Morgunblaðið - 28.09.2018, Page 46
Ú
r íbúðinni er heillandi
útsýni yfir smábáta-
höfnina á Marina del
Rey og yfir til Holly-
wood. Þessi heillandi Los Angeles
íbúð var þó ekki alveg svona fög-
ur þegar húsráðendur festu kaup
á henni. Þurfti að endurgera
hana heilmikið og reyndi því tölu-
vert á Erlu Dögg og Tryggva
sem segja að það að endurhanna
þessa íbúð hafi verið skemmti-
legt.
„Þetta er íbúð sem við hönn-
uðum fyrir vini okkar sem eiga
tvo unglinga. Þau eru frá Sviss
en nota íbúðina sem sum-
arbústað,“ segir Erla Dögg.
Allar innréttingar í íbúðinni
eru sérsmíðaðar eftir teikningum
Erlu Daggar og Tryggva. Hvíttuð
eik er töluvert notuð ásamt
hnotu, steypu og silestone, sem er
ákveðin tegund af náttúrusteini.
Snýst allt um sjálfbærni
Í Kaliforníu er mikið lagt upp
úr sjálfbærni í byggingariðnaði.
Hjónin notuðu umhverfisvænan
efnivið í íbúðina eða í flest öllum
tilfellum. „Þetta er blokkaríbúð og
þess vegna voru okkur settar
ákveðnar skorður við hönnunina.“
Þegar Erla Dögg er spurð að
því hvað þau hafi verið að hugsa
þegar þau hönnuðu íbúðina segir
hún að mest hafi verið lagt upp úr
þægindum. Íbúðaeigendurnir eiga
tvo unglinga og var tekið mið af
því við hönnun íbúðarinnar.
„Þar sem íbúðin er notuð í sum-
arfríum og þess háttar þurfti að
taka mið af því. Auk þess vildum
við að útsýnið fengi að njóta sín
sem best úr íbúðinni og við þurft-
um að finna leiðir þannig að ekk-
ert myndi skyggja á það.“
Sýn á framtíðarheimili er eitt-
Fólk vill minna
skápapláss og
meiri opin rými
Erla Dögg Ingjaldsdóttir og Tryggvi Þorsteinsson, eigendur Minarc
arkitektastofunnar í Los Angeles, hönnuðu glæsilega penthousíbúð fyrir
svissneska vini sína í Los Angeles. Íbúðin er á 19. hæð með miklu útsýni.
Marta María | mm@mbl.is
Tryggvi Þorsteinsson og
Erla Dögg Ingjaldsdóttir eru
hjón og eigendur Minarc
arktiektastofu í Los Angeles.
Ljósmynd/Marta Elena
46 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2018