Morgunblaðið - 31.10.2018, Qupperneq 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 2018
✝ Kristján ÞórLínberg Run-
ólfsson fæddist 5.
júlí 1956 á Sauðár-
króki. Hann lést á
Heilbrigðisstofnun
Suðurlands 17.
október 2018.
Foreldrar hans
voru Runólfur Mar-
teins Jónsson, f. 15.
desember 1919, d.
4. nóvember 2007,
og Halla Kolbrún Línberg
Kristjánsdóttir, f. 31. mars
1935, d. 29. október 2014. Systk-
ini Kristjáns eru: 1) Hólmfríður,
f. 12. ágúst 1953, maki Steinn, f.
7. mars 1948, þau eiga tvo syni
og fjögur barnabörn. 2) Inga, f.
5. ágúst 1954, maki Einar, f. 12.
september 1956, hún á fjórar
dætur og sjö barnabörn. 3) Guð-
rún María, f. 10. apríl 1958, hún
á tvö börn og tvö barnabörn. 4)
Ásgeir, f. 30. ágúst 1960, maki
Belinda, f. 22. febrúar 1969,
hann á átta börn og fimm
barnabörn. 5) Sigríður, f. 31.
desember 1962, maki Halldór, f.
4. júlí 1966, þau eiga tvo syni. 6)
Birna, f. 16. febrúar 1964, hún á
tvö börn. 7) Björg, f. 25. febrúar
1967, hún á eina dóttur. 8) Ró-
nóvember 1954, d. 16. mars
1999, Einar, f. 12. september
1956, Ingi, f. 18. apríl 1960,
Hrefna, f. 9. febrúar 1965, og
Ásta María, f. 17. september
1969. Börn Ragnhildar eru: 1)
Guðmundur Óli, f. 20. október
1973, maki Hrefna, f, 23. júlí
1974. Hann á þrjú börn; Gest
Egil, f. 3. júní 1994, Grím Egil,
f. 13. maí 2001, og Ragnhildi Jó-
hönnu, f. 23. maí 2005. 2) Hug-
rún, f. 18. mars 1976, maki Sig-
fús, f. 21. september 1976. Hún
á þrjú börn; Elís Aron, f. 22.
október 2003, Leon Mána, f. 22.
júní 2013, og Noel Evan, f. 9.
maí 2015. 3) Eiríkur Einar, f.
28. júní 1987, maki Guðrún Vil-
borg, f. 3. september 1987.
Hann á tvö börn; Elmar Elí, f. 6.
október 2010, og Victoríu Köru,
f. 4. desember 2012. Kristján
ólst upp í Skagafirði á Brúar-
landi í Deildardal og eyddi ung-
lingsárum á Eyrarbakka.
Meginhluta ævinnar bjó hann á
Sauðárkróki en fluttist í Hvera-
gerði árið 2004. Kristján var
mikill grúskari, safnaði m.a.
ljósmyndum, skjölum og göml-
um munum. Hann stofnaði
Minjasafn Kristjáns Runólfs-
sonar á Sauðárkróki og rak í
fjölda ára. Kristján hafði einnig
mikinn áhuga á ættfræði en
fyrst og fremst var hann mikill
hagyrðingur.
Útför Kristjáns fer fram frá
Hveragerðiskirkju í dag, 31.
október 2018, klukkan 14.
bert, f. 6. janúar
1975, maki Freydís,
f. 10. maí 1979, þau
eiga þrjár dætur.
Fyrri eiginkona
Kristjáns er Jó-
hanna Sigurðar-
dóttir, þau eiga
saman þrjá syni: a)
Jóhann Þór, f. 1.
nóvember 1974,
maki Olga Líndal,
f. 10. nóvember
1975. Hann á þrjú börn: Kára, f.
30. júlí 2000, Freyju, f. 16. jan-
úar 2002, og Ólaf Örn, f. 21.
apríl 2009. b) Gunnar Páll, f. 27.
september 1979, maki Laufey, f.
