Morgunblaðið - 16.10.2018, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 16.10.2018, Qupperneq 1
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu varð að sætta sig við sinn þriðja ósigur í Þjóðadeild UEFA gegn Sviss á Laugardalsvellinum í gærkvöld, 1:2. Litlu munaði þó að liðinu tækist að jafna í lokin eftir stórskotahríð að marki Svisslendinga. Úrslitin þýða að Ísland verður í B-deild í næstu keppni og þarf nú að sigra Belga á útivelli til að eiga möguleika á að kom- ast í efsta styrkleikaflokk fyrir dráttinn í undankeppni EM. » Íþróttir Stórskotahríð í lokin ekki nóg gegn Sviss Þ R I Ð J U D A G U R 1 6. O K T Ó B E R 2 0 1 8 Stofnað 1913  243. tölublað  106. árgangur  URRANDI SPORTBÍLL Í DULARGERVI BYGGT Í SÁTT VIÐ NÁTTÚRUNA HÆTTI ALDREI AÐ TEIKNA OG SKISSAR DÖGUM SAMAN LÆRIR TORFHÚSAGERÐ 12 BENJAMIN CHAUD 30BÍLAR 16 SÍÐUR N1 kortið færir þér bæði afslátt og punkta Notaðu N1 punktana ...til að lækka verðið á nýjum Michelin dekkjum Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Mikil framúrkeyrsla Félagsbústaða við viðhald á fjölbýlishúsinu Íra- bakka 2-16 er þriðja málið af því tagi sem upp kemur á stuttum tíma hjá Reykjavíkurborg. Hin eru mikill kostnaður við breytingar á biðstöð Strætó á Hlemmi í Mathöll og end- urbætur á bragganum í Nauthólsvík. Framúrkeyrsla við þessi þrjú verkefni nemur samtals tæpum 800 milljónum króna. Í skýrslu innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar kemur fram að upphaflega átti að fara í viðhald á Írabakkahúsinu upp á 44 milljónir. Kom í ljós að gera þurfti meira og samþykkti stjórnin framkvæmdir upp á tæpar 400 milljónir á fjórum árum. Heildarkostnaðurinn varð hins vegar 728 milljónir kr. Fram- kvæmdastjórinn sagði af sér í kjöl- farið. Borgarfulltrúi Flokks fólksins hefur óskað eftir því að formaður stjórnar segi einnig af sér en hann hafnar því. Frumkostnaður við Hlemm Mat- höll var 107 milljónir en heildar- kostnaður varð 308 milljónir. Vara- borgarfulltrúi Miðflokksins leggur til í borgarstjórn í dag að gerð verði óháð rannsókn á ástæðum þess að kostnaður fór svona mikið fram úr áætlunum. Upphafleg áætlun um endurbætur á bragganum við Naut- hólsveg hljóðaði upp á um 150 millj- ónir kr. en kostnaður er nú kominn í 415 milljónir og verkinu ekki lokið. Fulltrúar úr minnihlutanum hafa krafist afsagnar borgarstjóra. 800 milljóna framúrkeyrsla  Kostnaður við þrjú verkefni á vegum Reykjavíkurborgar og dótturfélags hefur farið langt fram úr kostnaðaráætlunum og samþykktum fjárveitingum MKrefst afsagnar ... »2 Reykjanesbær hefur hafnað beiðni Útlendingastofnunar um að veita fleiri hælisleitendum þjónustu og þar með að stækka núgildandi samn- ing bæjarins við stofnunina. Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri segir að bærinn hafi ekki verið tilbúinn að verða við beiðninni vegna þess að íbúum hafi fjölgað mikið auk þess sem svæðið sé „mettað af hælisleit- endum“. Hann segir að bærinn þjón- usti allt að 70 til 80 hælisleitendur á hverjum tíma og leggi áherslu á fjöl- skyldufólk. „Við erum að axla ábyrgð á þessu verkefni,“ segir Kjartan. „Íbúum hefur fjölgað svo mikið, allir skólar og leikskólar eru orðnir fullir. Þannig að við vildum ekki taka áhættuna og taka við allt of mörgum hælisleitendum.