Morgunblaðið - 03.03.2018, Síða 6

Morgunblaðið - 03.03.2018, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2018 Leitar þú að traustu BÍLAVERKSTÆÐI Smiðjuvegur 30 (GUL GATA) | 200 Kópavogi Sími 587 1400 |www. motorstilling.is SMURÞJÓNUSTA < HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA TÍMAPANTANIR 587 1400 Við erum sérhæfðir í viðgerðum á amerískum bílum. Mótorstilling býður almennar bílaviðgerðir fyrir allar tegundir bíla. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Jarðvegsvinna vegna framkvæmda við nýjan Landspítala við Hringbraut er hafin. Íbúafundur um verklegar framkvæmdir á Landspítalalóð var haldinn á Hótel Natura 27. septem- ber. Þar kom m.a. fram í erindi Ólafs M. Birgissonar, verkefnastjóra Framkvæmdasýslu ríkisins, að brott- akstur á efni verði um 350-400 þús- und rúmmetrar. Miðað við að flutn- ingabíll (trailer) flytji að meðaltali 15 rúmmetra í ferð þá þurfa lestaðir flutningabílar að fara 23-27 þúsund ferðir með jarðefni. Ásbjörn Jónsson, verkefnastjóri hjá NLSH (Hringbrautarverkefn- inu), fjallaði á íbúafundinum um 1. áfanga jarðvinnu og veitna. Í honum verður lagður grunnur að nýju gatna- kerfi við Landspítalann, grafið fyrir meðferðarkjarna og gatnamótum við Snorrabraut breytt. Hann sagði í samtali við Morgunblaðið að berg- skeringar verði rúmlega 200.000 rúmmetrar úr grunni meðferðar- kjarnans og um 100.000 rúmmetrar úr götustæðum, samtals um 300.000 rúmmetrar. Holan í berginu, sem tekin verður fyrir meðferðarkjarnan- um, verður allt að 15,6 metra djúp. Dýpst næst barnaspítalanum og kvennadeildinni. Ekki teljandi áhrif á umferð Ásbjörn sagði að efnisflutningarnir mundu dreifast yfir framkvæmda- tímann og telur hann að þeir muni ekki hafa nein teljandi áhrif á umferð- ina í borginni. „Laust efni fer upp á Bolöldu, en það er ekki mikið af því. Mest af efn- inu verður grjót, sprengd klöpp. Reykjavíkurborg og Faxaflóahafnir hafa óskað eftir að geta sagt til um það hvert bergið fer. Það mun til dæmis henta vel til landfyllingar eða í varnargarða. Það verður reynt að hafa akstursvegalengdirnar sem stystar. Þessir aðilar eru báðir í því að útfæra svæði og vinna með skipu- lagsyfirvöldum að góðum lausnum þar sem hægt verður að losa bergið þannig að við þurfum ekki að aka langt með það,“ sagði Ásbjörn. Flutningar aukast á næsta ári Hann sagði að litlir jarðvegsflutn- ingar yrðu næstu þrjá mánuði, kannski 3.000 rúmmetrar. Mestu efn- isflutningarnir verða fljótlega upp úr áramótum þegar tekinn verður grunnur að meðferðarkjarnanum. Sú vinna mun standa í eina 15 mánuði. Ekki þarf að aka miklum jarðefnum í grunninn. Húsin verða steypt ofan á klöppina og því er ekki þörf á jarð- vegspúða. „Það verða ekki efnisflutn- ingar frá lóðinni þegar umferðin er sem mest fyrst á morgnana og síð- degis. Verktakinn mun sjá til þess. Hann hefur ekki áhuga á að sitja fast- ur í umferð með trailerana,“ sagði Ás- björn. „Það hefur verið reiknað út að þetta verði að meðaltali 6-7 bílar á klukkustund. Það fer kannski bíll með hlass á tíu mínútna fresti að með- altali. Þetta verður ekki meira en það þegar þessu er deilt niður á alla dag- ana sem verkið stendur. Göturnar verða ekki yfirfullar af bílum hlöðn- um af grjóti.“ Miklar mengunarvarnir Mörgum er í fersku minni hve mik- ið var kvartað vegna ónæðis frá fram- kvæmdum við sjúkrahótelið á Land- spítalalóðinni. Ásbjörn sagði að allt verði gert til að ónæði verði sem minnst fyrir starfsfólk og sjúklinga á spítalanum. „Við munum beita þeim mengunar- vörnum sem þekktar eru á Vestur- löndum og höfum fyrirskrifaðar þær í gögnum.