Morgunblaðið - 16.10.2018, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 16.10.2018, Blaðsíða 2
Morgunblaðið/Hari Eign Félagsbústaðir eiga margar íbúðir í fjölbýlishúsinu Írabakka 2-16 í Breiðholti. Kostnaður við viðhald fór langt fram úr áætlunum. Krefst afsagnar stjórnarformanns  Borgarfulltrúi Flokks fólksins telur ekki nóg að framkvæmdastjóri Félagsbústaða hætti  Stjórn- arformaður telur ekki rétt að hann segi af sér  Framúrkeyrsla og misfellur í rekstri Félagsbústaða Helgi Bjarnason Gunnlaugur Snær Ólafsson Formaður stjórnar Félagsbústaða hyggst ekki verða við kröfu borg- arfulltrúa Flokks fólksins um að hann segi af sér vegna framúr- keyrslu vegna viðhaldsverkefnis og misfellna í rekstri sem fram koma í skýrslu innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar. Framkvæmda- stjóri félagsins axlaði ábyrgðina og hefur látið af störfum hjá fyrirtæk- inu. Stjórn Félagsbústaða óskaði eftir því í maí 2016 að innri endurskoðun Reykjavíkurborgar gerði úttekt á starfsháttum félagsins í sambandi við stórt viðhaldsverkefni sem þá var að ljúka, viðgerð á Írabakka 2- 16, og unnið var á árunum 2012 til 2016. Vissu um misfellur Haraldur Flosi Tryggvason, for- maður stjórnar, segir að þá hafi öll- um verið ljóst að ýmislegt mætti betur fara í rekstri Félagsbústaða. Þyrfti að svara kröfum tímans um verklag. „Mér fannst þetta verkefni vera gott dæmi um það hvernig ætti ekki að gera hlutina og það gæti ver- ið kennslubókardæmi um það,“ segir Haraldur. Hann tekur fram að þetta hafi verið gert í samráði við þáver- andi framkvæmdastjóra, Auðun Frey Ingvarsson, sem tók við sem framkvæmdastjóri á árinu 2013. Auðunn var áður tvö ár í stjórninni, skipaður af þáverandi meirihluta Samfylkingarinnar og Besta flokks- ins, og formaður síðara árið, þangað til hann sagði af sér og var í kjölfarið ráðinn framkvæmdastjóri. Haraldur staðfestir það að stjórn- in hafi haft upplýsingar um misfellur í starfsháttum og að kostnaður við þessa tilteknu framkvæmd hafi farið fram úr áætlunum. Honum er ekki kunnugt um það hvort og þá með hvaða hætti fulltrúum eigenda, borgarstjóra á hverjum tíma eða staðgenglum hans, hafi verið gerð grein fyrir þessum málum. Haraldur tekur fram að síðustu árin hafi framkvæmdastjórinn unnið ötullega að breytingum, meðal ann- ars á framkvæmdadeild. Búið sé að manna deildina upp á nýtt og allar stærri framkvæmdir séu nú boðnar út í heilu lagi. Ennþá sé þó unnið að því að fínpússa ýmsa hluti. Mikil framúrkeyrsla Skýrsla um úttekt innri endur- skoðunar var kynnt stjórn Fé- lagsbústaða 3. október sl., tveimur árum og fimm mánuðum eftir að óskað var eftir henni. Þar kemur meðal annars fram að á árinu 2012 var farið af stað með viðhaldsverk- efni við fjölbýlishúsið Írabakka 2-16 sem kosta átti 44 milljónir kr. Fljót- lega kom í ljós að viðhaldsþörfin var mun meiri og samþykkti stjórnin framkvæmdir fyrir 398 milljónir á næstu fjórum árum. Að því er fram kemur í skýrslunni varð heildar- kostnaður Félagsbústaða hins vegar 728 milljónir króna, þegar upp var staðið, eða 330 milljónir umfram heimildir. Er það 83% framúr- keyrsla. Eftir að skýrslan var lögð fram sagði Auðunn Freyr starfi sínu lausu og hefur Sigrún Árnadóttir, fyrrverandi bæjarstjóri í Sandgerði, verið ráðin framkvæmdastjóri til bráðabirgða. Innri endurskoðun kom með ýms- ar tillögur til úrbóta og hyggst stjórnin ráðast í gagngerar umbæt- ur á starfsemi og innra eftirliti. Ekki rétt að hætta Haraldur Flosi kynnti fulltrúum