Morgunblaðið - 28.09.2018, Side 42
L
inda starfar sem aðstoð-
armaður skipulags- og bygg-
ingarfulltrúa í Fljótsdalshér-
aði og svo rekur hún
netverslunina Unalome þar sem hún
selur vörur frá Balí.
Parið festi kaup á 190 fm húsi á
tveimur hæðum á þessu ári en húsið
fengu þau afhent 1. júní. Síðan þá
hafa þau staðið í ströngu við að koma
sér fyrir.
„Það sem heillaði okkur við húsið
var að gengið er inn á efri hæðina
með fjölskyldurými og eldhúsinu, en
herbergi og þvottahús eru á neðri
hæðinni. Einnig var staðsetningin á
óskalistanum, en við erum með leik-
völl fyrir aftan hús og Selskóg í allri
sinni dýrð fyrir framan húsið. Það
voru síðan gluggarnir í stofunni og
birtan inn um þá sem náðu mér al-
gjörlega. Það er algjört ævintýri
hvernig sólin skín hér inn og þegar
kvöldsólin nær hingað verður allt
heimilið gyllt,“ segir Linda.
Þegar Linda er spurð út í sinn
heimilisstíl segist hún vera svolítið
skandínavísk með örlitlum boho-stíl
með persónulegum blæ. Stíllinn
hennar Lindu er líka litaður af Balí en
þar bjó fjölskyldan um tíma. Það að
flytja til Egilsstaða eru í raun ekki
mikil viðbrigði fyrir Lindu því hún
ólst upp á Reyðarfirði eða frá sex ára
aldri en flutti svo til Reykjavíkur 18
ára gömul. Síðan þá hefur hún búið í
Danmörku og á Balí og er nú komin
heim. Eða allavega í bili. Þau eru þó
alltaf með einhver ævintýri á prjón-
unum.
Linda hefur heilmikinn áhuga á
heimilinu og segir að mestallur tími
hennar fari í að sinna því.
„Ég eyði miklum tíma á Pinterest
og Instagram að skoða myndir af
heimilum. Mér finnst gaman og gott
að halda því hreinu og hér eiga allir
hlutir sér sinn stað. Ég dúllast mikið
heima við og punta heimilið auk þess
sem ég fæ nýjar hugmyndir til að
breyta oft í viku,“ segir hún.
Hvað skiptir þig mestu máli þegar
heimilið er annars vegar?
„Það myndi vera að hér sé hlýlegt
og notalegheit í bland við fallegt. Að
fólki finnist gott að vera á heimilinu,
að það sé til gott kaffi og súkkulaði
með því og það augljósa – að það sé
nóg af plöntum úti um allt.“
Hver er þinn uppáhaldsstaður á
heimilinu?
„Uppáhaldsstaðurinn er klárlega
stofan okkar. Þar er ekki sjónvarp
heldur notalegt; plötuspilari, kerti og
hengistóllinn okkar – sem er fullkom-
inn til að slaka á í. Hjónaherbergið er
líka í uppáhaldi, en það er hlýlegt og
þar er gott að kúra eða loka sig af
með góðum þætti í tölvunni.“
Hvaðan koma húsgögnin á heim-
ilinu?
„Húsgögnin eru allt frá því að vera
fjöldaframleidd úr IKEA eða sér-
stakir hlutir sem ég hef erft, látið sér-
hanna, borið með mér frá Asíu eða
eins og til dæmis hlutur sem ég eyddi
öllum mínum peningum og meira til
þegar ég var einstæð móðir í há-
skólanámi til að eignast! Litlu hlut-
irnir, skrautmunirnir, eru síðan öllu
persónulegri og skipa stórann sess í
hjartanu.
Linda er ævintýrakona
Linda er með BA í félagsráðgjöf og
diplómu í lýðheilsuvísindum og þegar
hún komst að því að hún gengi með
barn númer tvö gat hún ekki hugsað
sér að vera í fæðingarorlofi í svart-
asta skammdeginu því hún hafði
gengið í gegnum það áður.
„Þegar ég var ólétt að Esjari var
ég sett 21. nóvember, á 10 ára afmæl-
isdegi dóttur minnar, Önju. Ég sá að
ég yrði aftur í fæðingarorlofi yfir
Nýtur litlu
hlutanna í lífinu
Linda Sæberg flutti nýlega til Egilsstaða ásamt Steinari Inga Þor-
steinssyni, manninum sínum, og börnum þeirra. Auk þess eiga þau
mjög þreytta og gamla kisu sem heitir Þórhildur. Heimilið er persónu-
legt og hlýlegt en Linda hefur unun af því að gera fallegt í kringum sig.
Marta María | mm@mbl.is
Blár litur prýðir forstofuna
en þar er snögum raðað
upp á sniðugan hátt.
Hjónaherbergið er hlýlegt. Vegg-
teppið fyrir ofan rúmið er frá Balí.
42 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2018
Öll almenn bólstrun
Sérhæfum okkur í að gera upp
eldri húsgögn
Mikið úrval af áklæðum frá
NEVOTEX og DANISH ART WEAVING
Smiðjuvegur 6 | 200 Kópavogur | S. 554 1133 og 862 2577 | asgrimur@bolstra.is | www.bolstra.is