Morgunblaðið - 03.03.2018, Side 18
BAKSVIÐ
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Útgerðum sem ráða yfir afla-hlutdeild hefur fækkaðtalsvert á síðustu árum. Íyfirliti á vef Fiskistofu
kemur fram að fyrirtækin voru 382 á
nýliðnu fiskveiðiári, en voru 946 fisk-
veiðiárið 2005-2006 og er fækkunin
nálægt 60%. Handhafar bæði afla-
markshlutdeilda og krókaaflamarks-
hlutdeilda eru taldir með hvert fisk-
veiðiár. Fækkunin er áberandi meiri í
síðarnefnda flokknum.
Í greinargerð með frumvarpi um
veiðigjald, sem sjávarútvegsráðherra
lagði nýlega fram á Alþingi, er m.a.
fjallað um fækkun sjálfstæðra at-
vinnurekenda í sjávarútvegi á næst-
liðnum árum. „Til þessa teljast bæði
útgerðir með aflamarki og krókaafla-
marki en langstærstur hluti þessarar
breytingar liggur í smábátaútgerð-
inni. Á fiskveiðiárinu 2013-2014 voru
krókaaflamarksbátar 354 talsins en
við upphaf yfirstandandi fiskveiðiárs
[2016-17] voru þeir 258 talsins. Þeim
hafði fækkað um fjórðung á fjórum
árum.
Samtímis fór hlutdeild 50
stærstu handhafa krókaaflahlut-
deildar vaxandi og er nú um 83%.
Raunar virðast margir krókaafla-
marksbátanna hafa litlar aflaheimildir
eða eru ekki í rekstri. Auk innri og
ytri aðstæðna er líklegt að lagabreyt-
ing vorið 2013 hafi hér haft sitt að
segja en þá var stærðarmörkum
bátanna lyft úr 15 brúttótonnum í 15
metra hámarkslengd og 30 brúttó-
tonn, sem skóp aukna eftirspurn eftir
krókaaflamarki.“
Stærðarmörk að þolmörkum
Komið er inn á þessi sömu atriði í
kafla um stærðarmörk fiskiskipa og
áhrif þeirra í niðurstöðum starfshóps
um faglega heildarendurskoðun á
regluverki í sjávarútvegi, sem nýlega
var skilað til ráðherra.
Í umsögn Landssambands smá-
bátaeigenda um stærðarmörk fiski-
skipa segir meðal annars: „LS telur
stærðarmörk krókaaflamarksbáta
vera komin að þolmörkum. Þær við-
varanir sem LS kom með í umsögn
um frumvarp til laga um breytingu á
lögum um stjórn fiskveiða dags. 16.
júní 2013 hafa því miður gengið eftir.
Stærð bátanna og umfang hefur
orðið til að veiðiheimildir hafa færst til
báta sem eru efstir í stærðarmörkum.
Aðgangur útgerða minni báta að fjár-
magni til kaupa á veiðiheimildum er
ekki jafn greiður og þeirra sem
stærstir eru.“
Inn í krókaaflamarkið hafi komið
stór útgerðarfyrirtæki og bátarnir
hafi nægar veiðiheimildir til að fiska
tvö þúsund tonn. Bátum í krókaafla-
marki hafi fækkað um 77 frá því
stækkunin var heimiluð eða um fjórð-
ung.
