Morgunblaðið - 16.10.2018, Side 22

Morgunblaðið - 16.10.2018, Side 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 2018 ✝ Guðrún Sigríð-ur fæddist í Reykjavík 5. júlí 1929. Hún lést í Hellerup í Kaup- mannahöfn 5. októ- ber 2018. Foreldrar henn- ar voru sr. Jakob Jónsson, dr. theol, f. 1904, d. 1989, og frú Þóra Einars- dóttir, f. 1901, d. 1994. Hún var elst fimm systk- ina en hin eru Svava, f. 1930, d. 2004, Jökull, f. 1933, d. 1978, Þór Edward, f. 1936, og Jón Einar, f. 1937. Guðrún Sigríður (Didda) ólst upp á Norðfirði, í Wynyard, Sask., Kanada, og Reykjavík. Hún varð stúdent frá Mennta- skólanum í Reykjavík 1949 og lauk námi í hjúkrunarfræðum í Kaupmannahöfn árið 1954. Ár- ið 2002, þá 73 ára, lauk hún ex- am.art.-námi í persneskum fræðum í Háskólanum í Kaup- mannahöfn. Guðrún Sigríður giftist eft- irlifandi manni sínum, Hans W. Rothenborg lækni, f. 1927, 8. nóvember 1952. Börn þeirra eru: 1) Jakob, f. 4.7. 1957, d. 15.12. 2015. 2) Jórunn, f. 16.10. æskuslóðum Hans í Hellerup. Auk heimilisstarfa á gest- kvæmu heimili starfaði Didda á læknastofu Hans en lagði jafn- framt stund á persnesk fræði, þýðingar og önnur skrif. Kenn- ari hennar í Kaupmanna- hafnarskóla og samstarfsmaður var Jes. P. Asmussen, víð- frægur prófessor í írönskum fræðum. Didda hafði víðfeðm áhuga- mál. Gestrisni hjónanna var við brugðið og heimili þeirra í gamni kallað „Hotel Norgesm- indevej“. Um tíma hafði hún umsjón með bókakosti safnsins í Jónshúsi, lagði lið skógrækt- arstarfi á Íslandi og svo mætti lengi telja. Didda hélt tengslum við Ís- land alla tíð og þau styrktust enn frekar er einkadóttirin Jór- unn settist hér að. Harmur var að kveðinn er þau Hans misstu son sinn, Jakob, fyrir þremur árum. Didda og Hans ferðuðust víða, undanfarna áratugi með skólasystkinum frá MR 1949 og á alþjóðleg húðlæknaþing. Au- fúsugestir þar enda Hans að- alhvatamaður að stofnun Sam- taka evrópskra húðlækna (European Academy of Der- matology and Venereology (EADV). Útför Guðrúnar Sigríðar fer fram í dag, 16. október 2018, frá Sions Kirke, Österbrogade, Kaupmannahöfn, kl. 10 f.h. að íslenskum tíma. 1962, ferðamála- fræðingur og leið- sögumaður, gift Erlendi Sturlu Birgissyni bygg- ingarverkfræðingi í Kópavogi og eiga þau synina a) Alex- ander, f. 1988, trú- lofaður Halldóru Markúsdóttur, f. 1987, og eiga þau óskírðan son, f. 8.8. 2018, og b) Daniel Hans, f. 23.1. 1997. 3) Jens Aage, f. 1988, deildarstjóri hjá Aviator á Kast- rup-flugvelli, búsettur í Kaup- mannahöfn. Fyrstu fjögur árin bjuggu þau Didda og Hans á ýmsum stöðum í Svíþjóð þar sem Hans starfaði á sjúkrahúsum. Þá voru þau tvö ár í Kúrdistan, Ír- an, þar sem Hans starfaði sem læknir hjá Kampsax Service Sanitaire á vegum Alþjóða- bankans, en Kampsax var ráðið til að leggja vegi í Íran. Það var afdrifarík dvöl. Didda tók ástfóstri við Íran og íranska menningu og átti það fyrir henni að liggja ævi- langt að leggja stund á pers- nesk fræði. Tvö ár bjuggu þau í Englandi en annars alla tíð á Margir góðir eiginleikar prýddu elskulega mágkonu mína, Diddu. Einn var hjálp- semi hennar og þátttökuvilji í öllu sem maður tók sér fyrir hendur. Í heimsóknum þeirra Hans hingað í Espigerði var hún jafnan komin fram í eldhús, spyrjandi: „Hvernig get ég hjálpað?