Morgunblaðið - 16.10.2018, Síða 10

Morgunblaðið - 16.10.2018, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 2018 Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, telur ekki við hæfi að hún tjái sig efnislega um afdrif lágmyndar Sigurjóns Ólafs- sonar á húsinu við Síðumúla 20. Vísar ráðherra á höfundarréttar- nefnd og telur að það sé dómstóla að skera úr um hvort sæmdar- réttur hafi verið brotinn. Morgunblaðið greindi frá því á dögunum að verk Sigurjóns væri nú falið bak við klæðningu á húsinu auk þess sem gluggi hefði verið settur í gegnum verkið. Rétthöfum höfundarréttar var ekki gert viðvart að til stæði að eyðileggja verkið svo hægt væri að skrá það, taka af því mót eða grípa til annarra ráðstafana. Ekkja Sigurjóns, Birgitta Spur, sagði þennan verknað „óafturkræfa eyðileggingu“. Húsið er í eigu Eikar fasteignafélags. Telur ekki við hæfi að tjá sig Morgunblaðið sendi Lilju ítarlega fyrirspurn um málið. Var Lilja meðal annars spurð hvort hún teldi að sæmdarréttur hefði verið brotinn þegar verkið var eyðilagt, hvort hún myndi beita sér í málinu og hvort hún teldi rétt að láta kortleggja útilista- verk svo þessi saga endurtæki sig ekki. Lilja svaraði ekki fyrirspurninni í heild sinni en sendi þetta svar: „Höfundarréttur markast af ákvæðum höfundarlaga nr. 73/1972, sem hafa verið í stöðugri endur- skoðun hin síðari ár. Á grundvelli ákvæða laganna starfar höfundar- réttarnefnd sem hefur meðal annars það hlutverk að ræða höfundarrétt- armálefni sem efst eru á baugi á hverjum tíma og gera mögulegar til- lögur um breytingar á höfundar- lögum. Hér virðist á ferðinni málefni sem vert væri að höfundarréttar- nefnd tæki til umfjöllunar. Hags- munir höfunda og handhafa höfund- arréttar listaverka annars vegar og eigenda listaverka hins vegar fara ekki alltaf saman og því geta mál sem þessi komið upp. Það er þó fyrst og fremst dómstóla að skera úr um hvort sæmdarréttur hafi verið brot- inn. Það er því ekki við hæfi á þessu stigi að ráðherra tjái sig um þetta mál, ef ske kynni að það færi fyrir dómstóla.“ Dómstóla að skera úr um brot á sæmdarrétti  Menntamálaráðherra telur að höfundarréttarnefnd ætti að skoða eyðileggingu lágmyndar Sigurjóns Ólafssonar Morgunblaðið/Einar Falur Eftir Svona lítur norðurgafl Síðumúla 20 út í dag. Lágmynd Sigurjóns er falin bak við klæðningu og brotið hefur verið fyrir glugga í miðju verkinu. Morgunblaðið/Guðmundur Ingólfsson Fyrir Verk Sigurjóns Ólafssonar á vegg hússins í Síðumúla 20. LiljaAlfreðsdóttir Pétur Sigurðsson, fyrrverandi forseti Al- þýðusambands Vest- fjarða, er látinn á 87. aldursári. Pétur fæddist á Ísa- firði 18. desember 1931, sonur hjónanna Sigurðar Péturssonar vélstjóra og Gróu Bjarneyjar Salómons- dóttur húsmóður og verkakonu. Hann lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla Ísa- fjarðar 1948, vél- virkjanámi hjá vél- smiðjunni Þór hf. á Ísafirði 1957 og vélfræðiprófi frá rafmagnsdeild Vél- skólans í Reykjavík 1960. Að námi loknu starfaði hann hjá Rafmagnsveitum ríkisins á Vest- fjörðum til 1970 en frá þeim tíma