Morgunblaðið - 03.03.2018, Qupperneq 25
óróleiki og aðrir krankleikar voru
að herja á drenginn. Ef aðrir fjöl-
skyldumeðlimir voru illa fyrir-
kallaðir, verkjaðir eða einhver
ónot í gangi, þá var hún mætt á
svæðið með olíurnar sínar og tók
okkur í dásamlegt svæðanudd,
heilun eða í slökun, sem endaði
með að við steinsofnuðum eftir
meðferðina og við kölluðum það
að nú hefði gamla slegið okkur út.
Elsku Hrefna mín, ég get ekki
komið orðum að hversu þakklát
ég er fyrir þennan tíma sem við
áttum saman. Þrettán ár eru ekki
ýkja langur tími, en gríðarlega
dýrmætur. Þú varst stórkostleg
kona í mínum augum og ég dáðist
að eljunni í þér við hvert við-
fangsefnið sem þú tókst þér fyrir
hendur. Nú hefur þú fengið hina
eilífu hvíld og ég kveð þig með
tárum, virðingu og hlýju í hjarta.
Þín tengdadóttir,
Ingunn Björnsdóttir.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Nú hefur hún Hrefna, yngsta
systir mín, kvatt þennan heim.
Við vorum 12 systkinin sem
fæddumst á Vestdalseyrinni við
Seyðisfjörð, á árunum 1922-1939,
fimm systur og sjö bræður og var
hún Hrefna sú yngsta af hópnum.
Við tvær vorum mikið saman
sem litlar hnátur og elti hún mig
um allt þar sem ég var fjórum ár-
um eldri en hún. Mamma okkar
veiktist þegar ég var u.þ.b. átta
ára gömul og þá tvístraðist systk-
inahópurinn um tíma, en Hrefna
dvaldi heima við.
Við Hrefna vorum alla tíð mjög
tengdar, og leituðum mikið hvor
til annarrar bæði í blíðu og stríðu.
Hún var bráðmyndarleg hún
Hrefna, listræn og sköpunargleði
hennar mikil. Til að mynda þá
heklaði hún á okkur báðar alveg
gullfallegar dragtir auk margs
annars sem hún afkastaði í öðru
handverki og listsköpun. Hrefna
var mjög skemmtileg og hafði al-
veg einstaka nærveru, hún lærði
svæðanudd og heitu höndunum
hennar og samkenndinni deildi
hún með sínu samferðafólki.
Við Hrefna ferðuðumst tals-
vert saman, m.a. fórum við tvisv-
ar til Þýskalands og áttum þar
dásamlegar og uppbyggjandi
stundir, bæði fyrir sál og líkama.
Einnig ferðuðumst við líka með
hinum systrunum og fórum í
ógleymanlegar ferðir þar sem
mikið var sungið, dansað og hleg-
ið. Það eru forréttindi að eiga
svona frábærar minningar um
systur mínar, allar sem eina, og
fyrir það er ég þakklát.
Hrefna lærði til félagsliða og
sinnti eldri borgurum á Afla-
granda síðustu starfsárin sín.
Mikil var eftirsjáin hjá því fólki
þegar hún veiktist og varð að
hætta störfum. Lífið var ekki allt-
af einfalt hjá Hrefnu, en alltaf var
hún samt tilbúin að vera til staðar
fyrir aðra.
Elsku Hrefna mín, nú hefur þú
fengið að losna úr viðjum veik-
inda, eins og segir í ljóðinu og
gleðst ég mjög yfir því. Án nokk-
urs vafa var vel tekið á móti þér,
af þeim sem gengnir eru af hópn-
um okkar, og svei mér ef ég heyri
ekki óma hlátrasköll til mín hing-
að.
Kæra fjölskylda, ég votta ykk-
ur mína innilegustu samúð. Guð
styðji ykkur í sorg ykkar og lífinu
öllu.
Helga systir.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2018 25
Fundir/Mannfagnaðir
Félag sjálfstæðismanna
vestur- og miðbæ
Fundur
Birgir Ármannsson
alþingismaður ræðir stjórn-
málaviðhorfið á opnum fundi
Félags sjálfstæðismanna
vestur- og miðbæ, miðviku-
daginn 3. október kl. 18:00.
