðir sami litur bæði
yfir veggi og loft. Sjáið
hvað það kemur vel út.
Hér er flott samspila lita,
áferðar og passar liturinn
á veggnum bæði við
sófann og gólfefnið.
Litaðir veggir hafa sjaldan verið meira móðins eða varla síðan á áttuna ára-
tugnum þegar heilu veggirnir voru ýmist veggfóðraðir eða málaðir í brúnum
tónum. Eftir það tók við langt tímabil hvítra veggja en núna erum við aftur að
verða hressari. En hvernig eigum við að mála þegar við málum í lit?
Marta María | mm@mbl.is
Hér er svolítið skítugur
gráblár litur á veggnum við
bláan sófa. Takið eftir að
loftið er málað í sama lit.
Grágrænn verður
mjög heitur í vetur.
Gulur sófi við beige-gráa
veggi er góð samsetning.
8 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2018
Til í mörgum
stærðum og ge
Nuddpottar
Fullkomnun í líkamlegri vellíðan
rðum
Vagnhöfða 11 | 110 Reykjavík | www.ofnasmidja.is | sími 577 5177