Morgunblaðið - 03.03.2018, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 03.03.2018, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2018 Sterkir í stálinu Skipastál • Lunningajárn • Bakjárn Kælirör • Fíber- og galvanhúðaðar ristar Svört- og ryðfrí rör og fittings Ál • Ryðfrítt stál • PVC plötur POM öxlar • PE plötur Lokar af ýmsum gerðum Opið virka daga kl. 8-17 Skútuvogi 4, Rvk Rauðhellu 2, Hafnarfirði Sími 568 6844 | ga@ga.is | ga.is Veður víða um heim 2.10., kl. 18.00 Reykjavík 6 skýjað Bolungarvík 9 rigning Akureyri 6 skýjað Nuuk 0 snjóél Þórshöfn 6 súld Ósló 5 skýjað Kaupmannahöfn 10 rigning Stokkhólmur 7 súld Helsinki 8 skúrir Lúxemborg 9 súld Brussel 15 léttskýjað Dublin 15 súld Glasgow 12 skýjað London 18 skýjað París 14 súld Amsterdam 14 léttskýjað Hamborg 11 skýjað Berlín 8 súld Vín 11 léttskýjað Moskva 7 þoka Algarve 25 heiðskírt Madríd 26 heiðskírt Barcelona 24 heiðskírt Mallorca 23 léttskýjað Róm 21 heiðskírt Aþena 22 léttskýjað Winnipeg 8 alskýjað Montreal 8 súld New York 24 léttskýjað Chicago 15 þoka Orlando 29 skúrir  3. október Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 7:43 18:51 ÍSAFJÖRÐUR 7:51 18:54 SIGLUFJÖRÐUR 7:34 18:37 DJÚPIVOGUR 7:13 18:20 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á fimmtudag Snýst í hvassa norðanátt með slyddu eða snjókomu á norðanverðu landinu. Á föstudag Hæg vestlæg eða breytileg átt og léttir víða til, en él á stöku stað við ströndina. Kalt í veðri. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Gengur í austan og norðaustan 13-23 m/s með rigningu eða slyddu, hvassast S-lands, en á Vestfjörðum seint annað kvöld. Hiti 1 til 9 stig, mildast syðst. Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Kosningaþátttaka í sveitarstjórnar- kosningum 2018 var meiri en þegar kosið var árið 2014. Mesta kjör- sókn var í Árneshreppi, 93,5%, en minnsta kjörsókn í Reykjanesbæ, 57%, að því er fram kemur á vef Hagstofu Íslands. Almenn kosn- ingaþátttaka í sveitarstjórnarkosn- ingunum í vor var 67,6% en 66,5 % árið 2014. Kjartan Már Kjartansson, bæj- arstjóri í Reykjanesbæ, segir að sveitarfélagið hafi ekki greint það hvers vegna kjörsókn var slökust í Reykjanesbæ þar sem óheimilt sé samkvæmt persónuverndarlögum að rýna í það hverjir kusu og á hvaða aldri þar sem þær upplýs- ingar geti hugsanlega leitt til upp- lýsinga um þá sem kusu ekki. Kjartan telur marga samverk- andi þætti valda slakri kjörsókn. „Hluti skýringarinnar gæti verið að við prófuðum í fyrsta sinn í sveitarstjórnarkosningum að vera einungis með einn kjörstað, stað- settan í Fjölbrautaskólanum, fyrir allt sveitarfélagið. En slíkt hafði gengið vel í þing- og forsetakosn- ingum,“ segir Kjartan sem heyrt hefur að það hafi ruglað einhverja og því hafi þeir ekki kosið. Auk þess gæti hluti útlendinga sem fengið hafa lögheimili og kosninga- rétt í Reykjanesbæ ekki verið nægjanlega vel inni í málum til þess að geta tekið afstöðu í kosn- ingunum. Samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar var kosningaþátt- taka erlendra ríkisborgara 15,3% nú en 17% árið 2014. Tölur um þátttöku erlendra ríkisborgara eru byggðar á niðurstöðum 39 sveitar- félaga af 72. Mörg sveitarfélög hafa talið það jafnvel brjóta í bága við lög um persónuvernd að veita upplýsingar um aldur og ríkisfang kjósenda. Kosningaþátttaka í Hafnarfirði í sveitarstjórnarkosningum í vor var dræm eða 58,1% . Hún var 60,6% árið 2014. Rósa Guðbjartsdóttir, bæjar- stjóri í Hafnarfirði hefur ekki skýr- ingar á dræmri kosningaþáttöku í bænum. En segir að hugsanlega geti skýrt eitthvað sú staðreynd að hátt hlutfall útlendinga sem hafa lögheimili á Íslandi sé búsett í Hafnarfirði. „Ég skynjaði ekki mikinn mun á þessum kosningum og öðrum sem ég hef tekið þátt í,“ segir Rósa sem telur áhugavert að kanna hvað valdi minnkandi kosningaþátttöku. Minnsta kjörsókn í Reykjanesbæ  Mesta kjörsókn í Árneshreppi  Hátt hlutfall útlendinga gæti hugsanlega skýrt dræma kjörsókn í Reykjanesbæ og í Hafnarfirði  39 af 72 sveitarfélögum landsins sendu Hagstofunni öll umbeðin gögn Rósa Guðbjartsdóttir Kjartan Már Kjartansson Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Stærsta áskorun íslenskrar net- verslunar er að gera hana sam- keppnishæfa við erlenda netversl- un. Þetta