Morgunblaðið - 28.09.2018, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 28.09.2018, Blaðsíða 38
K ristín býr ásamt eig- inmanni sínum Ólafi Kristjánssyni og börnum þeirra Davíð Kristján Ólafssyni og Kristjönu Sæunni Ólafsdóttur í fallegu einbýlishúsi í Kópavogi sem byggt var á sjöunda áratug síðustu aldar. Litadýrðin mikil heima Kristín segir að málverkið í stof- unni eftir Sigurbjörn Jónsson spili stórt hlutverk þegar kemur að lit- unum á heimilinu. „Ólafur eig- inmaður minn kom með þetta fal- lega verk heim og svo höfum við Kristjana dóttir mín sem lærði stíl- iseringu í London verið að tengja inn í málverkið með listaverkum, púðum og fleiri hlutum.“ Kristín segir hönnun hússins ráða miklu um hvað er inni í því í dag. ,,Sem dæmi fannst mér „cox“ svarti lit- urinn á veggjunum fallegur fyrir þetta hús. Hann fæst í Sérefni, Síðumúla. Gamla myndin af William Shake- speare sem er römmuð inn í gyllt- um ramma og hangir á svarta veggnum passar fallega inn í húsið. Þó að ég sé persónu- lega ekki mikið fyrir gyllt, þá er ýmislegt gyllt hjá mér af því að það er það sem húsið kallar á að mínu mati.“ Með áhugann í blóðinu Kristín starfaði í ferðaiðnaðinum áður en hún varð meðeigandi Kristjönu Ólafsdóttur mágkonu sinnar í húsgagnaversluninni Heimili og hugmyndir. Hún segir fyrirtækið fjölskyldufyrirtæki þar sem meðal annars dóttir hennar og eiginmenn þeirra Kristjönu taki virkan þátt í rekstrinum. Við Guð- mundur P. Davíðsson fengum áhuga á húsgögnum í gegnum föð- ur okkar Davíð Guðmundsson, sem átti og rak fjölskyldufyrirtækið Hansa. Hann framleiddi m.a. Hansa-hillurnar frægu. Við systk- inin störfuðum saman í hús- gagnaversluninni hans Bláskógum og höfum alla tíð unnið vel saman.“ Kristín rifjar upp þegar Guð- mundur bróðir hennar byrjaði með Kristjönu. „Ég var einungis 13 ára að aldri og ég man að ég dáðist að smekk Kristjönu allt frá upphafi. Hún var alltaf að breyta, end- urraða hjá sér og fann einstaklega fallega tímalausa hluti sem hún gerir ennþá.“ Kristín segir að í Heimili og hug- myndum séu þau ekki í vinnunni, þetta sé lífið þeirra og þau hafi einstaka ánægju af því að að- stoða fólk við að gera fallegt hjá sér. „Það er gaman að vera öll saman og fátt skemmtilegra en að aðstoða fólk við að finna það sem það leitar að. Hver hlutur inni í versl- uninni hefur verið vandlega valinn og við kunnum söguna á bak við margt sem við kannski fundum á mörkuðum er- lendis og þar fram eftir götunum. Eins erum við með einstök merki á borði við Flamant sem býður upp á tímalausa hönnun svo allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi hjá okk- ur.“ Sefur á COCO-MAT Kristín segist einna ánægðust með rúmið sitt frá COCO-MAT sem er framúrstefnulegt handgert rúm gert úr náttúrulegum efn- Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Litríkt og hlýlegt Kristín Davíðsdóttir á undursamlega fallegt heimili sem hún segir vera samvinnuverkefni allra sem búa á því. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Litirnir í stofunni tóna einstaklega vel saman. „Við Guðmundur P. Davíðsson fengum áhuga á húsgögnum í gegnum föður okkar Davíð Guðmundsson, sem átti og rak fjölskyldufyrir- tækið Hansa.“  SJÁ SÍÐU 40 38 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2018 STOFNAÐ 1956 Glæsileg íslensk hönnun og smíði á skrifstofuna Bæjarlind 8–10 201 Kópavogur Sími 510 7300 www.ag.is ag@ag.is Fyrir Á. Guðmundsson starfa íslenskir, vel menntaðir arkitektar sem hafa þróað húsgögn og hönnunargripi sem skapa notalegt andrúmsloft. Hver hlutur ber einkenni klassískrar hönnunar en er einnig fallegur smíðisgripur sem er þægilegt að nota og sómir sér vel á skrifstofunni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.