Morgunblaðið - 03.03.2018, Side 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2018
Verið velkomin í verslun okkar
Opið virka daga kl. 8:30–17:00
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
MIKILVÆGUR
STUÐNINGUR
Bjóðum mikið úrval af vönduðum stuðningshlífum á góðu verði.
Kíktu til okkar og við aðstoðum þig við að finna réttu lausnina fyrir þig.
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Nú verður þú að sinna eigin málum,
því þú getur ekki stólað á það að aðrir sjái um
þau. Notaðu tímann til samstarfs við aðra og
farðu jafnvel í ferðalag með einhverjum.
20. apríl - 20. maí
Naut Þeir eru margir sem vilja ná athygli þinni
en þú veist vel að ekki er hægt að gera svo öll-
um líki. Leitaðu að kjarnanum, ekki síst í mál-
um sem viðkoma fjölskyldunni.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það eru svo mörg tilboð í gangi í
kring um þig, að þú mátt hafa þig allan við að
henda reiður á þeim. Mundu að hafa eðlilega
fyrirvara á öllu sem þú sérð og heyrir.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ert menningarlega sinnaður þessa
dagana og skalt skoða hvað er í boði og njóta
þess sem best þú getur. Brjóttu upp gráma
hversdagsins og settu lit á dag þinna nánustu.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú munt eiga mikilvægar samræður við
fjölskyldu þína og vini á næstu vikum. Kynntu
mál þitt af hógværð og þá færðu fólk til að
hlusta á þig.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú ert gæddur góðum hæfileikum en
hefur ekki nægilegt sjálfstraust til að nýta þér
þá. Þótt þér séu allir vegir færir þarft þú eins
og aðrir að fá hrós og uppörvun af og til.
23. sept. - 22. okt.
Vog Einhver öfund gæti komið upp í sam-
skiptum svo þú mátt gæta þess að bregðast
ekki of harkalega við. Láttu úrtölur vinnufélaga
ekki draga úr þér kjarkinn, þú ert á réttri leið.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Leitaðu leiða til að auka tekjur
þínar og finndu kjark til að gera hugmyndir
þínar að veruleika. Hið óvænta gerir vart við
sig í samskiptum þínum við aðra í dag.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Eitthvað fer illa fyrir brjóstið á þér
og þú þarft að halda sjálfsstjórn. Taktu þér
tíma til þess að sjá hvernig landið liggur og
taktu svo til þinna ráða.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú átt auðvelt með að vera heillandi
og samvinnufús í dag. Leyfðu öðrum að njóta
sín eins og þú vilt fá að njóta þín sjálfur. Hafðu
samt allan vara á þér.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú þarft að búa þig undir breyt-
ingar á vinnustað þínum og þarft að tileinka
þér ný vinnubrögð. Það er létt að missa stjórn
á sér út af smávægilegum hlutum.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú hefur sterka löngun til þess að ræða
við yfirmenn þína eða aðrar mikilvægar per-
sónur í dag. Þér verður hrósað fyrir árangur
þinn í starfi og átt það svo fyllilega skilið.
Hér verður fram haldið meðhugleiðingar Ólafs Stefáns-
sonar þar sem Þormóður í Gvendar-
eyjum lýsir allri sjóferðinni þegar
hann er búinn að tíunda nísku Bárð-
ar í fyrstu sex erindunum. Segir nú
ekki meira af Bárði, en aðeins af
Þorvarði syni hans, sem var ung-
lingurinn í sjóferðinni frægu. Hann
gerðist prestur og hlaut gott kvon-
fang, hélt Kvíabekk og þar andaðist
kona hans 1743. Tók þá prestur
fljótlega vinnukonu sína, blásnauða,
fyrir konu. Um það var kveðið:
Misjafnt hefur gæfan gang,
girðir hún suma banni.
Nú er Lauga lögst í fang
á lærðum kennimanni.
Og enn fór vísa af stað, er Lauga
eignaðist fyrsta barnið of snemma.
Í Ólafsfirði fundið var
fréttaefni valið.
Kvíabekkjarkvígan bar
kálfinum fyrir talið.
Þorvarður prestur var kallaður
göldróttur og komst það orð oft á
menn, ekki síst presta, sem höfðu
áhuga og einhverja kunnáttu í nátt-
úrufræðum. Hann átti að hafa vakið
upp danskan ungling, sem hafði
drukknað. Sá var kallaður Eiríkur
góði.
Til marks um að sr. Þorvarður
hefði vakið upp drauginn Eirík er
vísa sem ort var til Stígs sonar
prests.