segja þeir Egill Fannar Halldórsson og Daníel Pétursson sem standa að vöruhúsinu Gorilla House sem var stofnað í þeim til- gangi að þjónusta íslenskar net- verslanir og auka þjónustustig í innlendri netverslun. Fyrirtækið var opnað um mitt sumar en þjónustar nú um hundrað pakka á dag frá íslenskum net- verslunum af öllum stærðum og gerðum. „Verslun er að færast yfir á netið og það er endalaust af netversl- unum að spretta upp,“ segir Egill og líkir þróun netverslana við til- komu verslunarmiðstöðva sem urðu til við þéttbýlismyndun. Nú sé það sama uppi á teningnum með net- verslanir samhliða aukinni notkun snjalltækja og stafrænna miðla. Í skýrslu Rannsóknarseturs verslunarinnar, sem kom út fyrr á árinu, um íslenska netverslun kem- ur fram að innlend netverslun hafi vaxið um 14,9 prósent fyrstu sex mánuði þessa árs samanborið við sama tímabil í fyrra, en heildar- velta innlendrar netverslunar nam 8,8 milljörðum króna allt árið 2017. Í sameppni við erlendu risana Daníel og Egill segja viðtökurnar hafa verið framar vonum en þegar er hjá Gorilla-vöruhúsinu á annan tug netverslana sem selja ýmist tískuvörur, íþróttavörur og -fatnað, húsgögn eða snyrtivörur svo fátt eitt sé nefnt. „Jafnvel þótt viðskiptavinir okk- ar séu að selja til sama markhóps lítum við svo á að þeir séu ekki endilega keppinautar. Keppinaut- arnir eru raunverulega ASOS, Amazon, Alibaba eða einhver annar þessara stóru erlendu aðila,“ segir Daníel. Hingað til hafa íslensku netverslanirnar átt erfitt með að keppa við erlendu netverslunarr- isana sem bjóða ódýrari vöru ásamt hraðari heimsendingu en íslensku netverslanirnar hafa getað boðið upp á. „Við gerum íslensku netversl- ununum kleift að bjóða upp á hrað- ari og betri þjónustu, og ekki síst smærri aðilunum sem geta núna boðið upp á alls konar þjónustu- möguleika sem hingað til hafa bara verið í boði hjá risum í verslunar- geiranum,“ segir Egill en við- skiptavinir netverslananna sem eru hjá Gorilla-vöruhúsinu geta til að mynda boðið viðskiptavinum sínum á höfuðborgarsvæðinu upp á heim- sendingu samdægurs. „Flestar netverslananna hafa ekki boðið upp á að sækja vörur til sín, heldur aðeins þær stærstu, og gátu netverslanirnar bara sent vör- urnar með Íslandspósti. Þá pantaði fólk og fékk sendinguna eftir helgi. Núna getur fólk sótt strax, fengið sent heimt til sín samdægurs eða daginn eftir,“ segja þeir. Betri þjónusta í netverslun  Vöruhúsið Gorilla House gerir netverslunum kleift að senda vörur heim að dyrum samdægurs  Brýnt að auka samkeppnishæfni íslenskra netverslana Morgunblaðið/Árni Sæberg Gorilla House Þeir Egill Halldórsson (t.v.) og Daníel Pétursson (t.h.) fóru af stað með vöruhúsið Gorilla House um mitt sumar. Þeir þjónusta nú á anna tug netverslana sem selja húsgögn, fatnað, snyrtivörur og íþróttavörur. Fljótabakki ehf., sem er íslenskt dótturfélag ferðaþjónustufyrirtæk- isins Eleven Experience, hefur fest kaup á jörðinni Hraunum í Fljótum. Fyrir eiga áðurgreindir aðilar jörðina Depla í Fljótum hvar í boði er ýmis fágætisþjón- usta fyrir vel borgandi ferðamenn, og má þar nefna fjallaskíðaferðir þar sem flogið er með fólk í þyrl- um upp á fjallstoppa, sem svo rennir sér niður. Starfsemin á Hraunum verður með líku lagi og er á Deplum, og þær byggingar sem fyrir eru á jörðinni, s.s. stórt íbúðarhús, nýtast nú fyrir ferða- þjónustuna, að sögn Hauks B. Sig- marssonar, framkvæmdastjóra Fljótabakka. Hraun hafa lengi verið í eigu sömu fjölskyldunnar; fólks sem nú flyst á brott. Verðið sem Fljóta- bakki gaf fyrir jörðina er um 150 millj. kr., samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. sbs@mbl.is Kaupa Hraun fyrir ferðaþjónustu Icelandair hefur selt Primera Air þjónustu og verður því fyrir tjóni vegna gjaldþrots félagsins. Þetta staðfesti Pétur Þ. Óskarsson, fram- kvæmdastjóri samskiptasviðs Ice- landair, við Morgunblaðið. „Icelandair hefur séð um tiltekna þjónustu fyrir Primera Air í Kefla- vík. Í ljósi gjaldþrots Primera gerum við ráð fyrir að Icelandair geti orðið fyrir einhverju fjárhagslegu tjóni, en það er ekki verulegt,“ sagði Pétur. Frekari upplýsingar voru ekki veittar um málið að sinni. baldura@mbl.is Icelandair tapar á gjald- þroti Primera

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.