Morgunblaðið - 28.09.2018, Page 14

Morgunblaðið - 28.09.2018, Page 14
um anda. Ég er ekki með neina sér- staka tísku í huga. Ég vel það sem mér finnst fallegt og það sem er hlý- legt og svo held ég upp á hvít hús- gögn og innréttingar. Mér finnst það skapa hreint og fallegt um- hverfi.“ Veröndin er framlenging af húsinu Hvað um veröndina. Hún er para- dís, ekki satt? „Veröndin er draumur og þú ættir að prófa að sitja úti yfir sumartím- ann með mér. Þvílíkt skjól og sæla sem þessi skjólveggur skapar í kringum mann. Ég bý í rað- húsalengju þar sem vaninn er að hafa brúnan við á veröndinni. Mig langaði að hafa veröndina gráa, líkt og veggina í húsinu svo hún myndi sýnast eins og framlenging af hús- inu. Ég blanda svörtum blómapott- um við og er mjög ánægð með út- komuna. Það var síðan í fyrra sem ég lét setja skjólvegginn þar sem mér fannst víðáttan of mikil í garð- inum og ekki nægilega skjólsælt. Birgir vinur minn sem er þaulvanur að gera upp hús teiknaði vegginn fyrir mig. Hann er eiginmaður Ingu Bryndísar sem á Magnolíu og þau eru kærir vinir mínir sem ég hef átt lengi. Hann sendi mér þrjá ægilega sæta menn frá Lettlandi sem settu upp vegginn. Notagildi pallsins hef- ur aukist til muna við þessar ein- földu framkvæmdir. Ég mæli með fyrir alla að skoða möguleikana á að búa til skjól svo hægt sé að nota garðinn betur.“ Hvernig er að vera með gler í veggnum. Þarf að pússa hann reglu- lega? „Nei, veistu ég held að ég hafi aldrei pússað þetta gler.“ Kolbrún segir að fjölskyldulífið sé mjög ánægjulegt og einfalt. Unga fólkið hennar sé að safna fyrir íbúð og hún njóti góðs af því að hafa barnabarnið, hann Viktor Svan, svona nálægt sér. „Hann er algjör draumur, alltaf brosandi og dásam- legur. Það er allt önnur tilfinning að vera amma. Það er dásamlegt að verða móðir en að vera amma er það æðislegasta sem ég hef upplifað.“ Hvernig komið þið ykkur fyrir stórfjölskyldan inni á heimilinu? „Ég er í mínu svefnherbergi með Bleiki sófinn var keyptur í versluninni Tekk Company. Málverkin eru eftir Bryndísi Arnardóttur. Kolbrún segir að garðurinn sé allt annar eftir að skjólvegg- urinn kom upp. Það sé algjör sæla að sitja í garðinum núna.  SJÁ SÍÐU 16 14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2018

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.