“ Við eyddum yndislegum jól- um hjá þeim Hans á fyrstu ár- um okkar Þórs í Bergen í Nor- egi. Hún lét sér mjög annt um fjölskylduna nær og fjær. Í tilefni sjötugsafmælis síns bauð hún fjölda skyldmenna til veislu í sumarbústað þeirra hjóna. Um kvöldið sátum við öll saman í veislutjaldinu og skemmtum okkur. Sé ennþá fyrir mér Diddu þar sem hún situr með eitt til tvö af börnum úr fjölskyldunni í fanginu, sæl á svip. Hvað viðvíkur Íslandi lagði hún sig fram um að vita skil á mönnum og málefnum, nýtti til dæmis kosningarétt sinn hér fram á seinustu ár. Fyrir utan fjölskylduna átti hún tryggan kunningjahóp í sam- stúdentum sínum og tók þátt í ferðum þeirra utanlands. Það sem einkenndi Diddu var sem sagt einlægur áhugi á fólki. Í heimsóknum sínum hingað kunni hún vel að meta að koma á mannamót, þar hitti hún jafn- an einhverja sem hún þekkti og var jafnfús að kynnast nýjum. Því gat stundum tekið alllangan tíma að koma sér burt af staðn- um! Hún var jafnan eins við alla, opin, áhugasöm, hlýleg í fasi og snjöll í samræðum. Við Þór tókum við rausnar- legri gjöf frá þeim hjónum árið 2002. Það eru tré sem vaxa í landi okkar í Landsveit, and- virði gjafa sem bárust þeim á gullbrúðkaupsafmælinu. Varan- legt vitni um hlýhug í okkar garð og umhverfisins, Gullbrúð- kaupslundur, með sínum fallegu trjástofnum og laufríku grein- um. Hún hafði margvíslega reynslu af hinum stóra heimi, fædd í Kanada, þau Hans bú- sett í Svíþjóð, Englandi, Íran og Danmörku. Á seinni árum lagði hún stund á persnesku og lauk háskólagráðu í persneskri tungu og bókmenntum, stund- aði þýðingar úr því máli. Hún kynntist samfélagi er- lendra í Kaupmannhöfn og hélt kunningsskap við fjölskyldur sem höfðu flúið land sitt vegna ofríkis stjórnvalda. Hún hafði mikla fróðleiksfýsn og var af- burða greind, vitur kona og yf- irveguð. Hún var víðlesin og mikill bókaunnandi. Þær mæðgur, Jórunn og hún, hafa um árabil talað saman daglega milli landa, samband þeirra var innilegt og fallegt. Það eru margar áhyggjurnar sem maður hefur vegna veikrar móður í öðru landi, og oft var þörf á að fara á staðinn og hjálpa til. Við Þór áttum kost á að vera nokkra daga á Svanemøllevej í september, það var mikilvægur tími fyrir okkur, aðdáunarvert að sjá samvinnu þeirra feðg- inanna allra við að annast Diddu í veikindum hennar heima. Það er dýrmætt að hafa átt Diddu að, notið örlætis hennar og hlýju allt frá fyrstu tíð þegar ég kom inn í hóp tengdafólks- ins. Ég er innilega þakklát henni og varðveiti þessar minn- ingar um hana og fjölda margar aðrar. Elskulegu vinir, Hans, Jens, Jórunn og fjölskylda, ég votta ykkur innilega samúð. Jóhanna Jóhannesdóttir. Það var að vori 1980 að bank- að var að dyrum á nýju heimili okkar í Hellerup í Danmörku. Þar var komin ung stúlka, Jór- unn Rothenborg, dóttir Guð- rúnar Jakobsdóttur og Hans Rothenborg sem bjuggu í næstu götu. Jórunn færði okkur boð um að skreppa yfir í kaffi- sopa en Guðrún hafði haft spurnir af komu okkar í hverfið. Þetta var upphaf að einlægri og góðri vináttu okkar við þau hjónin og börn þeirra Jórunni og Jens, sem voru á svipuðum aldri og börn okkar Anna Birna, Örn og Steinar. Eftir að við fluttumst til Ís- lands 1982 héldu vináttuböndin vel og hittumst við reglulega þegar við áttum erindi til Dan- merkur sem var býsna oft. Guð- rún og Hans komu einnig stundum til Íslands, einkum eftir að Jórunn flutti hingað. Það var mjög einkennandi fyrir bæði Guðrúnu og Hans að þau spurðu ávallt fregna um hvern- ig börnum okkar vegnaði á lífs- brautinni og á sama hátt deildu þau með okkur fréttum af sér og sínum. Guðrún minntist oft á bernsku sína í Wynyard í Sas- katchewan þar sem faðir henn- ar dr. Jakob Jónsson þjónaði sem prestur afkomenda ís- lenskra landnema í Vesturheimi frá 1935-1940. Fyrir fimm árum var afráðið að Guðrún myndi ásamt Hans, Jórunni og Jens heimsækja þessar bernsku- stöðvar