“ sagði Ásbjörn. Beltavélar verða á gúmmíbeltum í stað stálbelta til að draga úr hávaða. Vatnsúða- byssur munu bleyta rykmyndandi svæði til að hemja ryk. Fleygun er bönnuð í verkinu nema með sérstöku leyfi frá verkkaupa. Vilji verktakinn fleyga þá þarf hann að bera það undir verkkaupa. Sú krafa var gerð eftir reynsluna af byggingu sjúkrahótel- sins. Þar var mest kvartað yfir fleyg- uninni og hávaða frá henni. Fleygað verður með vökvastýrðum fleyg með hljóð- og titringsdempandi búnaði. Reynt verður að sprengja eins mikla klöpp og hægt er því spreng- ingarnar valda minna ónæði en fleyg- un. Sprengingarnar verða tímasettar þrisvar á dag og er það gert með tilliti til starfsemi spítalans eins og skurð- aðgerða, speglana o.fl. Borvagninn verður búinn hljóð- deyfi- og ryksugukerfi. Hljóðdeyfir- inn dempar hávaðann um 10 decibel (dB). Ef hávaðinn frá bornum óvörð- um er 100 dB þá fer hann niður í 90 dB og sagði Ásbjörn að menn upplifi það sem um helmings lækkun á hljóð- inu. Einnig verða hljóðeinangrandi tjöld sett á girðingar um fram- kvæmdasvæðið. Allir bílar sem aka út úr grunni meðferðarkjarnans, flutn- ingabílar og steypubílar, fara í gegn- um þvottastöð sem þrífur af þeim óhreinindi svo þau berist ekki út á götur borgarinnar. Krefjandi tímar framundan En munu framkvæmdirnar ekki valda ónæði inni á spítalanum, þrátt fyrir allar varnirnar? „Við höfum alltaf lagt áherslu á það í öllum okkar kynningum að það séu krefjandi tímar framundan. Þó að við grípum til allra tiltækra ráðstafana til að milda áhrifin þá verður alltaf ónæði af framkvæmdum sem þess- um. Það er alveg ljóst,“ sagði Ás- björn. Grafið og sprengt fyrir spítala  Fjarlægja þarf 350-400 þúsund rúmmetra af jarðefnum  Bergskeringar verða samtals um 300 þús- und rúmmetrar  Efnisflutningar verða ekki á álagstímum  Bergið verður sprengt þrisvar á dag Morgunblaðið/Eggert Mokstur Flutningabílar munu fara 23-27 þúsund sinnum með jarðefni frá Landspítalalóðinni næstu mánuði. Jarðvegur Minnst af efninu verður laus jarðefni. Mest verður grjót sem sprengt verður úr klöppinni. Efni sem hentar t.d. vel til landfyllingar. Krefjandi Framkvæmdirnar gera miklar kröfur til verktaka. Gripið er til margvíslegra mótvægisaðgerða gegn mengun, ekki síst hávaðamengun. Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Sumarið var fremur svalt, sér í lagi suðvestanlands. Þetta kemur fram í yfirliti Veðurstofu Íslands um hið svokallaða veðurstofusumar, sem nær yfir mánuðina júní til og með september. Fyrrihluti sumarsins var sérlega sólarlítill um landið sunnan- og vestanvert, en hlýr norðaustan og austanlands. Síðari hlutinn var hins vegar fremur svalur, bjart um landið suðvestanvert en þung- búnara og úrkomusamara á Norð- austurlandi. Meðalhitinn í Reykjavík var 9,2 stig sem er jafnt meðatali áranna 1961 til 1990 en -1,4 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Sumarið í Reykjavík hef- ur ekki verið eins kalt síðan árið 1992, að því er fram kemur í yfirliti Veðurstof- unnar. Á Akureyri var meðalhiti sum- arsins 9,7 stig, 0,7 stigum yfir með- allagi áranna 1961 til 1990 en -0,5 stigum undir meðalhita síðustu tíu ára. Úrkoma í Reykjavík mældist 274,2 millimetrar í sumar sem er 20% umfram meðallag áranna 1961 til 1990. Á Akureyri mældist úr- koman 215,1 mm sem er 60% um- fram meðallag áranna 1961 til 1990. Dagar þegar úrkoma mældist 1,0 mm voru 56 í Reykjavík, 11 fleiri en í meðalári. Á Akureyri mældist úrkoman 1,0 mm eða meiri 48 daga í sumar, 19 fleiri en í meðalári og hafa aldrei verið fleiri. Í Reykjavík mældust 509 sól- skinsstundir í sumar, 103 stundum færri en að meðaltali 1961 til 1990 og 186 stundum færri en að með- altali síðustu tíu ára. Á Akureyri mældust sólskins- stundirnar í sumar 536 og eru það 20 færri en að meðaltali 1961 til 1990 og 45 færri en að meðaltali síðustu tíu ára. Veðurstofusumarið svalt  Kaldasta sumarið í Reykjavík síðan 1992  Úrkoman á Akureyri 60% yfir meðallagi  Sólarlítið syðra og nyrðra

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.