Morgunblaðið - 03.03.2018, Page 30

Morgunblaðið - 03.03.2018, Page 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2018 Íslenskt einangrunargler í nýbygginguna, sumarbústaðinn eða stofugluggann. Fagleg ráðgjöf og öruggur afhendingartími. Smiðjuvegi 2, Kópavogi – sími 4889000– samverk.is Gunnar Kvaran sellóleikari og Haukur Guðlaugsson orgelleikari halda styrktartónleika í Hljóðbergi Hannesarholts í kvöld kl. 20. „Þeir félagar gefa vinnu sína og afrakstur miðasölu rennur alfarið til starfsemi Hannesarholts sjálfs- eignarstofnunar. Báðir eru þeir margverðlaunaðir tónlistarmenn sem hafa helgað líf sitt listagyðj- unni. Hannesarholt kann þeim alúðarþakkir fyrir stuðninginn.“ Miðar eru seldir á tix.is og við inn- ganginn. Styrktartónleikar í Hannesarholti Hollvinir Hannesarholts Haukur Guð- laugsson og Gunnar Kvaran. Sabina Wester- holm frá Finn- landi verður nýr forstjóri Nor- ræna hússins í Reykjavík frá og með janúar 2019. Hún tekur við stöðunni af Mikk- el Harder Munck-Hansen sem gegnt hefur starfinu síðustu fjögur ár. „Ég vil að Norræna húsið sé vettvangur umræðna um málefni sem eru efst á baugi í norrænu tilliti. Mitt mark- mið er að koma á fót verkefna- heildum um þemu og þvert á list- greinar auk hágæða dagskrár fyrir börn og ungmenni,“ segir Sabina Westerholm í tilkynningu. Þar kemur fram að Westerholm var áð- ur framkvæmdastjóri í Stiftelsen Pro Artibus sem hefur að markmiði að styðja myndlist á svæðum í Finn- landi þar sem töluð er sænska. Hún gegnir trúnaðarstörfum fyrir Hanaholmen og Frame Contempor- ary Art Finland. Nýr forstjóri Norræna hússins Sabina Westerholm „Það er mikill áfangi að hljóta svona góðan styrk og frábært fyrir sjálf- stæðan leikhóp. Þetta veitir okkur mikilvægt tækifæri til að kynna okkur fyrir heiminum og kynnast leikhúsum í öðrum löndum,“ segir Halldóra Rut Baldursdóttir leik- kona hjá leikhópnum RaTaTam sem nýverið hlaut ásamt þremur öðrum leikhópum stóran Evrópustyrk til næstu þriggja ára vegna verkefnis sem nefnist Shaking the Walls. „Verkefnið er leitt af Shake- speare-leikhúsinu í Gdansk í Pól- landi, en aðrir þátttakendur eru Parrabola leikhúsið frá Donegal á Írlandi, Cooltour frá London og An Grianán leikhúsið í Ostrava í Tékk- landi. Shaking the Walls gengur út á að hvert leikhús skilgreini málefni í sínu heimalandi sem þarfnast um- fjöllunar, setji upp sýningu og standi fyrir umræðum. Að loknum sýningum í heimalandinu fara hóp- arnir með sýningarnar sínar til ann- arra þátttökulanda,“ segir Hall- dóra. Framlag RaTaTam til verkefnisins er uppfærsla hópsins á Suss! sem frumsýnd var í Tjarnar- bíói fyrir tæpum tveimur árum og unnin var upp úr viðtölum við þol- endur og gerendur heimilisofbeldis sem og við aðstandendur og fag- aðila. „Umræðan um heimilisofbeldi er svo sannarlega þörf hér sem ann- arsstaðar,“ segir Halldóra Rut og bendir á að RaTaTam sýni upp- færsluna í Ostrava árið 2019 og til Gdansk í Póllandi 2020. En fyrst liggur leiðin til Færeyja síðar í þessum mánuði. „Við fengum á sín- um tíma Norðurlandastyrk sem gerði okkur kleift að sýna upp- færsluna víðs vegar á Norðurlönd- unum. Sem dæmi tókum við þátt í virtri leiklistarhátíð í Kaupmanna- höfn fyrr á árinu og hlutum mjög góðar viðtökur við Suss!“ RaTaTam sýnir ekki aðeins Suss! um þessar mundir því hópurinn hóf nýverið sýningar á Ahhh… í Tjarn- arbíói vegna fjölda áskorana. Ahhh… er unnin upp úr skáldheimi Elísabetar Kristínar Jökulsdóttur. Næstu sýningar verða 5. og 14. október. Þess má að lokum geta að Suss! ratar aftur á svið hérlendis síðar á þessu ári eða í byrjun þess næsta í samstarfi við fagaðila sem hafa með heimilisofbeldi að gera á einn eða annan hátt. Rautt Úr sýningu RaTaTam á Ahhh… sem sýnd er í Tjarnarbíói. RaTaTam á ferð og flugi Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Ég er spenntur fyrir útgáfu- tónleikunum á disknum Travelling through cultures, sem fram fara í Björtuloftum í Hörpu í kvöld. Björtuloft er lítill salur þar sem fram fer starfsemi jass- og heims- tónlistarklúbbs.