Morgunblaðið - 31.10.2018, Side 19

Morgunblaðið - 31.10.2018, Side 19
19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 2018 Vetrarfegurð Ljósmyndari Morgunblaðsins fangaði nýlega á filmu þetta undurfallega sólsetur við Vífilsstaðavatn, þar sem kvöldroðinn litaði bæði vatnið og himininn hlýjum tónum. Kristinn Magnússon Samstarf Norður- landaþjóða er okkur verðmætt. Menning okkar og tungumál eru svipuð og auðvelt er að sækja sér nám og vinnu á Norðurlöndum sam- anborið við önnur svæði. Þau eru sem okkar heimavöllur en á þriðja tug þúsunda Ís- lendinga eru ýmist í námi eða í vinnu víðs vegar um svæðið. Samanlagt eru Norðurlandaríkin stærsta einstaka „viðskiptaland“ okkar sé litið til vöru og þjónustu. Að því þarf að hlúa. Slíkur árangur er ekki sjálfgefinn þó að löndin séu innbyrðis lík og deili svipuðum gildum, sögu og menningu. Ákvörðunin um að Norðurlandaríkin eigi að vinna saman er meðvituð. Samvinnan leysir úr læðingi sköp- unarkraft og styrkleika sem verða ekki til nema af því að löndin styðja hvert annað á norrænum vettvangi. Löndin sækja hugmyndir að góðum lausnum hvert til annars, skiptast á reynslu, ræða þróun mála og sameig- inlega hagsmuni Norðurlandaríkj- anna. Slíkt samtal er mikilvægt. Samkeppnishæfni Norrænt samstarf skiptir okkur meira máli nú, ekki síst þegar svo mikill órói er á alþjóða- vettvangi. Þá þéttum við Norðurlandaríkin sam- starf okkar inn á við og gerum okkar besta til að hafa góð áhrif út í heim. Sama má segja um sam- tal er varðar löggjafar- starfsemi á vettvangi Evrópusambandsins. Með norrænni samvinnu má draga fram sérstöðu landanna sem styrkir samkeppnishæfni þeirra út á við. Norðurlandaríkin geta þannig vakið athygli á sérstöðu sinni á hvaða vett- vangi sem er, til að mynda í matvæla- framleiðslu og öryggi matvæla. Í mínum huga stendur Ísland öðrum löndum framar hvað varðar fram- leiðslu á heilnæmum matvælum, í sjávar- og landbúnaðarafurðum. Með heilnæmum matvælum er átt við hreinar afurðir í landi þar sem lyfja- notkun er með því allra minnsta sem þekkist í heiminum. Norðurlandaríkin hafa sett mat- vælaöryggi á dagskrá. Það er nefni- lega ekki sjálfgefið að matvæli eigi að flæða frjálst á milli landa á EES- svæðinu eins og hverjar aðrar vörur. Ekki í þeim tilfellum þegar verja þarf lýðheilsu gegn matvælum sem geta haft skaðleg áhrif á lífríkið hér á landi en ekki á meginlandi Evrópu. Ísland býr við þá sérstöðu umfram önnur lönd að auðveldara er að verjast sjúk- dómum, forðast sýklalyfjaónæmi og draga úr útbreiðslu slíkra baktería vegna þess að við erum eyja með hreina búfjárstofna. Slíkt er eftir- sóknarvert. Þrátt fyrir framþróun á nýjum sýklalyfjum hafa áhyggjur vísinda- fólks víða um heim farið vaxandi síð- astliðin ár vegna vaxandi sýklalyfja- ónæmis, sem er ógn sem taka þarf alvarlega. Það skiptir máli hvernig vara er framleidd og hvað þú býður þér og börnum þínum að borða. Þar erum við á Norðurlöndum sammála og að mestu samstiga. Gagnvegir góðir Norðurlandaráð er dæmi um vett- vang sem getur sett mál á dagskrá sem varðar okkar hagsmuni. Ísland tekur við formennsku í norrænu ráð- herranefndinni á næsta ári. Okkar áætlun var kynnt á Norðurlandaráðs- þinginu í Osló. Það þýðir að norrænir fundir og ráðstefnur færast til Íslands og samstarfið fer að stórum hluta fram hér á landi. Tækifæri eru í því til að treysta okkur