Morgunblaðið - 16.10.2018, Síða 24

Morgunblaðið - 16.10.2018, Síða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 2018 ✝ SigurjónÁgústsson fæddist 4. ágúst 1924 í Sauðholti í Ásahreppi, Rang- árvallasýslu, og ólst þar upp. Hann lést á hjúkrunar- heimilinu Sunnu- hlíð í Kópavogi 6. október 2018. Foreldrar hans voru Ágúst Jóns- son bóndi í Sauðholti, f. 5.8. 1877, d. 10.7. 1954, og María Jóhannsdóttir húsmóðir, f. 9.3. 1880, d. 11.3. 1958. Sigurjón var 13. barn foreldra sinna og sá síðasti sem kveður. Sigurjón kvæntist Sigrúnu Grétu Guðráðsdóttur, f. 21.8. 1939, d. 9.3. 2006, 21. sept- ember 1957. Gréta var dóttir Guðráðs J.G. Sigurðssonar skipstjóra, f. 4.7. 1911, d. 18.4. 1994, og Rannveigar Hjart- ardóttur Clausen húsmóður, f. Björk á Heklu Sif og Birki Loga, Andri Freyr á Veturliða Frey, Reynir Ari er kvæntur Guðnýju Jónsdóttur og á Sindra Snæ og Lovísu. Sigurjón flutti 17 ára á höf- uðborgarsvæðið og stundaði nám í Flensborg samhliða Bretavinnunni og ýmsum versl- unarstörfum. Hann lauk versl- unarprófi frá VÍ árið 1943 og stofnaði verslunina Sif á Lauga- vegi sem hann rak um tíma með kunningja sínum. Hann hóf þá störf hjá Ríkisendurskoðun þar sem hann starfaði í um 40 ár, síðast sem deildarstjóri. Einnig ráku þau hjónin verslun í Auðbrekku í Kópavogi í nokk- ur ár ásamt Rannveigu og Guð- ráði og síðan sjálf. Hann lét af störfum hjá Ríkisendurskoðun 1984 sökum aldurs og lét þá til sín taka við skógrækt í sumar- húsalandi þeirra hjóna þar sem þau reistu sér bústað við Hró- arslæk í Rangárvallasýslu. Hann bjó í Skaftahlíð 20 í rúm 40 ár en þá fluttu þau á Dal- braut 16. Hann bjó í Sunnuhlíð síðustu fjögur árin. Útför Sigurjóns fer fram frá Guðríðarkirkju í dag, 16. októ- ber 2018, klukkan 13. 9.7. 1911, d. 8.10. 1996. Sigurjón og Gréta eignuðust tvö börn, Maríu Hrund, f. 24.7. 1957, og Guðráð Jóhann, f. 3.12. 1961. María er gift Jafet Óskarssyni og eiga þau fjögur börn; Lindu Mar- gréti, Evu Dögg, Óskar og Sigrúnu Jónu. Linda Margrét á Óðin Frey, Björn Grétar og Óskar Þór. Eva Dögg og kona hennar, Álfheið- ur Björk Heimisdóttir, eiga Sindra og Söru Sæberg. Guð- ráður er kvæntur Unni Ólöfu Sigurðardóttur og eiga þau fimm börn; Steinar Má, Grétu Björk, Unni Ýri, Andra Frey og Brynjar Smára. Einnig á hann Reyni Ara með Guðrúnu Jóns- dóttur. Steinar Már á Lilju Dögg og Guðna Má, Gréta Sigurjón Ágústsson, vinur minn, hefur kvatt þetta líf eftir langa ævi. Hann var oft búinn að tjá mér að hann væri tilbúinn að fara og nú hefur ósk hans ræst. Við Sigurjón vorum giftir systrum sem við höfðum kynnst á svipuðum tíma, við giftum okkur, stofnuðum fjölskyldur, eignuðumst börnin okkar og fluttum inn í eigin húsnæði á sömu árunum. Allt okkar líf og fjölskyldna okkar fléttaðist sam- an á einhvern máta. Árið 2004 þegar Gréta varð 65 ára og Sig- urjón 80 ára ritaði ég afmæl- isgrein um þau hjónakornin sem birtist í Morgunblaðinu og sagði þeim þá að hún væri ígildi minn- ingargreina. Mig langar til að segja frá því hvernig ég kynnt- ist Sigurjóni fyrst. Við Hulda vorum þá í tilhugalífinu og viss- um að Gréta var að slá sér upp með einhverjum manni úti í bæ sem kom svo í ljós að héti Sig- urjón og væri Ágústsson. Hann var ríkisstarfsmaður og fimmtán árum eldri en hún. Gréta var að vinna á Hagstofu Íslands og hafði kynnst Sigurjóni í skemmtiferð starfsmanna stjórnarráðsins á Eyjafjallajök- ul, en Sigurjón starfaði í rík- isendurskoðun