Fundurinn verður haldinn að Lækjargötu 2,
annarri hæð.
Allir velkomnir.
Stjórnin
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. Foreldramorgnar kl. 9.30-
11.30. Jóga 60+ kl. 12.30-13.30. Söngstund kl. 13.45-14.30. Bókaspjall
með Hrafni, gestur er Illugi Jökulsson, kl. 15-16. Kaffi kl. 14.30-15.20.
Árbæjarkirkja Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12 og léttur hádegisverður
á eftir gegn vægu gjaldi. Opið hús, félagsstarf fullorðinna í safnaðar-
heimili kirkjunnar frá kl.13 til kl.16. Þar verður að venju stólaleikfimi
fyrir þá sem vilja kl.13.30. Eigum síðan notalega stund yfir kaffibolla
og spjalli. Allir velkomnir.
Árskógar Handavinna með leiðbeinanda kl. 9-16. Opin smíðastofa
kl. 9-16. Stóladans með Þóreyju kl. 10. Opið hús, t.d. vist og brids kl.
13-16. Opið fyrir úti- og innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffi-
sala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. S. 535-2700.
Boðinn Handavinnustofa opin frá kl. 9-15. Vatnsleikfimi kl. 14.30.
Leshópur kl. 15.
Breiðholtskirkja Eldri borgara starf kl. 13.15, í Breiðholtskirkju,
,,Maður er manns gaman". Allir hjartanlega velkomnir.
Bústaðakirkja Félagasstarfið hefst kl. 12 með tónleikum í hádeginu,
Jónas Þórir og Gréta Salome stíga á stokk. Þetta er byrjun á lista-
mánuði Bústaðakirkju sem verður í október. Súpa á eftir í safnaðarsal
og félagsstarfið heldur svo áfram til kl. 16 eins og vant er. Hlökkum til
að sjá ykkur sem flest, starfsfólk Bústaðakirkju.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Morgunkaffi kl. 9-10, bókband kl. 9-13,
postulínsmálun kl. 9-12, tölvu- og snjallsímaaðstoð kl. 10-11, bókband
kl. 13-17, frjáls spilamennska kl. 13-16.30, myndlist kl. 13.30-16.30,
dansleikur með Vitatorgsbandinu kl. 14-15, söguhópur kl. 15.30-16.15.
Síðasti séns að skrá sig í haustferðina. Farið verður á Eldfjallasetrið á
Hvolsvelli fimmtudaginn 11. október kl. 12.30. Verð 5.800 kr. með kaffi
og meðlæti. Allir velkomnir með. Uppl. í síma 4119450.
Garðabær Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 7.30 /15. Kvennaleikfimi Sjálandi
kl. 9.30. Liðsstyrkur Sjálandi kl. 10.15. Kvennaleikfimi Ásgarði kl. 11.30.
Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Brids í Jónshúsi kl. 13. Leir í
Kirkjuhvoli kl. 13. Smiðja Kirkjuhvoli opnuð kl. 10. Allir velkomnir.
Gerðuberg Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Útskurður með leið-
beinanda kl. 9-12. Leikfimi Helgu Ben kl. 11-11.30. Útskurður / pappa-
módel með leiðbeinanda kl. 13-16. Félagsvist kl. 13-16. Velkomin.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 byrjenda-botsía, kl. 9.30 glerlist, kl.
13 félagsvist, kl. 13 postulínsmálun.
Grensáskirkja Samverustund eldri borgara í Grensáskirkju kl. 14.
Helgistund, upplestur o.fl. Kaffiveitingar. Verið hjartanlega velkomin.
Guðríðarkirkja Kl. 12 bænastund og söngur með sr. Karli V. Matt-
híassyni og Hrönn Helgadóttur. Síðan verður sviðaveisla í safnaðar-
heimilinu (reykt foldakjöt fyrir þá sem borða ekki svið). Reynir Jónas-
son harmonikkuleikari kemur og leikur fyrir okkur. Matur kostar kr.
1200. Hlökkum til að sjá ykkur, sr. Karl, Hrönn og Lovísa.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Útskurður með leiðbeinanda kl. 9-12, 500 kr. skiptið, allir velkomnir.