fótfestu í samstarfinu. Yfirskrift formennskunnar er Gagnvegir góðir, sem er sótt í Háva- mál. Áherslan í formennskutíð Íslands er á þrjú meginatriði; ungt fólk á Norðurlöndum, sjálfbæra ferða- mennsku í norðri og hafið – bláan vöxt í norðri. Sérstökum formennskuverk- efnum verður ýtt úr vör, sem stýrt verður frá Íslandi. Markmiðið er að efna til innihaldsríks norræns sam- starfs um þessi málefni sem skili raunverulegum niðurstöðum og ár- angri fyrir almenning á Norður- löndum. Formennskan mun m.a. leggja áherslu á að styðja lítil fyrirtæki í ferðaþjónustu við að nýta sér vaxtar- möguleika sem felast í staðbundnum matvælum og stafrænni tækni. Í formennskunni verður einnig settur fókus á málefni Vestur-Norð- urlandaríkjanna, þ.e. Færeyja og Grænlands, og á norðurslóðamálin. Þar munum við samnýta krafta með formennsku okkar í Norðurskauts- ráðinu sem hefst líka á næsta ári. Síðast en ekki síst tengjum við alla formennskuáætlun okkar við heims- markmið Sameinuðu þjóðanna – og þannig við umhverfismálin. Við erum einfaldlega komin á þann stað að allt sem við gerum, þar með talið sjálfbærni matvæla, þarf að þjóna því markmiði að tryggja sjálfbærni og stemma stigu við lofts- lagsbreytingum. Margt smátt gerir eitt stórt, og formennskuverkefnin eru hluti af því. En fyrst og fremst viljum við koma með jákvæða orku og nýjar hugmyndir inn í norrænt samstarf á næsta ári, vera traust og ábyggilegt formennskuríki og tryggja að nor- rænt samstarf sé áfram kraftmikið og árangursríkt í okkar allra þágu. Eftir Sigurð Inga Jóhannsson » Það skiptir máli hvernig vara er framleidd og hvað þú býður þér og börnum þínum að borða. Þar er- um við á Norðurlöndum sammála og að mestu samstiga. Sigurður Ingi Jóhannsson Höfundur er samgöngu- og sveitar- stjórnarráðherra og samstarfs- ráðherra Norðurlanda. Norræn samvinna Það skal játað í upp- hafi að ég á erfitt með að skilja hugmyndir um að rétt sé og skylt að leggja svokallaðan há- tekjuskatt á launa- tekjur. Satt best að segja lít ég þannig á að þegar launafólk borgar tæplega helming launa sinna í beina skatta, þá sé um hátekjuskatt að ræða. Af hverjum 10 þúsund króna mánaðartekjum um- fram 893.713 krónur eru greiddar 4.624 krónur í staðgreiðslu – 46,24%. Árið 2008 var þetta hlutfall 35,72%. Þeir stjórnmálamenn eru til sem telja að þessi gríðarlega hækkun skatthlutfalls – 10,52%-stig – sé ekki nægjanleg. Það þurfi að ganga lengra og taka upp ofurskatta líkt og margir skattaglaðir vinstri menn lögðu til fyrir nokkrum árum. Hin sósíalíska „skattaformúla“ gerði þá ráð fyrir 60- 70% skatti á tekjur yfir einni milljón á mánuði og á uppboðsmarkaði hinna skattaglöðu var kallað eftir 80% skatti á tekjur yfir 1,2 milljónum. Krafan um hátekju- skattinn – ofurskattinn – er í samræmi við sannfæringu vinstri manna um að ríkis- sjóður sé að „kasta frá sér“ eða „afsala sér“ tekjum ef skattar eru ekki hækkaðir. Verið sé að „veikja“ skattstofna með því að ganga ekki fram af einurð og skatt- leggja allt það sem hreyfist. Í hugarheimi þeirra sem þannig tala er það merki um að land sé „skattaparadís“ þegar „aðeins“ önnur hver króna hverfur úr launa- umslaginu í tekjuskatt og útsvar. Í leit að lýðhylli Mikið væri gott ef þeir sem nú ganga fram fyrir skjöldu og boða há- tekjuskatt á launatekjur gæfu sér tíma og legðu jafnmikið á sig að berj- ast fyrir því að