Morgunblaðið - 16.10.2018, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 16.10.2018, Qupperneq 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 2018 Ármúla 24 - s. 585 2800 ÚRVAL ÚTILJÓSA Ég er að kíkja yfir fjörðinn eftir kindum núna, það er verið aðsmala hérna sunnan fjarðar,“ segir Jóhanna Lárusdóttir,bóndi á Brekku í Mjóafirði, þegar blaðamaður ræddi við hana í gær, en hún á 70 ára afmæli í dag. „Þetta er fé frá Norðfirði en það tilheyrir okkur að gera fjallskil á þessu.“ Jóhanna á ættir að rekja til Mjóafjarðar, en faðir hennar fæddist í Hlíð í Mjóafirði, en sjálf ólst Jóhanna upp í Reykjavík, í Skerjafirð- inum. Hún fluttist í Mjóafjörðinn þegar hún kynntist Sigfúsi Vil- hjálmssyni sem hefur ávallt búið á Brekku og var hreppstjóri þar og er núna hafnarvörður, en bátur fer milli Mjóafjarðar og Norðfjarðar með póst og vistir tvisvar í viku. Jóhanna og Sigfús eru með fjárbúskap á Brekku, voru mest með 200 hundruð kindur en þær eru núna 100. „Svo erum við með ferða- þjónustu á sumrin, tvö sumarhús og síðan Sólbrekku sem er fjölnota hús, það er líka félagsheimili og skóli, en núna er bara einn nemandi í skólanum en þeir voru fimm í hittifyrra.“ Tíu manns búa í Mjóafirði á veturna, átta í þorpinu og tveir á Dala- tanga. „Svo eru miklu fleiri hérna á sumrin, bæði ferðamenn og af- komendur sem koma og hjálpa til í búskapnum. Í tilefni afmælisins ætlum við að borða saman með dætrum okkar og þeirra fólki á Egilsstöðum í kvöld. Svo er verið að bollaleggja ferð til Póllands seinna í mánuðinum með dætrunum.“ Börn Jóhönnu og Sigfúsar eru Ingólfur, Lárus, Margrét og Anna Guðrún og barnabörnin eru sjö. Fjölskyldan Jóhanna ásamt eiginmanni, barnabörnum og tengda- föður, Vilhjálmi Hjálmarssyni, árið 2013, en hann lést árið 2014. Átta manns búa í þorpinu á veturna Jóhanna Lárusdóttir er sjötug í dag M agni Sverrir Sigur- hansson fæddist í Reykjavík 16.10. 1943 og átti fyrst heima á Laugavegi 93: „Þetta voru spennandi bernsku- slóðir, beint á móti Stjörnubíói og með Austurbæjarbíó á næstu grös- um. Í næsta húsi var skemmstistað- urinn Röðull og ísbúð á sama stað. Pabbi var kjörsonur Sigurhans Hannessonar sem var gullsmiður og verkstjóri í Héðni, og Magneu Ein- arsdóttur, en seinni kona hans var Valgerður Gísladóttir. Pabbi var skipstjóri á fiskibátum í Sandgerði og Keflavík. Þegar ég er sex ára fluttum við í Seláshverfi, úr hring- iðu bæjarlífsins upp í sveit, með fiskitrönur, Rauðavatn og Hólms- heiði í næsta nágrenni. Tveimur ár- um síðar fluttum við svo til Kefla- Magni S. Sigurhansson, stjórnarformaður Álnabæjar – 75 ára Með unga fólkinu Magni Sverrir og kona hans, Guðrún Hrönn, úti í garði heima, með barnabörnunum sínum sex. Sigli ég fleyi mínu til að kanna ókunn lönd Hafgolan Þetta er glæsisnekkjan sem þau Magni og Guðrún Hrönn nota tvisvar til þrisvar á ári til njóta lífsins á og sigla um Miðjarðarhafið. Hella Emelía Rún Ásgeirsdóttir fædd- ist í Reykjavík fimmtudaginn 23. nóvember 2017 kl. 8.47. Hún var 3.715 g, eða 15 merkur, og 51 cm. Foreldrar hennar eru Ásgeir Blöndal Steingríms- son og Kristín Björk Emilsdóttir. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.