Morgunblaðið - 16.10.2018, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 16.10.2018, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Kannanir umfylgiflokka í kosningunum í Bæjaralandi reyndust nærri lagi. En hvers vegna er svo mikið gert úr þessum fylkiskosningum? Hafa verður í huga að Bæjara- land er stærst fylkja, fimmt- ungur af landstærð Þýska- lands og það annað fjölmennasta. Fylkið er efna- hagslega mjög sterkt og bent hefur verið á að einungis 20 sjálfstæð ríki veraldar geti státað af annarri eins þjóðar- framleiðslu og Bæjarar skila. Til þessa má rekja álit þeirra og áhrif á þýskt þjóðlíf. Því til viðbótar kemur að CSU, flokk- ur Kristilegra í Bæjaralandi, hefur farið með hreinan meiri- hluta á þingi um langa hríð. Þótt flokkurinn sé sjálfstæð flokkseining hefur hann verið í þéttu bandalagi með systur- flokki sínum, CDU, lands- flokki Kristilegra í Þýskalandi, og átt með honum aðild að rík- isstjórn í Bonn og svo Berlín meirihluta þess tíma sem lið- inn er frá stríðslokum. Vegna þessa síðasta er mjög um það spurt nú, hverjar kunni að verða afleiðingar úr- slitanna á þróun stjórnmála í Þýskalandi almennt. Þýskir álitsgjafar telja flestir að kosningarnar beri með sér vantraust á alríkisstjórnina í Berlín. CSU er öflugur aðili að stjórnarmeirihluta Kristi- legra. Verulegt tap nú ruggar þeim bát verulega. Og eins er óhjákvæmilegt að horfa til dapurlegrar útkomu hins stjórnarflokksins, Sósíal- demókrata. Ríkisútvarpið íslenska hefur um árabil strítt við vandræða- gang þegar sigurvegarar og taparar íslenskra kosninga eru valdir af þess hálfu. Andlegir bræður fréttastofunnar, sem jafnan eru valdir til sér- fræðiráðgjafar, vafra um í sama vandræðagangi. Saman hafa þessir iðulega úrskurðað að smáflokkar sem hafa jafn- vel lítil sem engin áhrif eftir kosningar séu hinir sönnu sig- urvegarar þeirra. Sami vand- ræðagangur einkennir úr- skurð um þann sem lakast fór frá kjörborði. Pólitískar meinlokur valda mestu um þessi vandræði og þær þvælast áfram fyrir þótt fjallað sé um erlend málefni. Í Bæjaralandi komst stjórnarflokkurinn CSU vissu- lega ekki vel frá kosningunum. Var með 47% fylgi fyrir kosn- ingar og 37% eftir þær og hafði því tapað 10 prósentustigum og liðlega 20% á kjörtíma- bilinu. Þótt það sé áfall þá er það ekki mest tap í prósentum talið. CSU var stærstur flokka í Bæjara- landi fyrir kosn- ingarnar og er það áfram eftir kosn- ingar og munar enn miklu. CSU er enn tvöfalt stærri en næststærsti flokkur fylkisins. En hið sögulega við tap flokksins er það að hann getur ekki lengur myndað einn meirihluta í fylkinu eins og hann hefur getað í nærri sjö áratugi. Græningjar fengu tæp 18% í kosningunum. „RÚV“ úrskurðaði að Græningjar væru sigurvegarar kosning- anna þar sem þeir hefðu nær tvöfaldað fylgi sitt. Sé það mælistikan þá var AfD sig- urvegarinn með um 11% og í fyrsta sinn með menn inni á þingi. En Græningjar urðu jafn- framt næststærsti flokkur Bæjaralands og geta því vel við unað. En varla getur farið framhjá neinum hvaða flokkur fór verst út úr kosningunum. Flokkur Sósíaldemókrata var fyrir kosningarnar næststærsti flokkur Bæjaralands. Eftir kosningar er hann 5. stærsti flokkur fylkisins með aðeins um 10% fylgi. Flokkurinn missti helming fylgis síns. Kratar hafa lengi úrskurðað að AfD væri óstjórntækur flokkur og fjallað um hann af fyrirlitningu í samræmi við það. En nú hafa kjósendur í Bæjaralandi valið fyrir sitt leyti hvor flokkurinn þyki óstjórntækari í Bæjaralandi og hafa kratar vinninginn. Og þar sem annar stjórnar- flokkurinn í Berlín geldur slíkt afhroð í stærsta fylkinu, þar sem hann var í stjórnar- andstöðu og missir þó helming fylgis síns er augljóst að það hefur áhrif á tilveru „Stór- flokka“-stjórnarinnar. Ekki má gleyma því, að háværar raddir voru meðal krata eftir áfallið í alríkiskosningunum um að flokkurinn þyrfti að hverfa úr ríkisstjórn. Hann yrði utan stjórnar að endur- meta stefnu sína og framgöngu og birtast kjósendum sem nýr og betri flokkur í næstu alrík- iskosningum. Merkel