Útsýnið frá Björtu- loftum yfir höfnina er guðdómlegt og ég lofa kósý og skemmtilegum tónleikum,“ segir Ásgeir Ásgeirsson tónskáld og tón- listarmaður sem gefur út sinn annan geisladisk með íslenskum þjóðlögum í nýj- um búningi. „Fyrir nokkr- um árum síðan ákvað ég að fara í ferðalag með íslensk þjóðlög og stækka þau. Í grunninn eru lögin stutt en með því að semja við þau laglínu, spunakafla og forspil gat ég stækkað lögin, farið með þau til út- landa og látið erlenda tónlist- armenn spila lögin sem við það fá algjörlega nýjan blæ með nýjum töktum og nýrri lögun,“ segir Ás- geir sem tók fyrri diskinn upp með tyrkneskum tónlistarmönnum en diskurinn sem kemur út nú er tek- inn upp með búlgörskum tónlist- armönnum. Átta lög eru á disknum. Haukur Gröndal leikur á klarinett í laginu „Af hættu hyggðadjúpi“ og Sigríður Thorlacius syngur í lögunum, „Krummi svaf í klettagjá“ „Krummi krunkar úti“ „Ríðum, ríðum, rekum yfir sandinn“ og „Einn herra best ég ætti/Góða skemmtun gjöra skal.“ Önnur lög „Ljósið kemur langt og mjótt/Heyri ég hljóm“ „Nowruz“ „Af hættu hryggðardjúpi“ og „Eilíft líf er æskilegt“ eru instrumental þ.e.a.s lög án söngs. „Þegar ég set upp disk þá velti ég því fyrir mér í hvaða tónalit ég ætla að hafa hann. Hvort hann eigi að vera sorglegur eða glaðlegur. Ég hugsa mikið um að textinn sé inni- haldsríkur og laglínan tali til mín. Að hún sé eitthvað sem grípi mann. Þegar þetta er allt komið þá hefjast útsetningar og laglínuskrif við upp- haflegu útsetninguna sem gera lög- in að íslensku þjóðlagi með alþjóð- legum blæ,“ segir Ásgeir sem farið hefur margar námsferðir til Grikk- lands, Búlgaríu og fleiri landa. „Ég hef kynnst mörgum tónlist- armönnum á ferðum mínum og á disknum spilar m.a. indverskur slagverksleikari, grískur bouzouki leikari og búlgarskur harmóníku- leikari. Sigríður syngur á íslensku og ég spila á á austurlenska gítara,“ segir Ásgeir sem er ánægður með austrænan blæ disksins. Þetta er ný nálgun og ég veit ekki til þess að íslensk þjóðlög hafi verið blönduð á slíkan hátt áður. Sigríður Thorla- cius söng á fyrri disknum, Two si- des of Europe og hún syngur að sjálfsögðu á nýja disknum. Það seg- ir sig sjálft, hún er það góð og það er styrkur að hafa sama söngvara á báðum diskunum,“ segir Ásgeir sem heyrði rödd Sigríðar fyrir sér við útsetningar á lögunum. Á útgáfutónleikunum í Björtu- loftum ætlar Ásgeir að árita og selja diskinn. Hann segir að hann hafi þá tilfinningu að fólk sé að snúa sér aftur að því hlusta á geisladiska. „Við tónlistarmenn seljum býsna mikið af diskum á tónleikum þar sem við áritum þá persónulega til fólks. Ef áheyrendur eru ánægðir með það sem þeir upplifa á tónleik- unum þá kaupa þeir diska,“ segir Ásgeir og bendir á að tónleikasókn Íslendinga hafi aldrei verið meiri og fólk kaupi það sem sé nýtt og spennandi. Ásgeir sem er tónlistarkennari segist vilja sýna gott fordæmi og kynna sér og fyrir öðrum öðruvísi hljóðfæri. Sjálfur lærir hann nú á alls konar gríska og arabíska gít- ara. Ásgeir segir Tyrki eiga alls konar tegundir af gíturum og borð- hörpum og Búlgarar spila öðruvísi á harmóníku en Íslendingar. „Það er einstakt tækifæri til þess að heyra Búlgara spila á harmóníku í Björtuloftum í kvöld kl. 21.00. Aðrir hljóðfæraleikarar á útgáfu- tónleikunum eru íslenskir.Vegna anna í hinum og þessum tónlistar- verkefnum á ég ekki von á því að geta haldið tónleika með þessum tónlistarmönnum á næstunni,“ segir Ásgeir sem hvetur tónleikagesti til þess að mæta snemma. Hann von- ast til þess að fylla Björtuloft og lofar hörku stemmingu, fjöri og drama þegar íslensku þjóðlögin koma aftur heim úr ferðalagi frá austurheimi. Ljósmynd/Benzo Þjóðlög í framandi löndum  Ásgeir Ásgeirsson lofar kósý og skemmtilegum útgáfutónleikum Travelling through cultures í Björtuloftum  Stækkaði þjóðlögin og fór með þau í ferðalag Framandi Ásgeir Ás- geirsson spilar á gítara frá fjarlægum löndum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.