Morgunblaðið - 28.09.2018, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2018
góðu rými, fataherbergi og nýt þess
að eiga stundir þar. Litla fjölskyldan
er í gamla herbergi dóttur minnar,
þar sem þau hafa breytt aðeins
skipulaginu eftir að barnabarnið
kom til sögunnar. Við færðum
fataslá og aðra aukahluti inn í bíl-
skúrinn. Dóttir mín málaði og gerði
herbergið fallegt eftir sínu höfði.
Hún ákvað að fjárfesta í góðu rúmi
úr Epal fyrir barnið og mér finnst
það æðislegt. Þetta rúm vex með
barninu til sjö ára aldurs. Síðan
finnst mér himnasængin sem hún
fékk í Petit gera svo sæta veröld í
kringum drenginn.“
Hannaðir þú allt sjálf í húsinu?
„Já, ég gerði það. Ég hef í gegnum
tíðina verið dugleg að skoða bresk
hönnunarblöð. Ég lét smíða sem
dæmi eldhúsinnréttinguna eftir
Eldhúsinnréttingin er sér-
smíðuð eftir höfði Kolbrúnar.
Hvítur litur, grár og
svartur er á mörgum
stöðum í húsinu.
Kolbrún raðar sam-
an fallegri hönnun
og hlutum sem
skipta henni máli.
Rýmið í húsinu er gott
fyrir stórfjölskylduna.
mínu höfði. Hann Gísli heitinn gerði
það, en Gísli er sonur Guðmundar
blinda sem átti smíðaverkstæðið
Víði, sem var einskonar sveitasetur
alvegið niðri við Elliðavatnið.“
Hvað hefur þú búið hér lengi?
„Ég flutti hingað á Vatnsenda árið
2000. Það hefur mikið breyst síðan
þá. Vegirnir voru ekki malbikaðir og
húsafjöldinn talsvert annar.“
Afkastar miklu og nýtur lífsins
Hver er lykillinn að góðu lífi að
þínu mati?
„Í fyrsta lagi að eiga fjölskyldu
sem maður nýtur að hafa nálægt sér.
Að vera í skemmtilegri og krefjandi
vinnu. Að eiga áhugamál. Ég er sjúk
í golf og reyni að vera eins mikið í
golfi og ég get. Ég fer í tvær til þrjár
SJÁ SÍÐU 18
CUPOLA SIDE TABLE
HÖNNUN
MILLION
SÝNINGARSTÝRÐ
HÖNNUNARVERSLUN
HOFSVALLAGATA 16
101 REYKJAVÍK
www.skekk.com
sími: 777 2625