kanslari virtist ekki ætla að taka úrslitunum í Bæj- aralandi blindandi, þótt um- fjöllun hennar væri af alkunnri varfærni. Hún sagði þó að kosningaúrslitin í Bæjaralandi bæru það með sér að traust kjósenda á stjórnmálaflokkum hefði hrunið og af því yrðu þeir og helstu leikendur þeirra á sviði stjórnmálanna að draga réttar ályktanir. Það var ekki of mikið sagt. Kosningar í Bæjara- landi skekja enn þjóðarskútu sem má ekki við miklu} Leikendur dragi ályktun Í síðustu viku var samþykkt frumvarp sjávarútvegs- og landbúnaðarráð- herra um rekstrarleyfi til bráða- birgða fyrir fiskeldi. Í þeirri umræðu var vísað í heimild umhverfis- og auðlindaráðherra til þess að veita undanþágu frá starfsleyfi og að það væri bara verið að gefa sjávarútvegsráðherra álíka heimild. Slík tilvísun á rökum er algeng og krefst þess að ástæður þess að umhverfisráðherra hafi slíka heimild til að byrja með. Við nánari athugun kemur ýmislegt áhugavert í ljós. Umhverfis- ráðherra getur nú, eftir breytingar á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, veitt tímabundna undanþágu frá kröfu um starfs- leyfi. Þessi breyting var ekki í frumvarpi ráð- herra heldur bættist við í meðhöndlun um- hverfis- og samgöngunefndar áður en frumvarpið var samþykkt á síðasta ári. Sú tillaga nefnd- arinnar er ekkert útskýrð í nefndaráliti meirihlutans nema kannski að útgáfa starfsleyfa haldist sem næst núverandi horfi. Það útskýrir þó ekki að það þurfi að bæta við sérstakri lagagrein um undanþáguheimild ráð- herra án nákvæmra lögskýringa um slíka lagagrein. Þessi ákvæði eru dæmi um ýmsar aðrar breytingar á lögum þar sem ýmsar ákvarðanir eru færðar undir ákvörðun ráðherra. Það hlýtur að teljast mjög alvarlegt að ráðherra hafi heimildir til þess að veita undanþágu frá starfsleyfi sem varðar lög um hollustuhætti og mengunarvarnir án þess að það sé skýrt hvernig það vald er takmarkað. Heimild sem virðist meira að segja koma frá Alþingi þrátt fyrir að áður hafi verið lagt til í drögum að frumvarpi að þessi heimild væri fjarlægð af því að hún væri erfið í framkvæmd „sökum þess að lögin veita ekki nánari leiðbeiningar um beitingu þessara heimilda“. Þar er meira að segja átt við aðrar heimildir um undan- þágu frá reglugerðarákvæðum en ekki undanþágu frá starfsleyfi. Ef ráðherra á erf- itt með að nýta sér heimild til undanþágu frá reglugerðum sem hann setur sjálfur, hversu erfitt er að nýta þessa nýju heimild sem er ekki með vísun í nein lögskýringargögn. Ekki erfiðara en svo að heimildin var notuð til þess að veita undanþágu fyrir t.d. Fjarða- lax hinn 5. júní sl. Það vekur upp áleitnar spurningar um vinnubrögð Alþingis að svo mikilvæg breyting skuli hafa verið gerð á frumvarpi umræðulaust og innan við þremur sólar- hringum áður en lög voru sett af þinginu, og án þess að minnst sé einu orði á breytinguna í greinargerð, nefnd- aráliti, framsögu eða öðrum ræðum þingmanna. Enn al- varlegra er það vegna þess að í nefndarálitinu er óbeint fullyrt að breyting í þessar veru hafi ekki verið gerð. bjornlevi@althingi.is Björn Leví Gunnarsson Pistill Undanþága frá lögum Höfundur er þingmaður Pírata. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Eftir þrjá mánuði gæti fariðsvo að hungursneyðin íJemen yrði sú verstasem sést hefur í hundrað ár að mati Sameinuðu þjóðanna. Mannúðarstofnun Sameinuðu þjóð- anna (UNOCHA) telur að um 75% íbúa landsins eða um 22 milljónir manna þurfi á aðstoð að halda. Þá segir stofnunin að 11,3 milljónir þeirra séu í brýnni þörf til þess að halda lífi. Jafnframt fjölgar ein- staklingum í þessum hópi ört og munu þessir einstaklingar vera orðnir yfir 13 milljónir við lok þessa árs. Á tíu mínútna fresti lætur barn yngra en fimm ára lífið í Jemen vegna fæðuskorts og/eða skorts á læknismeðferð. Fram kemur í um- fjöllun stofnunarinnar um ástandið í Jemen að heil kynslóð barna elst upp í þjáningu og líður alvarlegan skort. Um tvær milljónir barna eru utan skóla og um 1,8 milljónir barna líða alvarlegan fæðuskort, þar af eru um 400 þúsund börn í lífshættu vegna