Morgunblaðið - 16.10.2018, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 16.10.2018, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 2018 Gullfiskur Kæliþurrkaður harðfiskur semhámarkar ferskleika, gæði og endingu. Inniheldur 84%prótein. 84%prótein - 100% ánægja Framleiðandi: Tradex ehf, Eyrartröð 11, 220Hafnarfjörður, tradex@tradex.is Harðfiskur // Bitafiskur // Skífur Fullkominn ferðafélagi Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins fær 57 milljóna króna framlag til þess að fjölga sérnámsstöðum í heimilis- lækningum samkvæmt ákvörðun heilbrigðisráðherra, Svandísar Svav- arsdóttur, sem kynnt var í gær. Fram kemur á vef stjórnarráðsins að Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hafi leitað til heilbrigðisráðuneytisins í sumar með ósk um viðbótarfjárveit- ingu til þess að fjölga þessum stöðum. Þá segir að læknum í sérnámi í heimilislækningum hafi fjölgað um 13 vegna fjárveitingarinnar og þeir séu nú 46 talsins. Þar af eru 30 á Heilsu- gæslu höfuðborgarsvæðisins, átta á Heilbrigðisstofnun Norðurlands, sex á Heilbrigðisstofnun Suðurlands, einn á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og einn á Heilbrigðisstofnun Austur- lands. Rök fyrir fjárveitingunni eru sögð stefna stjórnvalda um eflingu heilsu- gæslunnar og hækkandi meðalaldur starfandi heimilislækna. Þá mun stór hópur þeirra fara á eftirlaun á næstu árum. Á fjárlögum þessa árs var 300 milljónum króna ráðstafað í að efla þverfaglega þjónustu heilsugæsl- unnar. gso@mbl.is Ljósmynd/Velferðarráðuneytið Heilsugæsla efld Svanhvít Jakobsdóttir, forstjóri Heilsugæslu höfuðborg- arsvæðisins, og Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra takast í hendur. Fleiri heimilislækna  Stór hópur heimilislækna á eftirlaun næstu ár  Sérnámsstöðum fjölgað Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Þingi Sjómannasambands Íslands var frestað á föstudag vegna óvissu um aðild þriggja stórra félaga að SSÍ og starf sambandsins verði af úrsögn þeirra. Ákveðið var að bíða með stjórnarkjör og fjárhagsáætlun þar til ákvörðun í þeim efnum liggur fyrir, að sögn Hólmgeirs Jónssonar, framkvæmdastjóra SSÍ. Hann segir að þeir sem eftir verða þurfi á næstu vikum að ráða ráðum sínum um hvernig þeir ætla að reka sambandið áfram verði af úrsögninni. Félög sjómanna í Eyjafirði, Vest- mannaeyjum og Hafnarfirði eiga í viðræðum við tvö félög utan SSÍ og ASÍ, Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur og Sjómannafélag Ís- lands, um sameiningu. Fyrrnefndu félögin þrjú áttu eigi að síður sína fulltrúa á þingi Sjómannasambands- ins í síðustu viku og tóku þátt í störf- um þingsins. SSÍ heldur þing á tveggja ára fresti og eru aðildar- félögin nú 17, en gætu orðið 14 verði af úrsögninni. Nýtt félag á að standa fyrir utan allt og alla Valmundur Valmundsson, for- maður Sjómannasambandsins, segir þessa stöðu erfiða og segist ekki sjá að úrsögn úr SSÍ og stofnun nýs fé- lags styrki stöðu sjómanna í landinu. „Félögin eru ekki farin út svo við skulum sjá hvað setur,“ segir Val- mundur. „Það hefur alltaf verið talið sterkara þegar menn vinna saman. Nýtt félag á að standa fyrr utan allt og alla ef það verður að veruleika og ég óttast að menn verði þá sundraðri heldur en ella, en félögin hafa sjálf- stæðan rétt og vilja.