fjármálaráðu- neytisins. Þau hittust iðulega í sambandi við störf sín og vorum farin að slá sér talsvert upp þess á milli, án þess að láta mikið á því bera. Þegar í ljós kom að Gréta var barnshafandi og al- vara lífsins blasti við hafði Sig- urjón allt aðra aðferð við að biðja um hönd hennar heldur en við unglingsstráklingarnir í sömu sporum hefðum gert. Í stað þess að læðupokast og reyna að komast hjá því að horf- ast í augu við gerðir okkar, þá bað hann um viðtal við foreldra Grétu, þau Guðráð og Rann- veigu, skýrði þeim frá málavöxt- um og bað síðan formlega um hönd hennar – punktur. Sigur- jón sem var hávaxinn maður og virðulegur í framkomu var að- eins þrettán árum yngri en for- eldrar Grétu og talsvert lífs- reyndur. Átti hann því eðlilega mikið auðveldara með að tjá sig og umgangast þau en við unga fólkið. Þau, væntanlegir tengda- foreldrar, hans voru satt að segja talsvert undrandi á allri þessari atburðarás en tóku hon- um vel og að sjálfsögu var ekk- ert annað að gera en að horfast augu við orðinn hlut. Hann var því boðinn velkominn í fjölskyld- una. Sigurjón var þá rúmlega þrítugur en Gréta sextán ára, sem sagt fimmtán ára aldurs- munur. Það tók okkur Huldu nokkurn tíma að aðlagast þess- ari breytingu hjá Grétu. Okkur fannst Sigurjón eitthvað svo langt frá okkur í öllum málum, aldri, áhugamálum, talsmáta, framkomu o.fl. Þær Hulda og Gréta voru samrýndar systur, enda aðeins rúmt ár á milli þeirra og það leið ekki á löngu þar til við tókum að kynnast Sigurjóni nánar og þá kom fljótt í ljós að aldursmunur okkar hafði lítið sem ekkert að segja. Þau Gréta og hann náðu mjög vel saman og sama er að segja um okkur Huldu, við skemmtum okkur saman, dönsuðum saman, hlógum saman, ferðuðumst sam- an og vinátta okkar allra jókst við hverja viðkynningu. Þau Sig- urjón og Gréta urðu og hafa verið nánustu og bestu vinir okkar Huldu í gegnum allt okk- ar líf. Ég þakka þessum góða vini mínum samfylgdina og votta Maríu, Guðráði og fjölskyldum þeirra samúð mína. Garðar Sigurðsson. Sigurjón frændi, eins og ég kallaði hann, er látinn. Sigurjón var yngstur föðursystkina minna, hávaxinn og teinréttur maður, meira en höfðinu hærri en faðir minn, en þeir voru mikl- ir vinir og sögðu gjarnan skemmtilegar sögur af barna- brekum sínum. Það eru ýmsar hugsanir sem leita á hugann þegar ég kveð þennan ágæta frænda minn, en hann og fjöl- skyldan skipuðu ávallt sérstak- an sess í huga mínum. Fyrstu minningarnar eru úr foreldra- húsum á Laugum, þegar Sig- urjón og Gréta komu í heimsókn ásamt börnum sínum, Mæju og Gúa, á stórum fjallabíl yfir há- lendið og dvöldust hjá okkur á Laugum, oftast í nokkra daga. Þá var mikið leikið og hlegið. Eitt sinn leit Sigurjón á mig og sagði: „Ég sé það á þér að þú átt eftir að verða eins stór og hann Sigurjón frændi þinn.“ Í mörg ár trúði ég þessum orðum og sagði hverjum sem heyra vildi. Hjá þeim dvaldist ég í Skafta- hlíðinni ásamt foreldrum mínum þegar sveitadrengurinn norðan úr Reykjadal kom í fyrsta skipti til Reykjavíkur, þá 11 ára. Það var tekið vel á móti okkur. Síðar eftir að ég hóf háskóla- nám í Reykjavík leit ég gjarnan inn hjá þeim. Oftar en ekki var spilastokkurinn dreginn upp og spiluðum við Sigurjón þá oftast ólsen ólsen eða kasínu með til- heyrandi ákafa. Með þessum fátæklegu orð- um kveð ég þennan kæra frænda minn og veit að Gréta tekur vel á móti honum. Maríu Hrund og Guðráði ásamt fjöl- skyldum þeirra sendum við Guðný innilegar samúðarkveðj- ur. Góður Guð fylgi ykkur öll- um. Knútur og Guðný. Sigurjón Ágústsson HINSTA KVEÐJA Nú gamall maður genginn er gata lífs hans endar hér. Faðir þökk ég færi þér fyrir allt sem gafstu mér. (MHS) María Hrund Sigurjónsdóttir. ✝ Lilja Halldórs-dóttir fæddist á Mel í Stykk- ishólmi hinn 8. september 1923. Hún lést á Land- spítala Fossvogi 13. september 2018. Foreldrar Lilju voru hjónin Elín Björnsdóttir frá Á á Skarðsströnd í Dalasýslu, f. 6.11. 