Morgunblaðið - 28.09.2018, Page 47

Morgunblaðið - 28.09.2018, Page 47
hvað sem Erla Dögg og Tryggvi hugsa mikið út í í sinni hönnun. Hugsun þeirra hefur vakið heims- athygli og er arkitektastofa þeirra, Minarc, margverðlaunuð. Þegar þau eru spurð að því hvað einkenni framtíðarheimili segir hún að fólk vilji minna rými og opnara. „Fólk er líka farið að vilja betur skipulögð heimili.“ Eldhúsið er opið inn í stofu og er flaggskip þess stór eyja eða tangi sem nær fram í borðstofu og stofu. Erla Dögg segir að þau hafi lagt mikið upp úr því að það væri praktískt og fallegt. „Eldhúsið er eitt mikilvægasta rými heimilisins. Við köllum það hjarta hússins ef eldhúsið er þægi- legt og vel skipulagt. Því ef það er rétt hannað er líklegra að það sé eldað meira heima og ef við eldum meira heima þá fáum við yfirleitt hollari mat því við notum hollari hráefni. Og fyrir vikið verða allir Guli liturinn er sniðugur. Hann sést í raun bara þegar horft er inn í eldhúsið frá ákveðnu sjónarhorni og þegar unnið er í eldhúsinu. Ljósakrónan AIM frá Flos er ákaflega flott yfir eyjunni. Eldhúsið er fjölnota. Hægt er að læra við eyjuna, elda við hana og gera nánast hvað sem er.  SJÁ SÍÐU 48 Ljósmyndir/Art Gray FÖSTUDAGUR 28. SEPTEMBER 2018 MORGUNBLAÐIÐ 47 Gæðastál ehf, Smiðjuvegur 4 (græn gata að ofanverðu), sími 844 1710 www.kubbaljos.is Opið virka daga kl. 11-17 og laugardaga kl. 11-14 Íslensk framleiðsla 15% afsláttur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.