Morgunblaðið - 28.09.2018, Page 32
32 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2018
Hér sést hvernig eyjan nýtur sín í einföldu umhverfi og ljósa-
krónan úr borðstofunni gerir punktinn yfir i-ið á þessu svæði.
Hlutverk kökudiska getur verið margvíslegt, til dæmis er
fallegt að setja blóm og kryddplöntur ofan á kökudiska.
Eigendur hússins vildu ekki nota gardínur í eldhúsinu.
Svo blóm fá það hlutverk hér að fylla upp í gluggana.
Það er ákveðin gylling í marmaranum
sem gerir eldhúsið áhrifaríkt og fallegt.
Litlar hillur þar sem matreiðslubækur
og smáhlutir fá að njóta sín.
fá fram þessa heild í gólfefninu. Park-
etið var svo pússað upp og lakkað. Ég
var ánægð með hversu vel þetta var
gert,“ segir Sólveig.
Húseigendur miklir fagurkerar
Þegar kemur að eldhúsinnréttingu
útskýrir Sólveig að dökk innrétting
hafi alltaf verið planið þar sem þau
hafi sammælst um að það passaði
þessu húsi best. „Við vildum hafa
ákveðinn „vá-faktor“ þegar kom að
borðplötunni. Marmari varð fyrir val-
inu og við þurftum að skoða vel og
vandlega plöturnar hjá Granít-
smiðjunni til að finna þá réttu. Síðar
fundum við svo á smíðaverkstæðinu
hjá þeim þessa plötu sem við féllum
báðar fyrir á staðnum.“
Sólveig lýsir húseigendum sem
miklum fagurkerum. „Mér finnst eld-
húsið mjög vel heppnað og í þeirra
anda.“
Marmarinn kallast fallega á við
vaskinn og kranann í eldhúsinu. „Það
er gull í marmaranum og þess vegna
var ekki hægt að hafa venjulegan
vask við borðplötuna. Við fundum
þennan fallega vask og krana hjá Ís-
leifi Jónssyni. Þetta er rósagull sem
fer einstaklega vel við eldhúsið og
setur þennan punkt yfir i-ið.“
Hvað með ljósakrónuna?
„Hún er einstök. Eigendur áttu
hana fyrir og notuðu fyrir ofan borð-
stofuborðið sitt. Þetta er ítölsk ljósa-
króna úr Saltfélaginu úti á Granda.
Okkur fannst hún tilvalin inn í eldhús-
ið og yfir eyjuna.“
Nýtt eldhús á ekki að stinga í stúf
Það er ákveðið tímaleysi við bæði
húsið og eldhúsið allt. „Já, það er rétt,
og við vildum hafa það þannig. Það er
vandmeðfarið að setja tignarlegt eld-
hús inn í svona einstakt hús. Mig lang-
aði að gera eldhúsið þannig að þegar
þú kemur inn í það væri eins og það
hefði alltaf verið svona.
Nýtt útlit á eldhúsið á ekki að vera
þannig að það stingi í stúf við annað í
húsinu að mínu mati. Þess vegna
reyndi ég að halda öllu sem var gam-
alt og fallegt, en ég poppaði það upp.“
Hverju mælirðu með fyrir eldhús á
þessu ári?
„Svört eldhús eru ennþá mjög vin-
sæl og svört bæsuð eik eða askur.
Þessi efni eru tímalaus og auðvelt að
raða húsgögnum inn í þannig eldhús,“
segir Sólveig og útskýrir að hver og
einn geti síðan sett sinn smekk inn í
slík rými. Það sé alltaf fallegt.
Sólveig segir að mikilvægt sé að
hugsa allar framkvæmdir til enda og
alltaf sé gott að ráðfæra sig við fagfólk
til að fá sem fallegasta heildarmynd á
húsin sem verið er að vinna með.
Fyrir breytingar
Það þarf að hugsa allar framkvæmdir til enda. Svona var eldhúsið áður
en það var tekið í gegn. Áður en farið var í framkvæmdir á eldhúsinu var
reynt að halda í allt sem var gamalt og gæti nýst inn í framtíðina.