Morgunblaðið - 03.03.2018, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2018
Bragð af
vináttu • Hágæðagæludýrafóður
framleitt
í Þýskalandi
• Bragðgott og
auðmeltanlegt
• Án viðbættra
litar-, bragð- og
rotvarnarefna
Útsölustaðir:
Byko, Gæludýr.is,
4 loppur, Multitask,
Launafl, Vélaval, Landstólpi.
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Andri Már Ingólfsson eigandi flug-
félagsins Primera Air, sem hætti
starfsemi í gær eftir 14 ár í rekstri
og óskaði eftir greiðslustöðvun, seg-
ir í samtali við Morgunblaðið að
niðurstaðan sé gríðarleg vonbrigði.
„Sárast er þó að sjá þetta uppbygg-
ingarstarf hverfa fyrir allt þetta
góða starfsfólk sem hefur unnið að
þessu þetta lengi,“ segir Andri.
Hann segir að það hafi ekki orðið
ljóst fyrr en á mánudaginn síðasta
kl.14 hvernig færi, en bæði hafi ver-
ið leitað eftir því að styrkja stöðu fé-
lagsins með skuldabréfaútboði upp
á 40 milljónir evra, auk þess sem
viðræður hafi staðið yfir við nýjan
kjölfestufjárfesti. „Við vorum í við-
ræðum um að fá kjölfestufjárfesti
inn í félagið sem okkur leist mjög
vel á.“
Horfur fara ekki batnandi
Spurður nánar um ástæður þess
að svo illa fór, segir Andri að bæði
hafi félagið þurft á brúarfjármögn-
un að halda í vetur, auk langtíma-
fjármögnunar fyrir félagið. „Undan-
farna mánuði hafa horfur á
flugmarkaði ekki farið batnandi,
þvert á móti. Það eru ansi miklar
blikur á lofti víða. Olíuverð hefur
tvöfaldast á síðustu 12 mánuðum og
verðlækkun á mörkuðum hefur ver-
ið miklu hraðari en menn gerðu ráð
fyrir. Við hófum þetta endurfjár-
mögnunarferli í júní, til að komast í
gegnum veturinn og fara í þessa
stóru aukningu næsta sumar [inn-
sk.blm.: beint áætlunarflug frá meg-
inlandi Evrópu til Ameríku á 10 nýj-
um langdrægum Boeing Max-9 LR
vélum]. Þegar menn skoðuðu horf-
urnar og sáu að það þyrfti verulega
mikið aukið eigið fé til að hrinda
þessu í framkvæmd, þá áttuðu menn
sig á að það myndi hafa enn alvar-
legri afleiðingar að halda áfram
rekstri en ekki. Grunnhorfurnar
voru ekkert að fara að breytast,
hvorki hjá Primera Air né öðrum
flugfélögum. Ef við hefðum átt að
halda sjó í gegnum þetta næstu tvö
árin hefði þurft gríðarlega djúpa
vasa. Ég taldi það ekki forsvaran-
legt.“
Andri segir að ákvörðunin hafi
verið erfið. „Þetta er nú sú erfiðasta
ákvörðun sem ég hef þurft að taka í
viðskiptum í 25 ár, og mjög sár.“
Engir strandaglópar
Spurður um áhrifin á
ferðaskrifstofuna Primera Travel
Group, sem er með starfsemi um
alla Skandinavíu og á Íslandi, segir
Andri að gjaldþrotið hafi blessunar-
lega, eins og hann orðar það, ekki
haft neikvæð áhrif á það félag. „Það
tókst að finna flug til að sinna öllum
sem keypt höfðu ferðir hjá Primera
Travel Group. Þar eru engir
strandaglópar. Til dæmis tókst
Heimsferðum á Íslandi að fá flug-
félagið Travel Service til að fljúga
fyrir sig í allan vetur. Það sama
gildir um Bravo Tours í Danmörku.
Það var smá birta í myrkrinu. Nú
þarf samt kannski að endurskoða
fókusinn í þeim rekstri því eðlilega
er flugfélagið farið og þá þarf að
horfa á hlutina öðruvísi.“
En er Andri með einhver skilaboð
til fólks sem orðið hefur stranda-
glópar erlendis vegna gjaldþrotsins?
„Ég get ekkert annað en lýst yfir
gríðarlegum vonbrigðum með að
geta ekki staðið við skuldbindingar
okkar gagnvart því fólki. Ég bið
fólkið afsökunar á þeim óþægindum
sem það hefur lent í.“
Danska flugmálastjórnin hefur nú
tekið yfir mál farþega Primera og
mun aðstoða þá eftir megni næstu
daga, að sögn Andra.
„Gríðarleg vonbrigði“
Flug Horfur á flugmarkaði verða áfram erfiðar að sögn Andra Más.
Áttu í viðræðum við nýjan kjölfestufjárfesti Primera Travel Group endur-
skoði áherslur sínar Versnandi horfur í flugrekstri á komandi mánuðum
Áhrif
» Arion banki var einn af við-
skiptabönkum Primera Air.
Bankinn sendi frá sér afkomu-
viðvörun í gærmorgun vegna
ófyrirséðra atburða sem hefðu
1,3-1,8 milljarða króna áhrif, án
þess að nefna flugfélagið á
nafn.
ar á fyrrnefndri starfsemi 365
miðla.
