Morgunblaðið - 16.10.2018, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 16.10.2018, Qupperneq 36
JÁ kvartett, hljómsveit gítarleik- arans Jóns Ómars Árnasonar, leikur á djasskvöldi Kex hostels í kvöld kl. 20.30 og er aðgangur ókeypis. Haukur Gröndal leikur á saxófón, Sigmar Þór Matthíasson á kontra- bassa og Skúli Gíslason á trommur. Leikin verða lög eftir Jón Ómar ásamt lögum eftir gítarleikarann Bill Frisell í bland við vel valda hús- ganga úr amerísku söngbókinni. JÁ á djasskvöldi ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 289. DAGUR ÁRSINS 2018 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 641 kr. Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr. Pdf á mbl.is 6.173 kr. I-pad áskrift 6.173 kr. Alfreð Finnbogason, framherji ís- lenska karlalandsliðsins í knatt- spyrnu, var í pirringskasti þegar hann lét vaða á markið á 81. mínútu af 25 metra færi gegn Sviss á Laug- ardalsvelli í gær. „Ég var orðinn ansi pirraður inni á vellinum, þar sem ég var ekki búinn að vera mikið inni í leiknum, og þegar ég sá mark- ið ákvað ég að láta vaða.“ »1 Skoraði glæsimark í pirringskasti ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Framkonur eru afar sannfærandi í fyrstu umferðum Íslandsmótsins í handknattleik. Haukar hafa ekki staðið undir væntingum. Selfoss situr í sama farinu. Nýliðarnir í KA/ Þór bíta frá sér. Stjarnan rak af sér slyðruorðið. Ívar Benediktsson fjallar um fjórðu umferð Olísdeildar kvenna í blaðinu í dag og birt er úr- valslið Morgunblaðsins úr umferð- inni. »4 Sannfærandi byrjun hjá Framkonum ÍSLAND Guðrún Óla Jónsdóttir gudruno@mbl.is Dr. Haukur Þorgeirsson málfræð- ingur mun í kvöld kl. 20:30 halda fyr- irlestur í Snorrastofu í Reykholti og ræða meðal annars um leitina að höf- undum Íslend- ingasagnanna. Í miðalda- handritum er engin þeirra eign- uð höfundi með skýrum hætti en fræðimenn hafa tengt þær við nafngreinda ein- staklinga með ýmsum rökum. „Stílmæling með aðstoð hugbúnaðar, þar sem textarnir eru á tölvutæku formi og orðtíðni borin saman milli texta, er nýleg tækni sem hefur auðveldað rannsóknarvinnuna og getur sagt okkur að það sé líklegt að ákveðnir textar séu eftir sama höfund,“ segir Haukur. Hann bætir við að það flæki þó málin að textar í miðaldahandrit- unum séu fæstir eignaðir nokkrum höfundum. „Þannig var nú bara tísk- an í þá daga, það þótti óþarfi. Það eru helst konungasögurnar sem eru eignaðar nafngreindum höfundum, þar á meðal Snorra Sturlusyni, Sturlu Þórðarsyni og Oddi munki.“ Hverjir eru höfundar Íslendingasagnanna? Haukur segir enga Íslendinga- sagnanna eignaða höfundi með skýr- um hætti en fræðimenn hafi með ýmsum rökum tengt þær við nafn- greinda einstaklinga frá 13. öld. „Fræðimenn hefur lengi grunað að eitthvað af Íslendingasögunum sé eftir þá frændur Snorra Sturluson og Sturlu Þórðarson. Egils saga hef- ur verið kennd Snorra Sturlusyni en orðafar Egils sögu hefur verið borið saman við orðafar Heimskringlu og þar eru sláandi líkindi. Það er auk þess rökrétt að Snorri hafi skrifað söguna vegna tengsla hans við svæð- ið þar sem hún gerist og fjölskyldu- tengsla.“ Haukur segir að þá megi tengja ákveðnar Íslendingasögur við Sturlu Þórðarson. „Hans er getið í Grettis sögu og það kemst næst því að ein- hver Íslendingasaga sé beinlínis eignuð einhverjum höfundi í fornum handritum. Í Grettis sögu er vísað til Sturlu; að hann hafi sagt hitt og þetta um Gretti og menn skilja það þannig að Sturla hafi samið ein- hverja frumgerð Grettis sögu en sú Grettis saga sem við höfum sé yngri og uppfærð gerð þar sem eldri gerð Sturlu hefur verið notuð. Elín Bára Magnúsdóttir vinnur nú að rann- sóknum á höfundarverki Sturlu og hún telur að mikið sé eftir af texta hans í þeirri gerð sem við höfum.“ Aðspurður hvort hann telji líklegt að hægt sé að hafna því að höfundur sé sá sami og upphaflega var talið, segir hann að fara verði varlega í slíkar ályktanir. „Það verður að hafa í huga hvernig miðaldatextarnir hafa verið varðveittir. Þeir hafa getað breyst töluvert í uppskriftum en þeir sem skrifuðu upp textana máttu breyta þeim og laga þá að eigin smekk og orðafari. Egils saga er til dæmis varðveitt í þremur gerðum og A-gerðin er sú sem fræðimenn hafa langmest fengist við og sú sem er sennilega líkust Heimskringlu. Ef við hefðum bara B-gerðina eða C- gerðina, þá myndu þessi líkindi við Heimskringlu trúlega vera minna áberandi.“ Leitin að höfundum Íslendingasagnanna  Engin eignuð höfundi með skýrum hætti í handritum Haukur Þorgeirsson Morgunblaðið/Golli Reykholt Í Snorrastofu í Reykholti í kvöld verður meðal annars rætt um leitina að höfundum Íslendingasagnanna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.