Morgunblaðið - 03.03.2018, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2018
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • tengi@tengi.is
Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • www.tengi.is
Opið virka daga frá kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-15
Gæði, þjónusta, ábyrgð - það er Tengi
HÁGÆÐA BLÖNDUNARTÆKI
Þýska fyrirtækið Hansa hefur framleitt bað- og eldhústæki í meira en 100 ár.
Tengi hefur mikla og góða reynslu af vörunum frá Hansa.
Jóhann Grétar Stephensen, kennari og húsasmiður, á 70 ára af-mæli í dag. Hann er fæddur og uppalinn í Neskaupstað og hefurbúið þar alla tíð. Hann var kennari og síðan aðstoðarskólastjóri
Verkmenntaskóla Austurlands og starfaði þar í 30 ár en hann hætti
að kenna í vor.
„Ég kenndi alltaf húsasmíði, fagbóklegar greinar og iðnteikningar
húsasmíða. Ég sá einnig um Farskóla Austurlands meðan hann var og
hét en hann starfaði frá 1988 og fram undir 2000 þegar fræðslu-
miðstöðvarnar tóku við af farskólanum. Hlutverk skólans var að
halda réttindanámskeið fyrir fólk í ýmsum greinum og endurmennt-
unarnámskeið í samvinnu við ýmsa aðila.
Ég er svona að finna mér eitthvað að sýsla,“ segir Jóhann þegar
hann er spurður hvað hann hafi haft fyrir stafni síðan hann hætti að
kenna í vor. Jóhann situr þó ekki auðum höndum, hann er í Karla-
kórnum Ármönnum og hefur í gegnum tíðina stundað almenna útivist
og skíði en hann var í skíðadeild Þróttar í Neskaupstað. Hann ætlar
að taka það rólega í tilefni afmælisins.
Eiginkona Jóhanns er María Árnadóttir, sjúkraliði og heilsunudd-
ari við Heilbrigðisstofnun Austurlands. Börn þeirra eru Hreinn J.
Stephensen, myndlistarmaður og býr í Svíþjóð, Elísabet Sigríður
Stephensen, nemi í félagsvísindum og býr í Kópavogi, Hans Ö. Steph-
ensen, húsasmiður hjá Ístaki og býr á Selfossi, og Grétar J. Stephen-
sen, sölustjóri hjá Símanum og býr í Reykjavík. Barnabörnin eru orð-
in 6.
Fjölskyldan Jóhann, María, börn og barnabörn samankomin í sumar.
Nýhættur störfum
eftir 30 ár í kennslu
Jóhann Grétar Stephensen er sjötugur í dag
S
ilja Aðalsteinsdóttir fædd-
ist í Rauðuvík á Árskógs-
strönd 3.10. 1943 en ólst
upp til tíu ára aldurs á Ak-
ureyri. Hún hóf náms-
ferilinn í Barnaskóla Akureyrar hjá
Erni Snorrasyni, kennara og barna-
bókahöfundi: „En sumarið 1953 flutti
ég með kjörforeldrum mínum, Aðal-
steini Gunnarssyni og Valgerði Stef-
ánsdóttur, til Reykjavíkur og þá um
haustið byrjaði ég í Laugarnesskól-
anum – reyndar á sjálfan afmælisdag-
inn þegar ég varð tíu ára. Ég var þrjú
sumur í sveit hjá föðursystur minni,
Þórdísi Gunnarsdóttur, í Þingnesi í
Borgarfirði og hefði sjálfsagt aldrei
orðið að manni ef ég hefði ekki komist
undir verndarvæng hennar og dóttur
hennar, Ragnheiðar Sveinbjörns-
dóttur.“
Silja lauk landsprófi frá Gaggó Von
vorið 1959, stúdentsprófi frá MR
1963, BA-prófi í íslensku og ensku frá
HÍ 1968 og kandídatsprófi í íslensku
frá sama skóla 1974.
Silja hefur kennt mikið og víða, fyrst
við gagnfræðaskólann á Blönduósi
strax eftir stúdentspróf og sinnti
stundakennslu við HÍ 1968-98, með
hléum.
Er Silja var 16 ára söng hún með
KK sextettinum skamma hríð. Hún er
einn virtasti bókmenntafræðingur
okkar og sérfræðingur í barnabók-
menntum, er frábær upplesari og hef-
ur um árabil lesið framhaldssögur og
skáldsögur í RÚV.
Bók Silju, Íslenskar barnabækur
1780-1979, kom út 1981. Hún var rit-
stjóri Tímarits Máls og menningar
1982-87 og aftur 2004-2008, vann á for-
lagi Máls og menningar 1982-87 og
hefur unnið á Forlaginu frá 2008:
„Núna í ár fékk ég meira að segja að
passa mitt gamla Tímarit MM eftir að
Guðmundur Andri Thorsson fór á
þing.“
Silja var menningarritstjóri DV
1996-2003: „Það var kannski það
skemmtilegasta sem ég hef gert um
ævina.“
Meðfram öðrum störfum hefur
Silja þýtt fjölda bóka og skrifað mikið
um bókmenntir og leikhús, m.a. grein-
ar um ljóðlist frá 1880-2000 í Íslenskri
bókmenntasögu (1996-2006). Hún hef-
ur skrifað nokkrar ævisögur, fyrst Í
aðalhlutverki Inga Laxness – Endur-
minningar Ingibjargar Einarsdóttur
(1987), síðan Skáldið sem sólin kyssti,
ævisögu Guðmundar Böðvarssonar
(1994), Bubba um Bubba Morthens
(1990) og loks Allt kann sá er bíða
kann um Svein R. Eyjólfsson (2017).
Fyrir Skáldið sem sólin kyssti hlaut
Silja Íslensku bókmenntaverðlaunin
og líka, ásamt öðrum, fyrir bókina
Kjarval (2005). Hún fékk verðlaun
fræðsluráðs Reykjavíkur 1978 fyrir
þýðingu á skáldsögunni Sautjánda
sumar Patricks, eftir K.M. Peyton
Silja Aðalsteinsdóttir ritstjóri – 75 ára
Fjölskyldan Silja og Gunnar með dætrunum, tengdasonunum og barnabörnum, en það yngsta var ekki mætt .
Varð að manni í sveit-
inni – er gull af manni
Mosfellsbær Lísa Björk
Sveinsdóttir fæddist 4. des-
ember 2017 á Akranesi kl. 1.36
eftir miðnætti. Hún vó 3.666 g
og var 51,5 cm á lengd við fæð-
ingu. Foreldrar hennar eru
Sveinn Þorgeirsson og Anna
Margrét Guðmundsdóttir.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is