Ertu bróðir Eiríks góða
upp sem vakti faðir þinn?
Áttu von á arfagróða
eftir þrælinn, Stígur minn?
Svona geta sagnir, sannar eða
lognar, geymst í snjöllum vísum.“
Pétur Stefánsson sagði frá því á
Leir fyrir helgi að hann hefði að
undanförnu verið að fylla frysti-
kistuna af allskyns góðgæti fyrir
veturinn:
Ég á nóg að brenna og bíta,
birgðastaðan virðist fín.
Í frystinum er ljúft að líta
á lömbin, kjúlla, naut og svín.
Björn Ingólfsson svaraði:
Full er kælikistan þín,
keti fyllt er smuga hvur:
Hani, krummi, hundur, svín,
hestur mús og tittlingur.
Og Ólafur Stefánsson:
Mörg er gjöf af guði léð,
jafnt grís og kálfur.
Kaupir þú á fæti féð
og fargar sjálfur ?
Alltaf gott að heyra bjartan tón, –
Magnús Geir Guðmundsson yrkir:
Þó út vetur brjótist brátt,
brjálað gerist veður.
Sunna enn á himni hátt,
hjarta mannsins gleður.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Enn fór vísa af stað
„HVERSU STÓR ER LÍKAMINN?“ „ÉG GAF VITLAUSUM KÚNNA SAMLOKUNA ÞÍNA. VILTU HANA SAMT ENNÞÁ?“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar þú grætur af
gleði yfir bréfinu hans.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
EFTIR ÞVÍ SEM ÉG
ELDIST VERÐ ÉG GÁFAÐRI
AF HVERJU ERU EKKI BÚNIR
TIL BÍLAR ÚR PAPPA?
EÐA AÐRIR VERÐA
HEIMSKARI
REISIÐ
HRÓLF
VIÐ!
ÞETTA ER
REISUGILLI
AÐ MÍNU
SKAPI!
Leikarinn Valur Freyr Einarssonhefur lengi verið í miklum met-
um hjá Víkverja. Hann leikur nú í
leikritinu Allt sem er frábært eftir
enska leikskáldið Duncan Macmill-
an. Víkverji ætlar ekki að gera lítið
úr því að standa á stóru sviði fyrir
framan hundruð áhorfenda, en hon-
um finnst þó mun meira til koma
þegar leikari stendur umkringdur
áhorfendum, sem eru í seilingar-
fjarlægð, og þarf einn síns liðs að
halda sýningu gangandi í eina og
hálfa klukkustund líkt og í þessu
verki Macmillans.
x x x
Verkið er heldur ekki árennilegt.Það fjallar um baráttuna við lífs-
leiðann, dapurleikann og hugleið-
ingar um að svipta sig lífi. Efnið er
sett fram í formi uppistands þar sem
sögupersónan rekur hvernig erfið-
leikar móður hans hafa markað ævi
hans frá barnæsku.
x x x
Sýningin er þó ekki eintal, heldurdregur Valur Freyr áhorfendur
inn í sýninguna og fær þá til að vera
með. Íslendingar eru ekki þekktir
fyrir að vera æstir í að stökkva fram
í sviðsljósið óundirbúnir, sérstaklega
ekki bláedrú, en Vali Frey tekst með
einstöku næmi sínu og þægilegri
nærveru að láta áhorfendum líða
eins og þeir séu heima í stofu. Ekki
var nóg með að hann fengi áhorf-
endur til að koma út úr skelinni á
þeirri sýningu sem Víkverji sá held-
ur stóðu þeir sig með mikilli prýði.
x x x
Í sýningunni er fjallað um erfitt málaf hispursleysi. Það er ekki reynt
að finna ódýrar lausnir og um leið
vakin athygli á því hugsunarleysi,
sem iðulega einkennir umfjöllun um
sjálfsvíg. Í þeim efnum hvílir ekki lít-
il ábyrgð á fjölmiðlum.
x x x
Skilaboð leikritsins eru að samahvað svartnættið er mikið er um
að gera að þrauka. Aðrir ganga í
gegnum það sama og það er hægt að
ná landi. Og aldrei má gleyma öllu
því sem er frábært, allt frá því að fá
sér ís með dýfu til þess að drekka
kók með lakkrísröri. vikverji@mbl.is
Víkverji
Finnið og sjáið að Drottinn er góður,
sæll er sá maður sem leitar hælis hjá
honum.
(Sálm: 34.9)