Morgunblaðið - 28.09.2018, Page 35
Ljósmyndir/Íris Ann Sigurðardóttir
tekið á Akureyri væri til sölu kom
þetta allt heim og saman,“ segir
hún.
Ástand hússins var bágborið
Gamla apótekið stendur við Aðal-
stræti 4 og er eitt elsta húsið í inn-
bænum. Húsið, sem var byggt árið
1859 fyrir Jóhann Pétur Thorar-
ensen lyfsala, var stærra en almennt
þekktist á þessum tíma. Í upphafi
bjó Jóhann í risinu en rak apótekið á
neðri hæðinni. Apótekið var starf-
rækt í húsinu til 1929 en þá var neðri
hæðinni breytt í íbúð.
„Ástand hússins var orðið mjög
bágborið. Húsið var forskalað árið
1956 og orðið fúið, missigið og illa
farið. Við keyptum húsið af Minja-
vernd, en markmið þeirra var að
endurgera það sem næst uppruna-
legri mynd. Gert var ráð fyrir fjór-
um íbúðum í húsinu. ARGOS ehf.
arkitektastofa annaðist teikningar
að húsinu. Minjavernd á mikið hrós
skilið fyrir verkefnið að mínu mati.“
Aðspurð hverjir komi í húsið segir
Sigríður að hún hafi hugsað þetta
fyrir Íslendinga en Halldór hafi ver-
ið á því frá upphafi að húsið ætti að
vera fyrir erlenda ferðamenn. „Nið-
urstaðan er sú að viðskiptavinir okk-
ar eru bæði erlendir ferðamenn og
Íslendingar. Sumir koma til að lesa
en aðrir hafa engan áhuga á því.
Innréttað með íslenskri hönnun
Það eru kamínur í öllum íbúð-
unum. Andrúmsloftið í húsinu er
dásamlegt og skapast þegar falleg
SJÁ SÍÐU 36
FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2018 MORGUNBLAÐIÐ 35
Klassískur stíll og fíngerð form gera þessa gamaldags hönnun baðinnréttinga gullfallega og nútímalega.
Burlington baðherbergin eru gott dæmi um hin hefðbundnu baðherbergi sem fyrir löngu eru orðin
klassísk og bera frábærri hönnun og fegurð baðherbergja fyrri tíma gott vitni.
Burlington leggur mikið upp úr samræmdri hönnun á öllum sínum vörum til að
auðvelda þér að velja hið klassíska baðherbergi.
Draghálsi 14 - 16 · Sími 4 12 12 00
www.isleifur.is