Umferðarstjórnun
Í umsögn Samtaka fyrirtækja í
sjávarútvegi segir um sama efni:
„Fyrir liggur að hin ýmsu stærðar-
mörk og takmarkanir sem þeim fylgja
hafa orðið til og þróast á löngum tíma
og er í raun „pólitísk“ niðurstaða í
mörgum tilfellum í framhaldi af átök-
um ólíkra sjónarmiða um svæðaskipt-
ingu og aðgengi tiltekinna skipaflokka
og veiðarfæra. Þannig má halda því
fram að stærðarmörkin séu liður í
ákveðinni „umferðarstjórnun“ á mið-
unum allt í kringum landið. Þótt ef til
vill megi halda því fram að vel sé hægt
að framfylgja markmiðum um stjórn
fiskveiða án allra stærðarmarka skipa
þá er það engu að síður mikil einföld-
un á flóknum raunveruleika.“
Í umsögn Sjómannsambandsins
kemur fram að þar sem lítill munur sé
orðinn á krókaaflamarki annars vegar
og almennu aflamarki hins vegar, auk
þess sem krókaaflamarkið sé ekki
lengur bundið við smábáta, „telur Sjó-
mannasamband Íslands að breyta
ætti krókaaflamarkinu í almennt afla-
mark“.
Fyrirtækjum hefur
fækkað í útgerðinni
Fjöldi útgerðarfyrirtækja með aflahlutdeild
Fiskveiðiárin 2005-2006 til 2017-2018 og úthlutuð þorskígildistonn
946
818
676
603 580
548 528 508 515 492
438
407 382
Fjöldi útgerðarfyrirtækja
Þúsundir þorskígildistonna
Þús. tonn:
Heimild: Fiskistofa
’05-’06 ’06-’07 ’07-’08 ’08-’09 ’09-’10 ’10-’11 ’11-’12 ’12-’13 ’13-’14 ’14-’15 ’15-’16 ’16-’17 ’17-’18
500
400
300
200
100
0
1.000
800
600
400
200
0
18
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2018
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Ífyrradag varþess minnst íKatalóníu-
héraði á Spáni að
eitt ár er liðið frá
því að umdeild at-
kvæðagreiðsla
um sjálfstæði
héraðsins fór
fram. Yfirvöld í Madríd voru
vægast sagt andsnúin at-
kvæðagreiðslunni, töldu þá
sem börðust fyrir henni og
sjálfstæði Katalóníu land-
ráðamenn, og spænska lög-
reglan reyndi, án árangurs,
að koma í veg fyrir kosn-
inguna með fruntalegri vald-
beitingu. Munu aðfarir lög-
reglunnar, sem sáust meðal
annars slá með kylfum til
fólks sem hafði ekki unnið
sér annað til sakar en að vilja
kjósa, hafa frekar orðið til
þess að ýta undir málstað
sjálfstæðissinna en hitt.
Þátttaka í atkvæðagreiðsl-
unni var dræm, innan við
helmingur Katalóna kaus, en
níu af hverjum tíu sem þátt
tóku sögðu já við sjálfstæði.
Niðurstaða atkvæðagreiðsl-
unnar, sem raunar var ýms-
um annmörkum háð, varð til
þess að leiðtogar héraðsins
ákváðu einhliða að lýsa yfir
lýðveldisstofnun, sem aftur
kallaði á enn harðari við-
brögð yfirvalda. Spænskir
dómstólar tóku til sinna ráða
og fóru að sækja helstu for-
kólfa aðskilnaðarsinna til
saka fyrir uppreisnartilburði
og setja þá á bak við lás og
slá, en enn á eftir að rétta í
málum þeirra.
Þó að réttarfarið veki
furðu og framferði dómstól-
anna lykti einna helst af póli-
tískum ofsóknum, hefur það
til þessa verið látið óátalið af
Evrópusambandinu, enda
vilja menn þar síður styggja
stjórnvöld Spánar. Er nú svo
komið málum að margir af
leiðtogum sjálfstæðissinna í
Katalóníu sitja nú annað-
hvort inni eða hafa flúið land.
Þetta þætti Evrópusamband-
inu ekki gott ef það gerðist
austar í Evrópu og ekki þarf
að efast um að þá yrði rætt
um refsiaðgerðir. Þögnin nú
er þeim mun meira æpandi.