“ Samningur Reykjanesbæjar og Útlendingastofnunar kveður á um að stofnunin greiði bænum 7.500 kr. daggjald á sólarhring fyrir hvern hælisleitanda auk fastagjalds sem nemur 11,5 milljónum króna. »6 Segir svæðið mettað Morgunblaðið/RAX Hælisleitendur Milli 70-80 búa að jafnaði á gistiheimili í Reykjanesbæ.  Ekki fleiri hælisleit- endur í Reykjanesbæ  Frá því að fyr- irtækið Eldum rétt hóf innreið á máltíðamark- aðinn árið 2014 hefur fyrirtækið stækkað ört. Kunnugir segja máltíðamark- aðinn enn eiga eitthvað inni til þess að ná 2% af heildarmatarinn- kaupum en það er hlutfall sem markaðurinn hefur náð erlendis. Fjölmargir aðrir kostir eru í dag í boði fyrir neytendur en mat- vöruverslanir á borð við Bónus og Nettó auk fyrirtækisins Einn tveir & elda bjóða nú neytendum lausnir til að svara spurningunni hvimleiðu um hvað eigi að vera í matinn. »16 Aukin samkeppni á máltíðamarkaði Máltíð Fleiri lausn- ir eru í boði á mál- tíðamarkaðnum.  Neyðarástandið í Jemen heldur áfram að versna að mati Mann- úðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNOCHA) og er talið að fjöldi þeirra sem þurfa á hjálp að halda muni verða yfir 13 milljónir manna við árslok. Almennir borgarar þurfa að þola tíðar árásir leyniskyttna, sprengjur úr flugvélum og lenda milli stríð- andi fylkinga í skothríðum. Einnig eru tíð tilfelli mannrána, nauðgana og fangelsana án dóms og laga. Dauði barna er orðinn svo al- gengur að sumstaðar hafa verið reistir sérstakir kirkjugarðar ætl- aðir börnum, eins og í Saada-héraði. Í landinu lætur barn yngra en fimm ára lífið á tíu mínútna fresti. Á fundi í Genf í vor lýsti fram- kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, Antonio Guterres, því yfir að „í Jem- en ríkir mesta neyðarástand í heim- inum. Nú þegar átökin hafa staðið yfir á fjórða ár, eru meiri en 22 milljónir manna, tveir þriðju íbú- anna, sem þurfa neyðaraðstoð og vernd.“ Yves Daccord, framkvæmdastjóri Alþjóðaráðs Rauða krossins, segir í samtali við Morgunblaðið að smærri ríki, eins og Ísland, hafi mikilvægu hlutverki að gegna. »18 Milljónir barna í mikilli hættu í Jemen AFP Hungur Gríðarlegur fjöldi barna í Jemen er alvarlega vannærður.  Ekki var kosið til nýrrar forystu Sjómannasambands Íslands á þingi sambandsins í síðustu viku. Vegna óvissu um mögulega úrsögn þriggja stórra félaga sjómanna var ákveðið að fresta stjórnarkjöri og afgreiðslu fjárhagsáætlunar þar til ákvörðun um aðild liggur fyrir. Félögin í Vestmannaeyjum, Eyja- firði og Hafnarfirði eiga í viðræðum við Sjómannafélag Íslands og Sjó- manna- og vélstjórafélag Grindavík- ur um sameiningu og yrði nýtt félag utan SSÍ og ASÍ. Starfsemi SSÍ mun dragast verulega saman verði af þessari sameiningu. Valmundur Valmundsson, for- maður SSÍ, segist stefna að því að gefa áfram kost á sér til formennsku í SSÍ. Hann segist ekki sjá að úrsögn úr SSÍ og stofnun nýs félags styrki stöðu sjómanna í landinu. »14 Óvissa um aðild og stjórnarkjöri frestað

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.