“ Valmundur var formaður Sjó- mannafélagsins Jötuns í Vest- mannaeyjum áður en hann var kos- inn formaður SSÍ. Hann segist stefna að því að gefa kost á sér sem formaður áfram. Í núverandi 14 manna stjórn sambandsins eru tveir meðstjórnendur frá Jötni, og vara- formaður sambandsins, Konráð Al- freðsson, og tveir meðstjórnendur koma frá Sjómannafélagi Eyja- fjarðar. Vaxandi vantraust milli sjómanna og útgerðarmanna Þing Sjómannasambandsins sam- þykkti ítarlegar ályktanir um kjara- og atvinnumál og öryggis- og trygg- ingamál. Þess er krafist að fyrir- tækjum í sjávarútvegi verði gert skylt að skila öllum upplýsingum um framleiddar afurðir og söluverð þeirra til Hagstofu Íslands. Með því móti sé hægt að treysta því að mæl- ingar á breytingum á afurðaverði séu réttar á hverjum tíma. Skorað er á útgerðarmenn að bæta samskipti við sjómenn, en van- traust hafi farið vaxandi milli sjó- manna og útgerðarmanna undan- farin misseri. Í sumum tilfellum sé um algeran trúnaðarbrest að ræða. Lagt er til við stjórnvöld að ýmsar ívilnanir í lögunum um stjórn fisk- veiða verði afnumdar, svo sem línu- ívilnun, byggðarkvóti og VS afli. Þá er þess krafist að vigtunarreglur verði endurskoðaðar. Vísað er á bug kröfu útgerðarmanna um verulega lækkun launa vegna veiðigjalda og annars rekstrarkostnaðar. Veiði- gjöldin séu skattur á útgerðina sem stjórnvöld kjósi að leggja á hagnað hennar sem sé sjómönnum óviðkom- andi. Skilið verði á milli vinnu og friðhelgi einkalífs skipverja Þingið hvetur til varkárni þegar rafrænt eftirlit er stundað um borð í skipum. Augljóslega sé rafrænt eftirlit til bóta þegar öryggi skip- verja og skips eigi í hlut, en skilja verði algerlega milli vinnu og frið- helgi einkalífs skipverja. Þingið krefst þess að stjórnvöld tryggi Landhelgisgæslu Íslands nægt fé til rekstrar, sérstaklega hvað varðar rekstur þyrlusveitar- innar. Lífsspursmál sé fyrir íslensku þjóðina að þyrlur séu til staðar þeg- ar slys eða veikindi beri að höndum eins og dæmin sanni. Til að öryggi sé sem best tryggt þurfi að mati þings- ins að staðsetja þyrlur víðar um landið en nú er gert. Jafnframt fagnar þingið áformum stjórnvalda um að leggja fram aukið fé til þyrlukaupa. Þá er fagnað áformum um smíði nýs skips til haf- rannsókna og hvatt er til aukinna framlaga til hafrannsókna. Sterkara þegar menn vinna saman  Þingi Sjómannasambandsins frestað vegna óvissu um aðild þriggja félaga  Kosið í stjórn og fjárhags- áætlun afgreidd þegar staðan í röðum sjómanna liggur fyrir  Segja veiðigjöld sjómönnum óviðkomandi Morgunblaðið/Árni Sæberg Samið Sjómenn og útgerðarmenn undirrita kjarasamning í nóvember 2016, en sá samningur var felldur í atkvæða- greiðslu og nýr gerður í febrúar 2017. Frá vinstri: Jens Garðar Helgason, formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarút- vegi, Bryndís Hlöðversdóttir ríkissáttasemjari og Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambandsins. Þing Sjómannasambandsins „mótmælir harðlega þeirri til- hneigingu einstakra útgerðar- manna að fækka í áhöfn skipa á kostnað öryggis skipverja. Þingið hvetur stjórnvöld til að láta gera rannsókn á afleið- ingum fækkunar í áhöfn vegna aukins vinnuálags sem af því leiðir. Í framhaldi verði sett lög um lágmarksmönnum fiski- skipa við veiðar eftir stærð, gerð og veiðiaðferðum“. Þess er krafist að útgerðir og skipstjórnarmenn virði lög- bundinn rétt sjómanna til hvíldar og fari eftir þeim lög- um og reglum sem gilda um lágmarkshvíldartíma sjómanna. Jafnframt fagnar þingið könn- un á hvíldar- og vinnutíma ís- lenskra sjómanna og telur að aðkoma sjómannasamtakanna að könnuninni sé algert lyk- ilatriði. Ekkert megi skyggja á trúverðugleika hennar. Samgöngustofa er hvött til að fylgjast vel með örygg- isbúnaði skipa og afnema allar undanþágur vegna ágalla í ör- yggisbúnaði. Farið er fram á að sá vinnufatnaður sem útgerðin lætur skipverjum í té sé frá viðurkenndum framleiðendum sem sérhæfa sig í framleiðslu sjófatnaðar. Einnig að stjórn- völd samræmi reglur um vinnuaðstöðu sjómanna til jafns við reglur um vinnustaði í landi. Þá er áréttað að öll vímu- og áfengispróf verði framkvæmd af fagfólki á heilsugæslustöð. Tilhneiging til að fækka í áhöfn skipa RÉTTUR TIL HVÍLDAR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.