Aðaleigandi 365 miðla er Ingi-
björg Stefanía Pálmadóttir.
Salan á bréfunum í Sýn kom fram
hjá Kauphöll Íslands fyrir opnun
markaða í gærmorgun. Á sama
tíma var ljóst að viðskipti upp á
1.753 milljónir króna höfðu átt sér
stað með bréf í Högum. Frettabla-
did.is, sem er í eigu 365 miðla,
greindi frá því skömmu síðar að þau
viðskipti hefðu tengst kaupum 365
miðla á ríflega 3% hlut í Högum.
365 miðlar seldu í gær nær alla
hlutabréfaeign sína í Sýn hf. Hlut-
inn eignaðist fyrirtækið þegar það
seldi bróðurpart starfsemi sinnar,
þ.m.t. starfsemi Stöðvar 2 og Bylgj-
unnar, til Sýnar á nýliðnu ári. And-
virði sölunnar nú nam tæpum 2
milljörðum króna en 365 hélt á
10,9% hlutafjár í Sýn. Félagið
skuldbatt sig til þess að losa um
eignarhlut sinn í Sýn, eða eignar-
hald sitt á Fréttablaðinu, innan til-
tekins frests þegar sátt náðist við
Samkeppniseftirlitið um kaup Sýn-
365 hf. fara út úr Sýn og inn í Haga
Seldu hlutinn á tæpa 2 milljarða
Morgunblaðið/Ómar
Miðlar 365 á enn Fréttablaðið og Glamour en starfsemin hefur verið til sölu.
● Rekstrartekjur íslenska upplýsinga-
tæknifyrirtækisins Endor tífölduðust á
milli ára og námu 1.550 milljónum
króna árið 2017. Í tilkynningu frá Endor
kemur fram að 60% veltu fyrirtækisins
sé tilkomin vegna verkefna fyrir erlenda
viðskiptavini. Rekstrarhagnaður fyrir-
tækisins var 100 milljónir króna og
hagnaðurinn 70 milljónir. Í lok ársins
2017 nam eigið fé Endor 133 milljónum
króna. Eiginfjárhlutfallið var 55%. Ekki
er gert ráð fyrir útgreiðslu arðs fyrir ár-
ið 2017. Fyrirtækið var stofnað árið
2015 en fjárfestingafélagið Óskabein
gekk frá kaupum á fjórðungshlut í því
áárinu 2017.
Rekstrartekjur Endor
tífaldast á milli ára
3. október 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 110.76 111.28 111.02
Sterlingspund 144.47 145.17 144.82
Kanadadalur 86.55 87.05 86.8
Dönsk króna 17.238 17.338 17.288
Norsk króna 13.596 13.676 13.636
Sænsk króna 12.429 12.501 12.465
Svissn. franki 112.59 113.21 112.9
Japanskt jen 0.9712 0.9768 0.974
SDR 154.54 155.46 155.0
Evra 128.54 129.26 128.9
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 155.9312
Hrávöruverð
Gull 1185.3 ($/únsa)
Ál 2011.0 ($/tonn) LME
Hráolía 82.79 ($/fatið) Brent
Ursus ehf., félag í
eigu Heiðars
Guðjónssonar,
stjórnarformanns
Sýnar, keypti
3.250.000 hluti í
síðarnefnda fé-
laginu í gær á
genginu 61,5
krónur hlutinn.
Eru það viðskipti
upp á tæpar 200
milljónir. Þetta kemur fram í til-
kynningu til Kauphallar. Sýn er
móðurfélag Vodafone, Stöðvar 2,
Vísis og fleiri fyrirtækja.
Hlutabréf að andvirði tveir millj-
arðar voru seld í gær í Sýn, sem eru
um 11% hlutur í félaginu. Eru kaup
Ursus ehf. um 10% af þeim við-
skiptum. peturhreins@mbl.is
Kaupir
hluti í Sýn
Heiðar
Guðjónsson
Heiðar keypti fyrir
200 milljónir í Sýn
● Bréf Arion banka tóku snarpa dýfu í
Kauphöll Íslands í gær og lækkuðu bréf
fyrirtækisins um tæp 5,8% í ríflega
345 milljóna króna viðskiptum. Lækk-
unina má rekja til afkomuviðvörunar
sem bankinn sendi frá sér. Þá lækkuðu
bréf Eimskipafélagsins um 1,7% í tæp-
lega 21 milljónar króna viðskiptum.
Hins vegar hækkuðu bréf Origo um
tæp 5,4% í tæplega 87 milljóna við-
skiptum í kjölfar þess að tilkynnt var að
fyrirtækið hefði slitið viðræðum og haf-
ið nýjar um mögulega sölu á tals-
verðum hlut í dótturfélaginu Tempo ehf.
N1 hækkaði um 1,9% í ríflega 331 millj-
ónar viðskiptum og Skeljungur fylgdi
fast á hæla þess með 1,8% hækkun í
tæplega 72,5 milljóna viðskiptum.
Köflóttur dagur hjá fé-
lögunum í Kauphöllinni
STUTT