Morgunblaðið - 03.03.2018, Side 11

Morgunblaðið - 03.03.2018, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2018 Forsætisráðherra, Katrín Jakobs- dóttir, hefur skipað nefnd sem leiðir fyrir hönd stjórnvalda sáttaviðræður við fyrrverandi sakborninga í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu, sem sýknaðir voru með dómi Hæstaréttar í end- urupptökumáli 27. september, og aðstandendur þeirra. Nefndin er skipuð í samræmi við samþykkt ríkisstjórnar Ís- lands frá 28. september. Kristrún Heimisdóttir lögfræð- ingur gegnir formennsku í nefnd- inni sem fulltrúi forsætisráðu- neytisins. Aðrir nefndarmenn eru Bryndís Helgadóttir, skrif- stofustjóri í dómsmálaráðuneyt- inu, og Magnús Óskar Haf- steinsson, sérfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneyt- inu. Á vef stjórnarráðsins kemur fram að verkefni nefndarinnar sé nánar tiltekið að koma fram fyrir hönd stjórnvalda í viðræðum og sáttaumleitunum við aðila málsins og aðstandendur þeirra og gera tillögu til forsætisráðherra og ríkisstjórnar um hugsanlega greiðslu miska- og skaðabóta eða eftir atvikum sanngirnisbóta til aðila málsins eða aðstandenda þeirra. ge@mbl.is Sáttaviðræður við fyrrverandi sakborninga Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170 20% afslátturaf öllum CHANELvörum Chanel kynning í Snyrtivöruversluninni Glæsibæ miðvikudag til föstudags Kynntir verða fallegu nýju varalitirnir ásamt nýja farðanum Les Beiges Healthy Glow gel Verið velkomin Samtök íbúa og hagsmunaaðila í Mýrdal leggjast gegn nýrri veglínu þjóðvegar 1 með Dyrhólaósi og göngum í gegnum Reynisfjall. Sam- tökin afhentu Sigurði Inga Jóhanns- syni, samgöngu- og sveitarstjórnar- ráðherra, ályktun á opnum fundi í Vík á mánudagskvöld. Einnig fengu sveitarstjóri og þingmenn Suður- kjördæmis ályktunina. Í ályktuninni segir m.a. að harðar deilur hafi staðið um samgöngumál í Mýrdal á undanförnum árum. „Ræt- ur þeirra átaka eru áform um breytta veglínu um Mýrdalinn og þau margþættu neikvæðu og óaftur- kræfu áhrif sem hún hefði – ef til framkvæmdar kæmi – á votlendi, landslag, fuglalíf, landbúnað, ferða- þjónustu og búsetuskilyrði íbúa.“ Samtökin segja að aldrei muni nást samstaða um nýja veglínu. Hún muni valda óafturkræfu tjóni á nátt- úruperlum í Mýrdal og rýra gildi hans sem ferðamannastaðar. Vegur- inn muni fara yfir eitt stærsta vot- lendissvæði Mýrdalsins við sjávar- leirur Dyrhólaóss sem er á náttúru- minjaskrá. Hann muni og raska mikilvægum búsvæðum fugla, vot- lendissvæðinu sem einni heild og ásýnd Mýrdalsins. Ný veglína mun rýra ásýnd Víkurfjöru og gildi henn- ar til náttúruskoðunar og útivistar, að mati samtakanna. Þá muni veg- urinn slíta þorpið úr samhengi við ströndina. Fjaran sé eitt helsta að- dráttaraflið sem dregur ferðamenn til Víkur en National Geographic út- nefndi hana sem eina af tíu fegurstu fjörum heims. Áformin um nýja veglínu gangi einnig gegn leiðarljósi UNESCO, Kötlu jarðvangs, sem Mýrdals- hreppur er hluti af. Nýja veglínan verði eins og hraðbraut í gegnum Mýrdalinn og muni stytta dvalar- tíma ferðamanna á svæðinu. Mun rýra mörg eignarlönd Loks benda samtökin á að „ný veglína mun fara yfir ótal mörg eign- arlönd í Mýrdal, og þar með hefta og rýra landbúnaðarland og búsetuskil- yrði bænda og annarra íbúa sveitar- félagsins. Öll andmæli þessara fjöl- mörgu hagsmunaaðila hafa hingað til verið með öllu hunsuð.“ Þau benda einnig á að ströndin við Vík sé á stöðugri hreyfingu. Flutn- ingur þjóðvegar 1 niður á óstöðuga brimströnd á tímum hækkandi sjáv- arstöðu sé „tilræði við öryggi allra vegfarenda“. Vegstæðið liggi utan skilgreindrar varnarlínu og þurfi að færa það frá íþróttamannvirkjum miðað við núverandi uppdrætti. Þá sé vel þekkt að suðvestan- stormar færa hluta Víkurþorps á kaf í sand á hverju ári. Þá daga yrði ófært um veginn vegna sandfoks. Ný veglína sé óhagkvæm því með henni þurfi að sinna tvöföldu vegakerfi um Mýrdalinn. Samtökin hvetja til „ábyrgra end- urbóta á núverandi þjóðleið í sam- ræmi við áður fram komnar vel ígrundaðar tillögur Vegagerðarinn- ar og í sátt við umhverfi og sam- félag“. gudni@mbl.is Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Samgöngumál Fjölmenni var á fundinum í Vík og voru allir þingmenn Suðurkjördæmis á meðal fundargesta. Mótmæla veglínu og göngum í Reynisfjalli  Hart deilt um samgöngumál  Vilja laga núverandi veg Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Mótmæli Guðni Einarsson, bóndi í Þórisholti, afhenti Sigurði Inga Jóhanns- syni ráðherra ályktun Samtaka íbúa og hagsmunasamtaka í Mýrdal.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.