var hann starfsmaður verkalýðsfélag- anna á Ísafirði og Alþýðusambands Vestfjarða og jafnframt fram- kvæmdastjóri Alþýðuhússins og Ísa- fjarðarbíós 1970-87. Pétur var forystumaður í íslenskri verkalýðshreyfingu um hálfrar aldar skeið. Hann var formaður Iðnnema- félags Ísafjarðar og síðan Félags járniðnaðarmanna á Ísafirði 1962-66 og 1968-69, var varaformaður verka- lýðsfélagsins Baldurs 1969-72 og síð- an formaður þess 1974-2002, sat í stjórn Alþýðusambands Vestfjarða (ASV) frá 1964 og forseti þess frá 1970, en með stofnun Verkalýðsfélags Vest- firðinga árið 2002 leysti félagið af hólmi hlutverk ASV. Pétur var formað- ur þess félags til 2007. Pétur sat í stjórn Verkamannasambands Íslands og í miðstjórn ASÍ um skeið, var for- maður stjórnar atvinnu- leysistryggingasjóðs og sat í framkvæmdastjórn Starfsgreinasambands Íslands. Pétur starfaði í Félagi ungra jafn- aðarmanna á Ísafirði og síðar Al- þýðuflokknum, sat í bæjarstjórn Ísafjarðar og var varaþingmaður Al- þýðuflokksins í Vestfjarðakjördæmi 1991-95. Hann var formaður stjórn- ar Rafveitu Ísafjarðar 1964-72 og sat í stjórn Togaraútgerðar Ísafjarðar meðan félagið gerði út skuttogarann Skutul ÍS. Pétur var formaður knattspyrnu- félagsins Vestra á Ísafirði 1954–77 og lék knattspyrnu með félaginu og úrvalsliði ÍBÍ í mörg ár. Eiginkona Péturs er Hjördís Hjartardóttir, fv. tryggingafulltrúi hjá sýslumannsemættinu á Ísafirði. Börn þeirra eru Sigurður og Edda. Andlát Pétur Sigurðsson Landselur, útselur og steypireyður eru á nýjum válista Náttúrufræði- stofnunar yfir íslensk spendýr. Er landselur sagður í bráðri hættu á útrýmingu, útselur tegund í hættu og steypireyður í nokkurri hættu. Ein tegund á válistanum, sand- lægja, er þegar útdauð hér á landi. Andarnefja og búrhvalur eru einn- ig á listanum en sagt að gögn vanti til að meta stöðu þeirra. Hugs- anlega gætu þær lent á válistan- um. Válistar eru skrár yfir lífveru- tegundir sem eiga undir högg að sækja eða eru taldar vera í útrým- ingarhættu í tilteknu landi eða svæði. Fram kemur í frétt frá stofn- uninni að válistaflokkun spendýra sé unnin í samræmi við hættu- flokka Alþjóðlegu náttúruverndar- samtakanna (IUCN). Alls er vitað um 52 tegundir land- og sjávar- spendýra í náttúru Íslands. Við gerð válistans var lagt mat á 18 þessara tegunda, hinar voru ekki metnar. Vegna fjölda sjávarspen- dýra var válistinn unninn í sam- vinnu við sérfræðinga Hafrann- sóknastofnunar. Á válistanum eru fjórar tegund- ir flækinga á Íslandi, blöðruselur, hvítabjörn, rostungur og sléttbak- ur. Þær eru allar á heimsválista. Tólf tegundir íslenskra spendýra sem voru metnar eru ekki taldar í hættu. Þetta eru hagamús, há- hyrningur, hnísa, hnúfubakur, hnýðingur, hrefna, húsamús, lang- reyður, leiftur, marsvín, melrakki og sandreyður. gudmundur@mbl.is. Landselur á válista vegna bráðrar hættu á útrýmingu  Náttúrufræðistofnun birtir válista íslenskra spendýra í fyrsta sinn Morgunblaðið/RAX Á válista Landselur í öruggu skjóli í Norðurfirði í Árneshreppi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.