1888, d. 2.7. 1942, og Halldór Bjarni Jónsson frá Hjarðarfelli í Miklaholts- hreppi á Snæfellsnesi, f. 13.3. 1919, d. 26.5. 1922, og Agnar Eyland, f. 20.9. 1925, d. 9.7. 1991. Lilja ólst upp í Stykkishólmi, gekk þar í skóla og lauk barna- og unglingaprófi 1938. Hún lauk eins vetrar námi í Kvenna- skólanum á Blönduósi. Árið 1946 fluttist hún suður til Reykjavíkur og hóf talsíma- námskeið hjá Landssímanum sem hún lauk árið 1947. Vann hún sem talsímakona í Reykja- vík frá árinu 1948. Hún var skipuð varðstjóri við Langlínu- miðstöðina árið 1971, átta árum síðar var hún skipuð yfirvarð- stjóri og gegndi því hlutverki til starfsloka árið 1993. Útför Lilju Halldórsdóttur hefur farið fram í kyrrþey. 1884, d. 14.7. 1973. Systkini Lilju voru Sverrir, f. 10.8. 1913, d. 16.6. 1957, kvæntur Ingi- björgu Marteins- dóttur, f. 2.6. 1927, d. 23.12. 2010, þau eignuðust þrjú börn. Stefanía Auðbjörg, f. 29.6. 1915, d. 9.7. 2011, giftist Hafsteini Jónssyni, f. 4.8. 1917, d. 23.2. 1987, þau eignuðust átta börn. Kjartan, f. 27.9. 1917, d. 29.8. 1920. Sigurborg Jóna, f. 2.12 Hinn 21. september síðastlið- inn var uppáhaldskonan okkar og frænka jarðsungin. Lilja Hall- dórsdóttir, langömmusystir okk- ar, var engri lík, ákveðin, kvikk í hreyfingum, vel tilhöfð, hress, hláturmild, stálminnug, vel lesin, fylgdist með öllu frændfólki og hér tölum við um fjórar kynslóðir sem hún var með púlsinn á. Hún vissi alltaf hvað fólkið hennar var að gera, hvort sem var í Svíþjóð eða Íslandi, hver var erlendis, hver var í námi, hver var að eign- ast barn og hún gat iðulega frætt okkur meira um ættingjana en við hana, hún var miðjan í ættinni. Eftir að afi Dóri dó ákváðum við systurnar að fara oftar í heim- sókn til Lilju frænku en afi og hún voru mjög náin. Í henni fundum við margt sem minnti okkur á afa og okkur þótti vænt um. Við fórum til hennar í slúður- spjall sem gat varað tímunum saman, fyrir okkur voru þetta ómetanlegar gæðstundir. Oft endaði það á því að Lilja fór og lagði sig í rúmið sitt, þá var ekki annað að gera en að fara í stofuna og leggja sig í sófann eða horfa á sjónvarpið, þó ekki áður en hún var búin að breiða yfir okkur teppi, því okkur mátti alls ekki verða kalt. Milli okkar var ekkert kyn- slóðabil, það var hægt að ræða við hana um um allt milli himins og jarðar. Hún sagði okkur frá gamla tímanum heima á Mel í Stykkishólmi þegar hún var barn og ung kona, böllunum í borginni, snyrtivörum á þeim tíma sem hún var ung, sögur úr vinnunni henn- ar á Símanum í gamla daga, að ekki sé minnst á sögur af Dóra afa og hans systkinum. Á móti sögð- um við henni frá skemmtanalífinu okkar systra, hvað væri nýtt í tísku og snyrtivörum, náminu okkar, vinunum, ferðalögum og fréttum af heimilinu. Hún sagði oft að hún saknaði þess að vera ung, hún mundi þann tíma vel. Oft buðum við upp á naglasnyrtingu meðan við spjöll- uðum en það gat reynst henni erf- itt þar sem hún var alltaf að stel- ast