hennar. Mikil natni var lögð í að skipuleggja ferðina og var unun fyrir okkur að taka þátt í því. Gerð var nákvæm áætlun og miðað var við að vera í Winnipeg 17. júní til að vera viðstödd hátíðarhöld í tilefni þjóðhátíðardags Íslendinga. Hófst ferðin til Kanada í Nova Scotia en því miður veikt- ist Guðrún þar og varð að hverfa aftur heim til Danmerk- ur ásamt sinni stoð og styttu, Hans. Jórunn og Jens létu ekki deigan síga heldur héldu ferð- inni áfram til Winnipeg og það- an til Wynyard og víðar. Þótti Guðrúnu miður að komast ekki aftur til Wynyard en þó var mikið gleðiefni fyrir hana að Jórunn og Jens lykju ætlunar- verkinu fyrir hennar hönd. Í heimsókn til Danmerkur í lok júlí sl. áttum við okkar síð- asta fund með Guðrúnu. Þá var mjög af henni dregið og ljóst hvert stefndi en hún naut stundarinnar eins og venjulega og skiptumst við á fregnum að vanda yfir kaffi og vínarbrauði sem Hans og Jens báru fram. Að leiðarlokum kveðjum við með trega okkar góða vin Guð- rúnu Jakobsdóttur og sendum Hans, Jórunni og Jens og allri fjölskyldunni okkar dýpstu samúðarkveðjur. Almar Grímsson og Anna Björk Guðbjörnsdóttir. Fallin er nú frá eftir erfið veikindi tengdamóðir mín, Guð- rún Sigríður Jakobsdóttir, á ní- tugasta aldursári. Nánast upp á dag fyrir þrjátíu og sex árum kynntist ég þessari glaðlyndu konu þegar Jórunn, konan mín, fór með mig í fyrsta skipti heim til sín á Norgesmindevej 16 að hitta hana og eiginmann hennar hann Hans Walter. Man vel að mér til undrunar var mér boðið sæti á gólfinu við lítið japanskt borð ásamt öðrum í fjölskyldunni. Skýringin á þessari sætaskipan var sú að þau hjónin höfðu dvalist í Japan um skeið og tekið með sér þennan sið heim til Danmerkur. Guðrún var víðlesin kona og ákaflega fróð og þá sérstaklega í sögu og tungumáli Persíu og þess landshluta. Á sínum seinni árum stund- aði hún nám við háskólann í Kaupmannahöfn í persneskum fræðum. Áhugi hennar á pers- nesku kom upphaflega til eftir dvöl hennar í Íran á sjötta tug síðustu aldar þar sem Hans maðurinn hennar var læknir í Sanandaj. Guðrún var ákaflega glað- lynd kona og man ég eftir að Alexander sonur minn spurði hana einhvern tíma: „Amma, af hverju ertu alltaf hlæjandi?“ Forvitni var Guðrúnu eðlislæg og leið ekki sá dagur að hún læsi ekki í bók eða grein um allt milli himins og jarðar. Þau hjónin hafa eftir að þau fluttu frá Íran alla tíð búið í Hellerup sem er í úthverfi Kaupmanna- hafnar. Þar leið þeim hjónum ákaflega vel og bjó Guðrún þeim hjónum mjög fallegt heim- ili. Guðrún var einstaklega gestrisin og eru þau ófá boðin sem haldin voru á heimili þeirra hjóna í áranna rás sem hún stjórnaði með röggsemi og festu og má með sanni segja að aldrei var hún glaðari en ein- mitt þegar hún var umvafin fjölskyldu og vinum í góðu boði. Síðastliðin þrjú ár versnaði heilsa hennar til muna en með aðstoð barna sinna og óþrjót- andi ást og umhyggju Hans, eiginmanns hennar, auðnaðist henni að búa heima og eiga gæfuríkt ævikvöld. Þau hjónin hafa alla tíð verið ákaflega samrýnd og ég veit að það er mikið áfall fyrir Hans að missa sinn góða sálufélaga til 67 ára. Ég mun sakna Guðrúnar og óska henni velfarnaðar í þeirri ferð sem hún hefur nú lagt í. Erlendur Sturla Birgisson. Það er undarlegt að heim- sækja Kaupmannahöfn án þess að mæta þér skælbrosandi á flugvellinum á Kastrup. Það er enn undarlegra að ganga um húsið á Svanemøllevej án þess að heyra í þér hlæjandi ein- hvers staðar í húsinu. Að vera ekki spurður: „Hvað má bjóða þér fleira?