lækka álögur á al- mennt launafólk. Það væri heldur ekki úr vegi að þeir færðu rök fyrir því af hverju nær 30% hækkun tekju- skattsins (10,52%-stig) er talin merki um að verið sé að „afsala“ ríkinu tekjum. (Á liðnu ári greiddu ein- staklingar um 34 milljörðum krónum hærri fjárhæð í tekjuskatt en árið 2008, á föstu verðlagi.) Það kann vel að vera að það sé góð leið fyrir stjórnmálamann að afla sér lýðhylli með því að tala fjálglega um nauðsyn þess að leggja hátekjuskatt á fólk sem hefur góðar tekjur. En slík skattheimta aflar ríkissjóði ekki mik- illa fjármuna og skilar þeim engu sem hafa meðaltekjur eða lægri. Há- tekjuskattur eykur ekki ráðstöf- unartekjur þeirra – það verður ekk- ert meira eftir í launaumslaginu. Meira eftir í launaumslaginu Í aðdraganda kjarasamninga, sem að líkindum verða erfiðir og flóknir, er ekki óeðlilegt að horft sé til þess með hvaða hætti hægt er að lækka beinar álögur á launafólk – tryggja að ráðstöfunartekjur hækki með því að meira verði eftir í launaumslaginu en áður. Alltaf er horft til ríkissjóðs en lítt hugað að þeim álögum sem sveit- arfélögin leggja á íbúana en sum þeirra ganga fram af fullum þunga. Sá er þetta skrifar hefur ítrekað gagnrýnt tekjuskattskerfið og haldið því fram að það sé flókið, óréttlátt og refsi fólki þegar það nær að bæta sinn hag. Réttast sé að innleiða flata tekjuskattsprósentu með háum per- sónuafslætti sem lækki eftir því sem tekjur eru hærri og þurrkist að lok- um út. Flatur tekjuskattur með stig- lækkandi persónuafslætti tryggir einfaldleika en styrkir um leið stöðu láglaunastétta og millitekjuhópa. Ýtt er undir fólk í stað þess að berja það niður með háum jaðarsköttum sem eru fylgifiskar tekjutenginga og þrepaskipts tekjuskatts. Á vegum ríkisstjórnarinnar er unnið að endurskoðun tekjuskatts- kerfisins. Vonandi leiðir sú vinna til skynsamlegrar uppstokkunar og lækkunar skatta á launafólk. En þar með verða atvinnurekendur ekki leystir undan þeirri ábyrgð að ná samningum og stuðla að því að hægt sé að hækka laun þeirra sem lökust hafa kjörin. Margt vitlausara Hitt er auðvitað rétt að ríkissjóður þarf ekki, frekar en sveitarfélögin, að bíða eftir kjarasamningum til að lækka skatta eða gera sanngjarnar breytingar á tekjuskattskerfinu. Stefna Sjálfstæðisflokksins er a.m.k. skýr í þessum efnum. „Samkeppnis- hæf starfsskilyrði og hagstætt fyrir- tækjaumhverfi eru lykilatriði góðra lífskjara,“ segir í ályktun landsfundar sem haldinn var í mars síðastliðnum. Sjálfstæðismenn vilja einfalda skatt- kerfið og lækka tekjuskatt ein- staklinga þannig að tekjuskattur og útsvar lækki í áföngum í samtals 25% fram til ársins 2025. Í hugum Sjálfstæðismanna er ein- falt og skilvirkt skattaumhverfi for- senda öflugs og blómlegs atvinnulífs. Árið 2013 benti landsfundur á að „mesta kjarabót Íslendinga felist í lækkun skatta“ sem stuðlar að „meiri fjárfestingu og aukinni verðmæta- sköpun“. Aðilar vinnumarkaðarins gerðu margt vitlausara en að herma þessa yfirlýsingu upp á okkur Sjálfstæðis- menn. Eftir Óla Björn Kárason » Það kann vel að vera að það sé góð leið fyrir stjórnmálamann að afla sér lýðhylli með því að tala fjálglega um nauðsyn þess að leggja hátekjuskatt á fólk. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Margt vitlausara en að minna á stefnu landsfundar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.