Opin handavinna kl. 9-14. Hádegismatur kl. 11.30.
Hraunsel Bókmenntaklúbbur kl. 10 aðra hverja viku, línudans kl. 11,
bingó kl. 13, handverk kl. 13, Gaflarakórinn kl. 16.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, jóga með Carynu kl. 9,
útvarpsleikfimi kl. 9.45, zumba og leikfimi með Carynu kl. 10 og
hádegismatur kl. 11.30. Handavinna kl. 13, liðleiki á stólum og slökun
með Önnu kl. 13.15, línudans með Ingu kl. 13.30 og eftirmiðdagskaffi
kl. 14.30.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Fimmtudagur 4. október kl. 12,
eldri borgarar koma saman og eiga notalega stund. Súpa og brauð,
söngur og hugvekja. Allir eldri borgarar eru innilega velkomnir.
Hæðargarður 31 Opnað kl. 8.50. Við hringborðið kl. 8.50, boðið upp
á kaffi. Ljóðahópur Soffíu kl. 9.45-11.30, línudans með Ingu kl. 10-
11.15, hádegismatur kl. 11.30 (panta þarf fyrir kl. 9 samdægurs),
hádegismatur kl. 11.30. Zumabaleikfimi með Auði kl. 13-13.50, kaffi kl.
14.30, tálgun með Valdóri kl. 13.30-16. Allir velkomnir, óháð aldri.
Nánari uppl. í s. 411-2790.
Korpúlfar Glerlistanámskeið hefst kl. 9, gönguhópar kl. 10 frá Borg-
um, stjórnar- og nefndarfundur Korpúlfa kl. 10 og gaman saman í
Borgum kl. 13, sýndar verða Stiklur Gísli í Uppsölum undir stjórn
kvikmyndastjóra Korpúlfa. Haustfagnaður Korpúlfa í Borgum, húsið
opnað kl. 18, matur frá eldhúsi Sælkerans, skemmtiatriði og dans.
Muna aðgöngumiða sem einnig er happadrætti. Góða skemmtun.
Seltjarnarnes Gler og glerbræðsla á neðri hæð Félagsheimilisins kl.
9 og 13. Leir Skólabraut kl. 9. Botsía Skólabraut kl. 10. Kaffispjall í
króknum kl. 10.30. Kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12. Timburmenn Val-
húsaskóla kl. 13. Handavinna Skólabraut kl. 13. Vatnsleikfimi í sund-
lauginni kl. 18.40.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-16. Heitt á
könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30-12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Handavinnuhópur
hittist kl. 13. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30-15.30. Allir vel-
komnir. Síminn í Selinu er 568-2586.
Stangarhylur 4 Göngu-Hrólfar ganga frá Ásgarði, Stangarhyl 4, kl.
10. Söngfélag FEB, kóræfing kl. 16.30, stjórnandi Gylfi Gunnarsson.
Nýtt 8 vikna zumba gold námskeið fyrir styttra komna / byrjendur kl.
9.45-10.30 á mánu- og fimmtudögum. Hefst 15. október. Skráning á
feb@feb.is . Árið 1961 – með augun háskólanema í dag, mánudaginn
8. október kl. 13.15 í Stangarhyl – bara mæta og vera með.Tónlist,
tískusýning og umfjöllun.
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur,
fyrir veturinn
og tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Nissan Almera 2000
Verðhugmynd 250þ, tilboð skoðuð.
Skoðaður án athugasemda til 2019.
Keyrður 187þ.
Frekari upplýsingar í s. 693 2886
Bílar
Smá- og raðauglýsingar
Dreifingardeild Morgun-
blaðsins leitar að
dugmiklu fólki 13 ára og
eldra, til að bera út blöð.
Blaðburður fer fram mánudaga
til laugardaga og þarf að vera
lokið fyrir kl. 7 á morgnana.
Allar nánari upplýsingar
í síma 569 1440
eða dreifing@mbl.is
Hafðu samband í dag
og byrjaðu launaða
líkamsrækt
strax á morgun.
www.mbl.is/laushverfi
Hressandi
morgunganga