Sjálfstæðissinnar ákváðu
að minnast þessara atburða
meðal annars með því að
stífla vegi og járnbrautar-
teina í héraðinu, auk þess
sem um 180.000 manns
gengu fylktu liði um götur
Barselóna til þess að ítreka
kröfuna um sjálfstæði eða
sjálfsákvörðunarrétt. Í þessu
sambandi þarf að hafa í huga
að flestar kannanir til þessa
hafa bent til þess að stuðn-
ingsmenn þess að
héraðið tilheyri
Spáni séu fleiri en
aðskilnaðarsinn-
ar, en hinir síðar-
nefndu hafa feng-
ið mikinn byr í
seglin á undan-
förnum mán-
uðum. Ekki þarf að efast um
að harkaleg framganga
spænskra stjórnvalda hefur
ýtt mjög undir þá þróun.
Þó að þáverandi ríkis-
stjórn Spánar hafi tekist að
koma í veg fyrir að sjálf-
stæðisyfirlýsing Katalóna
næði tilgangi sínum, er ljóst
að einhvers konar samræða
þarf að fara fram á milli rík-
isstjórnarinnar og héraðs-
stjórnarinnar um fram-
haldið. Þegar ríkisstjórn
Marianos Rajoy hrökklaðist
frá vegna spillingarmála í
vor bundu ýmsir vonir við
það að næsta ríkisstjórn,
sem sósíalistinn Pedro Sánc-
hez leiðir myndi reyna að
bera klæði á vopnin.
Staða Sánchez á spænska
þinginu er hins vegar ekki
sterk og engin leið er að vita
hvort hann hafi pólitískan
styrk til þess að semja við
Katalóníuhérað um aukna
sjálfsstjórn og koma þeim
samningi í gegnum þingið.
Segja má að öll spjót standi á
honum, þar sem Quim Torra,
núverandi forseti Katalóníu-
héraðs, lýsti því yfir í gær að
flokkar aðskilnaðarsinna
myndu draga til baka stuðn-
ing sinn við ríkisstjórn Sánc-
hez, verði hann ekki búinn að
tryggja Katalóníu aukna
sjálfstjórn fyrir upphaf nóv-
embermánaðar. Á sama tíma
hafa íhaldsmenn á spænska
þinginu krafist þess að Sánc-
hez bindi enda á allt sjálf-
stæðisbrölt Katalóna, en
boði ella til almennra þing-
kosninga sem fyrst.
Sjálfstæðismálið hefur
rekið fleyg í katalónskt sam-
félag sem skiptist nú með og
á móti aðskilnaði við Spán.
Um leið hefur það valdið al-
varlegum klofningi á Spáni.
Brýnt er að núverandi for-
ysta, bæði í Madríd og í
Barselóna, hafi hugrekki til
þess að rökræða málin og
komast að niðurstöðu sem
allir geti fellt sig við. Aðfarir
eins og þær sem sáust fyrir
ári munu aldrei skila neinu
öðru en biturð og gremju.
Spænsk stjórnvöld verða að
hverfa af þeirri braut og
hefja vinnu við að græða sár-
in. Að öðrum kosti geta þau
búið sig undir að standa
frammi fyrir sívaxandi sjálf-
stæðiskröfu.
Harka spænskra
stjórnvalda hefur
orðið til þess að
lausn er ekki í
sjónmáli í deilunni
um Katalóníu}
Sitja fastir við sinn keip
Þ
ann 26. sept. sl. mælti Ólafur Ís-
leifsson, þingflokksformaður
Flokks fólksins, fyrir þingsálykt-
unartillögu um 300 þúsund króna
lágmarksframfærslu skatta- og
skerðingalaust. Þingmálið var áður lagt fram
sem 474. mál á 148. löggjafarþingi (skattleysi
launatekna undir 300.00 kr.). Hvað varð um
þá góðu þingsályktun? Ég segi ykkur í algjör-
um trúnaði að hún gufaði upp í nefnd. Það
kom ekki til frekari umræðu í þingsal.
Ég tileinka ykkur, sem þurfið á þessari
kjarabót að halda, greinina mína í dag.