fæðuskorts og eru líkleg til þess að láta lífið ef þau fá ekki við- eigandi læknismeðferð. Viðbragðsnefnd SÞ í Jemen (YHRP) telur að á þessu ári sé þörf á 2,96 milljörðum bandaríkjadala, jafnvirði um 344 milljarða íslenskra króna, svo hægt sé að tryggja íbú- um lágmarksfæðu og heilbrigð- isþjónustu. Í fyrra var þörfin 2,34 milljarðar bandaríkjadala, um 272 milljarðar íslenskra króna, en að- eins tókst að safna 1,65 milljörðum bandaríkjadala eða um 70,5% af þeirri upphæð sem talin var nauð- synleg. Þarf aukinn vilja „Ég held að það sem er erfiðast við þessa stöðu sé að við höfum ekki séð neinar framfarir síðustu tvö ár. Þetta er gríðarlega flókin staða í landi þar sem ríkir fátækt, ofbeldi og stríð, ekki síst þar sem engin pólitísk lausn er í sjónmáli,“ segir Yves Daccord, framkvæmdastjóri Alþjóðaráðs Rauða krossins, í sam- tali við blaðamann Morgunblaðsins. „Jemen er hugsanlega sá stað- ur þar sem er stærsta bilið milli þarfa íbúanna og þess sem í boði er,“ segir Yves og vísar til þess að landið flytur inn 80-90% allra mat- væla. „Þá eru ótalin vandamálin með heilbrigðiskerfið, vatnsskort- urinn og ofbeldið. Þá er líka gífur- legt bil milli þarfa einstaklinganna og þess sem heimurinn getur gert. Í þessu samhengi er Jemen stærsta mannúðarkrísan sem við erum að kljást við.“ Spurður um hvað þurfi nú að gera segir hann að fyrst og fremst þurfi pólitískan vilja til þess að beita aðila að deilunni þrýstingi til þess að tryggja að mannréttindi séu virt. „Hér erum við að tala um báðar hliðar. Það er engin spurning um að hér hefur alþjóðasamfélagið mikil- vægu hlutverki að gegna. Það þarf að flýta friðarviðræðum. Í öðru lagi þarf að tryggja að mannúðarstarf- semi geti farið fram á svæðinu. Ger- ist það ekki, er ég jafn áhyggjufullur og SÞ yfir því hvaða afleiðingar það hefur fyrir fólkið.“ Yves bætir við að „í heiminum í dag þegar stóru ríkin eru sífellt að loka sig af og vilja ekki byggja á samstarfi, hafa smærri ríki eins og Ísland sífellt mikilvægara hlutverki að gegna“. Flókin staða Erfitt er að segja með ná- kvæmum hætti hvenær borgara- stríðið í Jemen hófst. Al-Qaeda-liðar gripu til vopna árið 2001 gegn rík- isstjórn landsins og hafa stundað árásir síðan. Þremur árum síðar, eða 2004, risu Hútar upp og börðust gegn jemenska hernum. Hútar eru að megninu til sjítar og hafa einnig lent í átökum við Al-Qaeda. Þá jókst flækjustigið 2014 þegar stuðnings- menn Ríkis íslams risu einnig upp. Hútum tókst árið að hernema Saana, höfuðborg Jemens, og settu þeir ríkisstjórn landsins af. Ríkis- stjórnin hélt áfram að berjast og hefur nú aðsetur í Aden og nýtur hún stuðnings bandalags undir for- ystu Sádi-Arabíu, en í bandalaginu eru Arabísku furstadæmin, Senegal, Súdan, Marokkó, Katar, Bandaríkin og Frakkland. Bandalag Sáda hefur um tíma gert samninga við Al-Qaeda í Jemen til þess að ná betri stöðu gegn Hút- um. Samningar við Al-Qaeda hafa þótt réttlætanlegir til þess að koma höggi á Íran, en Íran hefur verið sakað um að styðja uppreisn Húta. Yfir þrjár milljónir manna hafa lagt á flótta að mati SÞ, þar af hefur tæp milljón reynt að snúa aftur til heimila sinna. Þá hafa íbúar lands- ins þurft að þola náttúruhamfarir eins og flóð og ofsaveður, ásamt út- breiðslu kóleru sem er afleiðing mengaðrar fæðu. Líkur á mestu hung- ursneyð í heila öld Jemen í tölum J E M E N Samkvæmt mannúðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (UNOCHA) 22 milljónir eru taldar þurfa mannúðaraðstoð í einhverjum mæli 29 milljónir er íbúafjöldi Jemen 16 milljónir hafa ekki aðgang að heil- brigðisþjónustu 16 milljónir hafa ekki aðgang að hreinu vatni 2,9 milljónir barna og kvennalíða alvarlegan fæðuskort 50% barna eru með skertan líkamsþroska vegna vannæringar 98% hækkun matvæla- verðs síðustu þrjú ár 110% hækkun eldsneytis- verðs síðustu þrjú ár 11,3 milljónir eru í bráðri neyð og þurfa aðstoð til þess að lifa af 18 milljónir búa ekki við fæðuöryggi 8,4 milljónir búa í óvissu umhvernig þær afla næstu máltíðar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.