16. janúar 1984. Hann á þrjú
börn: Amelíu Nótt, f. 7. janúar
2004, Tinnu Katrínu, f. 16. júlí
2007, og Adam Val, f. 31. októ-
ber 2010. c) Sigurður Örn, f. 9.
mars 1981. Þann 15. júlí 2000
kvæntist Kristján Ragnhildi
Guðmundsdóttur, f. 30. júlí
1953. Foreldrar Ragnhildar eru
Guðmundur Einarsson, f. 19.
febrúar 1929, d. 17. desember
2004, og Sigfríð Valdimars-
dóttir, f. 27. september 1933.
Systkini Ragnhildar eru: Lilja,
f. 13. ágúst 1951, Ásdís, f. 30.
september 1951, Hulda, f. 7.
Fyrrverandi mágur minn
Kristján Runólfsson er fallinn
frá eftir tapaða baráttu við ill-
vígan sjúkdóm. Kristján er mér
einkar minnisstæður fyrir
margra hluta sakir. Hann kom
inn í fjölskylduna 1973 þegar
hann hóf sambúð með systur
minni, Jóhönnu Sigurðardóttur.
Um svipað leyti hófst vinskapur
okkar sem varði meðan hann
lifði. Stjáni og Hanna voru tíðir
gestir á mínu heimili og sam-
gangur var mikill. Ég minnist
margra gleðifunda enda var
Stjáni mikill gleðimaður sem
naut líðandi stundar. Þar sem
áhugasvið okkar voru keimlík
naut ég þess sérstaklega hve
Stjáni var vel að sér og ávallt
skemmtilegt að ræða við hann,
hann var hafsjór af fróðleik er
sneri að ýmsum málum. Við
ræddum saman um trúmál, ætt-
fræði, gamla muni, vísnagerð og í
raun allt milli himins og jarðar.
Þá var Stjáni einkar bóngóður og
þar sem hann var handlaginn á
járn hjálpaði hann mér margoft
með ýmislegt sem laga þurfti í
sveitinni. Stjáni var hagyrðingur
góður og eftir hann liggur mikið
af kveðskap, þá hafði hann gam-
an af að taka í spil og tefla. Hann
var söngvinn og hrókur alls fagn-
aðar á mannamótum. Þegar leið-
ir þeirra Stjána og Hönnu skildu
fækkaði stundunum sem við átt-
um saman og ég missti góðan vin
og félaga úr héraði. Stjáni bjó í
Hveragerði seinni hluta ævi
sinnar og átti ég þess kost að
hitta hann nokkrum sinnum, sem
var afar ánægjulegt. Síðast hitti
ég Stjána á Hrútadeginum á
Raufarhöfn fyrir fjórum árum,
þar naut Stjáni sín í góðra vina
hópi, hópi sem hafði það að
markmiði að skemmta sér og
öðrum. Þar áttum við Stjáni
ánægjulega stund saman, stund
sem núna er minning sem ég
mun geyma í hjarta mínu ásamt
öllum hinum samverustundun-
um.
Ég votta ástvinum Kristjáns
mína dýpstu samúð.
Fallinn er frá góður vinur og
félagi.
Stjáni minn, hvíl í friði.
Þinn vinur
Ari Jóhann Sigurðsson.
Ljóðið er líf. Lífið er ljóð-
rænt …
Kristján Runólfsson, heiðurs-
ljóðafélagi Ljóðaseturs Hvera-
gerðis, er látinn. Horfinn með
hafsjó af fróðskap, ljóðum og
stökum. Kristján hefur glatt
okkur með ljóðum sínum og vís-
um. Kristján hefur sýnt okkur
fram á gildi lífsins og að bera
virðingu fyrir lífinu með ljóðum
sínum og vísum. Kristján er mik-
ill lærifaðir með ljóðum sínum og
vísum. Blessi þig Kristján minn
fyrir öll þín ljóð og vísur og allan
fróðskap, sagnir og sögur …
Kristján var Skagfirðingur
fram í fingurgóma og unni firði
sínum mjög og sérstaklega Fljót-
unum. Sagði eitt sinn við mig að
það væri enginn sannur Skag-
firðingur, nema hann væri úr
Fljótunum. Ég held að hann hafi
verið að grínast.