Svona gengur það fyrir sig: „Alþingi álykt-
ar að fela fjármála- og efnahagsráðherra að
beita sér fyrir því að mánaðartekjur ein-
staklinga undir 300.000 kr. verði undanþegnar skatt-
greiðslum og gera með laga- og reglusetningu viðeigandi
ráðstafanir í því efni fyrir árslok 2018.“
Þingsályktunartillagan felur í sér að tekjur ein-
staklinga undir 300.000 kr. verði undanþegnar skatti.
Þau skattfrelsismörk samsvara 106.387 kr. persónu-
frádrætti. Um tvöföldun skattleysismarka er því að
ræða.
Markmið tillögunnar eru tvö:
1. Að jafna skattbyrði milli tekjuhópa þannig að þátt-
taka ríkra og fátækra í rekstri samfélagsins verði líkari
því sem tíðkast annars staðar á Norðurlöndum.
2. Að hlífa þeim sem eru með tekjur undir fram-
færslumörkum við að greiða samfélaginu skatta af þeim
tekjum. Tillagan stuðlar að tilfærslu fjár inn-
an skattkerfisins sem kemur fram í lægri
skattheimtu hjá tekjulágu fólki og hærri hjá
þeim sem hafa háar tekjur. Með tillögunni er
undið ofan af langvarandi þróun þar sem
skattbyrði hefur flust frá tekjuháum til tekju-
lágra.
Til þess að mæta kostnaði við þessa breyt-
ingu er lagt til að persónufrádráttur verði
stiglækkandi eftir því sem tekjur eru hærri
og falli hann alveg niður við 970 þús. kr. Til-
lagan eykur ráðstöfunartekjur um 70% skatt-
greiðenda, sérstaklega þeirra sem eru á lág-
um launum á vinnumarkaði eða á lífeyri.
Þarf að spyrja að því hvort það sé sann-
gjarnt og eðlilegt á toppi hagsveiflunnar að
allir fái að njóta ávaxtanna? Mér finnst ótrúlega dapurt
hvað sjálftaka, einkavina- og græðgisvæðing heldur
stöðugt völdum. Við lærum ekki einu sinni af hruninu
fyrir 10 árum.
Hver skyldi svo meðferð málsins verða fyrir þinginu?
Ætli það verði í takti við meðferð þingsins á afnámi
krónu á móti krónu skerðinga á öryrkja? Í takti við af-
nám frítekjumarks á launatekjur eldri borgara, sem var
svæft í nefnd á síðasta löggjafarþingi?
Ég efa ekki að meðferðin verður nákvæmlega í takti
við það, þrátt fyrir fögur fyrirheit stjórnarflokkanna í
síðustu kosningabaráttu.
Inga Sæland
Pistill
300.000 kr. á mánuði án skerðinga
Höfundur er alþingismaður og formaður Flokks fólksins.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
Í greinargerð Hafrannsókna-
stofnunar með umsögn um
stærðarmörk fiskiskipa segir:
„Takmarkanir á stærð fiski-
skipa eru ekki öflug stjórn-
tæki við fiskveiðistjórnun.
Útfrá fiskifræði sem og
náttúruverndarsjónarmiðum
eru takmarkanir á stærð og
gerð veiðarfæra, ásamt
svæðalokunum öflugri stjórn-
tæki.
Í mörgum tilfellum er betra
að nota stærri skip til veiða
þar sem orkunotkun fyrir gef-
inn afla getur verið minni.
Jafnframt er aðstaða um
borð, bæði fyrir áhöfn sem
fyrir vinnslu og geymslu afla
oft betri í stærri skipum. Þá
eru stærri skip yfirleitt örugg-
ari en minni.
Oftast hafa reglur um
stærðarmörk veiðiskipa verið
settar til að koma í veg fyrir
hagsmunaárekstra ólíkra
flota/útgerða en ekki útfrá
fiskverndarsjónarmiðum.“
Oft betra
að skipin
séu stærri
HAFRANNSÓKNASTOFNUN