í að fá sér nokkra smóka á meðan lakkið þornaði og svo dæsti hún bara þegar hún var beðin um að vera róleg aðeins lengur. Það var stundum sem við hringdum og spurðum hvort hún gæti ekki hugsað sér eitthvað gott að borða í kvöldmatinn. Jú, það gat hún svo sannarlega en bara ef við fengjum okkur líka, þá vildi hún helst núðlur og djúp- steiktar rækjur frá Nings. Eftir matinn kom Lilja sér svo vel fyrir í stólnum sínum fyrir framan sjónvarpið og fékk sér nokkrar sígó eða „líkkistunagla“ eins og hún kallaði þær. Korteri seinna fór hún aðra umferð að matarborðinu og skammaðist í sjálfri sér fyrir að hafa borðað yfir sig eina ferðina enn. Lilja sagði stundum að við hefðum stolið hjarta sínu en raun- in var sú að hún stal hjörtunum okkar. Hún var okkur sem amma, uppáhaldsfrænka, vinkona og trúnaðarvinur. Elsku Lilja, takk fyrir allt sem þú hefur verið okk- ur og kennt okkur á lífsleiðinni. Við hefðum svo gjarnan viljað fá lengri tíma með þér. Þú varst vön að minna okkur á að við eig- um bara eitt líf og við lofum þér því að ferðast um heiminn og njóta lífsins til fulls á meðan við getum. Við kveðjum þig með söknuði en umfram allt með þakklæti í hjarta. Kær kveðja, Karen Eik og Dagbjört Edda Sverrisdætur. Lilja Halldórsdóttir Þökkum auðsýndan hlýhug við fráfall RAGNHEIÐAR MARGRÉTAR GUÐMUNDSDÓTTUR. Björn Ragnarsson Kristín Anna Claessen Birna Anna Björnsdóttir Peter Niculescu Lára Björg Björnsdóttir Tryggvi Tryggvason Björn Óttar Oddgeirsson Ólafur Benedikt Tryggvason Katrín Lára Niculescu Lára Alexandra Niculescu Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýju við andlát og útför ástkærs unnusta míns, bróður okkar, mágs og frænda, REIDARS JÓHANNESAR ÓSKARSSONAR, Rafnkelsstaðavegi 8, Garði. Sérstakar þakkir fá Útfararþjónusta Suðurnesja, sr. Sigurður Grétar og Kvenfélagið Gefn í Garði. Laufey Sigurðardóttir Þórdís S.Ó. Husby Örlygur Þorkelsson Ragnar Ó. Husby Edda Baldvinsdóttir frændsystkini og fjölskyldur þeirra Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, MAGNA JÚLÍANA ODDSDÓTTIR frá Ysta-bæ, Hrísey, Vestursíðu 8a, Akureyri, lést á gjörgæsludeild Sjúkrahússins á Akureyri laugardaginn 6. október í faðmi fjölskyldunnar. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Óskar Bernharðsson Oddur Óskarsson Sólrún Ingimarsdóttir Anna María Oddsdóttir Þorvaldur Gröndal Magna Júlíana Oddsdóttir Helgi Freyr Ólason Davíð Örn Oddsson Hildur Brynjarsdóttir Oddur Óli, Benedikt Kári, Markús Máni Óðinn Þór, Skírnir Freyr, Hólmar Aron, Brynja Sól Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, MARSIBIL SIGRÍÐUR EÐVALDSDÓTTIR, Eyri, Hvammstanga, lést mánudaginn 1. október á Sjúkrahúsinu Hvammstanga. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á Hvammstanga. Ársæll Daníelsson Dýrunn Hannesdóttir Pétur Daníelsson Ágústa Linda Bjarnadóttir Eðvald Daníelsson Sigurbjörg Berglind Sölvad. Gústav Jakob Daníelsson Guðrún Jóhanna Axelsdóttir og fjölskyldur Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BRYNJÓLFUR SIGURÐUR ÁRNASON bóndi á Vöðlum í Önundarfirði, sem lést á hjúkrunarheimilinu Bergi mánudaginn 8. október, verður jarðsunginn frá Holtskirkju í Önundarfirði laugardaginn 20. október klukkan 14. Brynhildur Kristinsdóttir Gunnhildur Jóna Brynjólfsd. Þorsteinn Jóhannsson Árni Guðmundur Brynjólfs. Erna Rún Thorlacíus Guðrún Rakel Brynjólfsdóttir Jón Sigurðsson barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.