Morgunblaðið - 16.10.2018, Síða 11

Morgunblaðið - 16.10.2018, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 2018 Verð 9.995 Stærðir 37-42 2 rennilásar Verð 12.995 Stærðir 37-42 Leður Kuldaskór í úrvali SMÁRALIND www.skornirthinir.is Misty Dekraðu við línurnar BH verð 8.990 kr. Buxur verð 3.990 kr. Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366 | Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 10-14 Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Við erum á facebook Nanni buxur m/ lurex rönd Kr. 6.990 Str. S-XXL • Lengd 7/8 Kynferðislegt ofbeldi á ekkert sam- merkt með kynlífi heldur er það glæpur og er notað sem valdatæki segir Yves Daccord, framkvæmda- stjóri alþjóðaráðs Rauða krossins (ICRC) en hann flutti fyrirlestur í Háskóla Íslands í hádeginu í gær á vegum Alþjóðamálastofnunar, Höfða friðarseturs og Rauða kross- ins á Íslandi. „Nauðgun er vopn í stríði og á ekkert skylt við kynlíf heldur er nauðgun öflugt vopn á átakasvæðum. Við sjáum það í Sýr- landi, Suður-Súdan og víðar,“ segir hann. Með kynferðislegu ofbeldi er reynt að granda fólki og sundra sam- félögum. Í fyrirlestrinum fjallaði hann um baráttu Rauða krossins gegn kyn- ferðislegu ofbeldi í átökum en hann segir beitingu kynferðislegs ofbeldis eitt það flóknasta þegar kemur að stríðsátökum. Erfitt sé fyrir þolend- ur að greina frá og oft fái þeir ekki það svigrúm sem þeir þurfi og aðstoð til að vinna úr sálrænum áhrifum af slíkri misnotkun. Því með því að nauðga er ekki tilgangurinn að drepa heldur tortíma manneskjunni. Að valda henni sem mestum kvölum. Nauðgun er ekkert sem gerist óvart því sá sem beitir ofbeldinu sem stríðstæki hefur alltaf valið. Að svipta viðkomandi mennskunni. Daccord segir að kynferðislegu of- beldi hafi verið beitt lengi á átaka- svæðum en lítt ratað inn í dómsmál þar til fyrir nokkrum árum. Vitað er að nauðganir voru eitt stríðstækj- anna í seinni heimsstyrjöldinni án þess að menn hefðu verið dæmdir fyrir það. Aftur á móti var farið að dæma stríðsglæpamenn fyrir kyn- ferðislegt ofbeldi eftir stríðið í Rú- anda og eins Bosníu. Þetta segi okk- ur eitthvað um breytta stöðu kvenna. Þær voru áður álitnar eign karlsins og ofbeldið hafi því verið vopn gegn karlinum. Hann segir að ef nauðganir kvenna og stúlkna séu falið vopn þá sé staðan enn verri þegar kemur að körlum og drengjum. Daccord segir að einn af hverjum fjórum föngum hafi orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi. Þetta sé hins vegar sárasjaldan rætt enda falið valdatæki. Konur og stúlk- ur sem verða fyrir slíku ofbeldi verða oft fórnarlömb útskúfunar, ekki síst ef þær verða þungaðar við nauðgun. Daccord segir að rödd Íslands á sviði mannréttinda sé mikilvæg en Ísland á í fyrsta skipti aðild að mann- réttindaráði Sameinuðu þjóðanna. Hann segir að raddir smærri ríkja eigi eftir að verða meira áberandi á sviði mannréttinda næstu árin. guna@mbl.is. Morgunblaðið/Eggert Mannréttindi Yves Daccord, framkvæmdastjóri Alþjóðaráðs Rauða kross- ins, talar um baráttu gegn kynferðislegu ofbeldi á fundi í Háskólanum. Nauðganir öfl- ugt vopn í stríði  Framkvæmdastjóri alþjóðaráðs Rauða krossins á Íslandi Anna Björns- dóttir, tauga- læknir og sér- fræðingur í parkinson- sjúkdómi, er komin á samning við Sjúkratrygg- ingar Íslands, en hún fékk tilkynn- ingu þess efnis á föstudag. Önnu var upphaflega neitað um samning við Sjúkratryggingar þegar hún sneri aftur til Íslands úr sér- fræðinámi í Bandaríkjunum fyrr á þessu ári. Hún opnaði engu að síður stofu hér á landi í september en samningsleysið hafði þau áhrif að sjúklingar hennar fengu þjónustuna ekki niðurgreidda. Skömmu eftir að Anna opnaði sína stofu féll dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem felld var úr gildi ákvörðun um að hafna umsókn annars læknis um að- ild að rammasamningi Sjúkratrygg- inga og leiddi það til þess að umsókn Önnu var endurmetin. Komin á samning Anna Björnsdóttir Konur flytja fyrr úr foreldrahúsum á Íslandi en karlar, samkvæmt ný- birtum niðurstöðum lífskjararann- sóknar Hagstofu Íslands fyrir árið 2016 þar sem 2.870 tóku þátt. Í aldurshópnum 20-29 ára bjuggu 34,4% kvenna í foreldrahúsum en 44,1% karla. Hlutfall ungra kvenna í foreldrahúsum hefur hækkað frá því lífskjararannsóknin var framkvæmd fyrst árið 2004 en það var lægst 23,0% árið 2005. Hlutfall ungra karla í foreldrahúsum hefur nokkurn veg- inn staðið í stað á sama tímabili. Þá kemur fram að fimmtungur fólks á aldrinum 25-29 ára hafi búið í foreldrahúsum árið 2016; 24,8% karla og 15,6% kvenna. Hlutfall fólks á aldrinum 25-29 ára sem býr í foreldrahúsum er breytilegt eftir Evrópulöndum. Árið 2016 reyndist hlutfallið hæst í Króatíu (74,5%) en meðaltalið innan Evrópusambands- ins var 38,6%. Hlutfallið á Íslandi (20,3%) var áttunda lægsta af þátttökulöndum lífskjararannsóknarinnar en meira en tvöfalt hærra en á hinum lönd- unum á Norðurlöndum sem röðuðu sér í fjögur lægstu sætin. Í Dan- mörku bjuggu tæp 5% fólks á aldr- inum 25-29 ára í foreldrahúsum, 6% í Finnlandi og 9% í Svíþjóð og Noregi. Ungar konur fljúga fyrr úr hreiðrinu en karlar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.