“ við matarborðið. Maður áttar sig ekki á því hvað litlu hlutirnir hafa mikil áhrif á mann fyrr en núna. Við strákarnir, barnabörnin þín, sitjum hér og minnumst þín saman. Við söknum hlýleika þíns. Söknum þess að sjá þig brosa. Að upplifa þig fá hláturskast upp úr þurru. Að horfa með þér á Poirot á kvöldin. Hve forvitin þú varst og lést ekki kyrrt liggja fyrr en þú hafðir fengið allan sannleikann. Hvernig þú vildir hafa alla góða í kringum þig og trúðir á það góða í náunganum. Erfiðast af öllu er það að okkur langaði að verja meiri tíma með þér. Það er erfitt að búa í öðru landi og geta ekki skroppið í heimsókn til þín hve- nær sem er. Það hefði verið yndislegt að sjá þig hitta litla barnabarna- barnið þitt í eigin persónu. Hann fær einmitt nafnið sitt hinn 21. október. Hingað til haf- ið þið spjallað lengi saman í gegnum símann, það eru ómet- anlegar minningar sem aldrei gleymast. Sá litli og mamma hans, Halldóra Markúsdóttir, senda þér allar heimsins kveðj- ur og knús. Hann er því miður aðeins of ungur til að ferðast til útlanda, en brátt komum við og heimsækjum þig til Danmerk- ur. En eitt er þó alveg víst, þann tíma sem við fengum með þér verðum við eilíft þakklátir fyrir. Þú gafst okkur ótrúlega margt í veganesti fyrir lífið. Veganesti sem við getum vonandi gefið áfram til okkar barna. Alexander og Daniel Hans. Guðrún Sigríður Jakobsdóttir Þessi minningar- grein er birt aftur vegna þess að niður- lag greinarinnar vantaði. Beðist er afsökunar á mistökunum. Kæri afi. Við eigum fjölmargar góðar minningar frá samveru- stundunum með þér og ömmu í gegnum tíðina. Þegar við vorum litlar vorum við oft í margar vikur hjá ykkur á Benedikt Hans Alfonsson ✝ Benedikt HansAlfonsson fæddist 25. ágúst 1928. Hann lést 29. september 2018. Útför Benedikts fór fram 15. októ- ber 2018. Íslandi og nutum lífsins. Það var stjanað við okkur. Við fór- um í sund á hverjum degi, sigldum og ferðuðumst um Ís- land. Við höfðum alltaf eitthvað fyrir stafni. Við hittumst líka úti í heimi og sigld- um á skútu, þú varst skipstjórinn og við vorum í trygg- um höndum. Heima hjá okkur í Stokkhólmi og uppi í sveit vorum við líka oft saman löngum stund- um. Við söknum þíns trygga faðms. Við gleymum þér aldrei. Katarína og Emelí. Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Ástkær eiginmaður minn og besti vinur, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUNNAR BRYNJÓLFSSON framkvæmdastjóri Verkfæralagersins, Kríuhólum 4, Reykjavík, lést sunnudaginn 23. september á Tenerife. Útför hans verður gerð frá Bústaðarkirkju þriðjudaginn 16. október klukkan 13. Hrafnhildur Gunnarsdóttir Brynjólfur Gunnarsson Ásta Bjarnadóttir Tómas Haraldsson Selma Smáradóttir Móeiður Tómasdóttir Sara Brynjólfsdóttir Alma Brynjólfsdóttir Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSTA BJÖRG ÓLAFSDÓTTIR leikskólastjóri, lést 9. október á Hrafnistu, Reykjavík, í faðmi fjölskyldunnar. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn 22. október klukkan 13. Þökkum starfsfólki Hrafnistu alla umhyggju og hlýju. Karl Jóhann Ormsson Sigrún Karlsdóttir Magnús Björn Brynjólfsson Eyþór Ólafur Karlsson Margrét Árnadóttir Ormur Karlsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, sonur, bróðir, tengdafaðir og afi, GUNNAR LAUGI GUÐLAUGSSON húsasmíðameistari, lést þriðjudaginn 25. september. Útförin fer fram í Grafarvogskirkju fimmtudaginn 18. október klukkan 15. Anna Guðjónsdóttir Hannes Kristinn Gunnarsson Sigríður Hugrún Gunnarsdóttir Andrea Kristjana L. Gunnarsdóttir Guðlaugur J. Guðlaugsson tengdabörn og barnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.