minnihlutans málið í borgarstjórn í gær. Á þeim fundi óskaði Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins, eftir afsögn stjórnarfor- manns. „Við þurfum bara að taka þetta alla leið núna, þetta er ekkert persónulegt gagnvart honum, en þegar svona er komið dugar ekki að framkvæmdastjórinn pakki. Hann [formaðurinn] ber ábyrgð,“ segir Kolbrún. Haraldur segist sjálfur hafa spurt sig þessarar spurningar og farið yfir hana með fulltrúum eigenda, það er að segja borgarstjóra og staðgengl- um hans og öðrum stjórnarmönnum. „Það var mitt mat og okkar að það væri ekki rétt viðbragð. Mikil- vægara væri að halda áfram og koma réttu lagi á reksturinn,“ segir Haraldur Flosi. 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 2018 GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA Ertu klár fyrir veturinn? Við hreinsum úlpur, dúnúlpur, kápur og frakka Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Héraðsdómur Vestfjarða úr- skurðaði í gær- kvöldi erlendan mann í farbann til 12. nóvember að kröfu lög- reglustjórans á Vestfjörðum. Maðurinn sigldi seglskútu í heim- ildarleysi úr höfn á Ísafirði aðfaranótt sunnudags. Lögreglan yfirheyrði í gær manninn en hann var handtekinn um borð í skútunni á Rifi á Snæfellsnesi í fyrradag. Rannsókn málsins miðar vel, sam- kvæmt upplýsingum lögreglu, og var sakborningur færður fyrir Hér- aðsdóm Vestfjarða í gærkvöldi. Hvarf frönsku skútunnar Inook uppgötvaðist að morgni sunnudags. Veittu varðskipið Þór og þyrla Landhelgisgæslunnar henni eftirför og vísuðu til hafnar á Rifi. Skipstjóri skútunnar var einn um borð og var handtekinn við komuna þangað. Skútumanni gert að sæta farbanni Segl Skútunni var beint til hafnar.  Skipstjórinn handtekni er erlendur Þó að skip séu hætt að sigla um úfin höf og hafi undanfarin ár verið almenningi til sýnis og skemmtunar þarf að sinna við- haldi þeirra. Í gær var einn merkasti safngripur Sjóminja- safnsins í Reykjavík, varðskipið Óðinn, tekinn í slipp í Reykjavík- urhöfn þar sem til stendur að botnhreinsa Óðin, mála hann og kanna með öxuldrátt. Óðinn var smíðaður í Dan- mörku árið 1959, kom til landsins snemma árs 1960 og er eitt sögu- frægasta skip Íslandssögunnar. Óðinn tók þátt í öllum þremur þorskastríðunum og reyndist að auki sérlega vel sem björg- unarskip, en hann dró alls tæp- lega 200 skip til lands eða í land- var. Safngripur og þorskastríðshetja í slipp Ljósmynd/Borgarsögusafn Varðskipið Óðinn er nú botnhreinsað og málað í Reykjavíkurhöfn Varaborgarfulltrúi Miðflokksins, Baldur Borgþórsson, mun í dag flytja tillögu flokksins um að fá óháðan aðila til að rannsaka hvers vegna kostnaður við framkvæmdir við endurbætur á Hlemmi Mathöll fór langt fram úr kostnaðaráætlun. „Þetta er alveg eins og með braggann. Það er sett upp fjárhagsáætlun sem stenst ekki. Þá kemur upp sama spurningin og með braggann, af hverju er borgin að eyða tekjum sín- um í að byggja upp veitingastaði, verkefni sem venjulega er í höndum einkaaðila. Þetta er orðin stóra spurningin,“ segir Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, um ástæður tillögunnar. Frumkostnaður við Mathöllina var áætlaður 107 milljónir en heildarkostnaður varð 308 milljónir. Upphafleg áætlun fyrir braggann í Nauthólsvík gerði ráð fyrir 150 milljóna kr. kostnaði en hann er nú kominn í 415 milljónir og verk- inu ekki lokið. Af hverju að byggja veitingahús? MIÐFLOKKURINN VILL RANNSAKA KOSTNAÐ VIÐ MATHÖLL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.