Hér er eitt fagurt ljóð eftir
Kristján Runólfsson. Þetta varð
til í Skagafirði og hér er sterkt
kveðið.
Drangey og Málmey þær Skagafjörð
skreyta
skínandi kveldröðull spillir ei sýn
frjósamar jarðir hér finnast til sveita
fallvötnin ólga sem glitrandi vín.
Svona er háttlofað heimkynni vort
og hér hafa skáldin svo dýrlega ort.
Hér eru fjöllin sem fjörðinn minn prýða
fögur er ásýnd með dali og skörð.
Úr giljum og skorningum lækirnir líða
lífga og vökva hér frjósama jörð.
Hér hefur skaparinn vandað sín verk
sem vara um eilífð, svo mögnuð og
sterk.
Fagurt er mannlíf í firðinum kæra
fagnandi gleði hvern einasta dag
hér búa skáldin sem mjög vilja mæra
magnaða töfra og fella í brag.
Hvergi er fegurðin fegurri en hér
og fullvíst má telja að hver maður sér.
Blessi þig, Kristján minn.
Hann var …
Sigurður Blöndal.
Kristján Runólfsson, hagyrð-
ingurinn snjalli og safnarinn iðni,
er dáinn eftir stuttan en harðvít-
ugan lokaslag við ofjarl lækna-
vísindanna.
Það er þungt áfall fyrir fjöl-
marga vini hans að missa hann
svo ungan. Þeirra á meðal vorum
við í litla Kvæðamannafélaginu
Árgala á Selfossi. Við söknum
hans sárt.
Hann sótti vel fundi okkar og
var lengst í stjórn félagsins.
Hann var gleðivaki og áhuga-
samur um að kynna kvæða-
mennskuna fyrir öðrum.
Hann kom með gesti á okkar
fundi. Elís barnabarn hans
drakk í sig áhuga afa síns og
hafði fengið brennandi áhuga á
kveðskap, en við veru hans í Sví-
þjóð var sambandið erfiðara.
Hann spurði afa sinn fyrst af öllu
þegar hann kom í heimsóknir til
Íslands: „Er ekki bráðum fundur
í Árgala?“ Elís er velkominn á
okkar fund þegar hann vill og
getur og fundirnir eru eins og
áður á öðrum mánudegi hvers
mánaðar að vetrinum.
Allir eru velkomnir á okkar
fundi.
Kristján var iðinn við að setja
ljóðin sín á leirinn og vísur hans
og ljóð voru oftast þrungin hlýju,
gamansemi og spekiorðum.
Þessar vísur komu á netið fyr-
ir nokkru:
Leikum okkur varlega á lífsins hálu
braut,
því létt er gangan oftast breiða veginn.
Syndin leynist víða og sendir okkur
þraut
og sumir fara út af báðum megin.
En þeim sem fara mjóa veginn gatan
sækist seint
og sigurlaunin oft í fjarska bíða.
Upp á tindinn háa menn varla geta
greint
götuna, sem dyggðugt líf skal prýða.
Við blessum minningu Krist-
jáns og þökkum honum fyrir
skemmtilegar samverustundir
og yndisleg kynni. Ragnhildi
konu hans, ættfólki hans og vin-
um sendum við hlýjar samúðar-
kveðjur.
Ólöf Erla og Sigurður
dýralæknir Selfossi.
Kristján Þór Lín-
berg Runólfsson
Hér sit ég dapur
í bragði og magn-
vana yfir því
hversu lífið getur
stundum verið
ósanngjarnt og óskiljanlegt.
Ómar Friðleifsson, eða Ommi
eins og hann var alltaf kallaður,
vinur minn og samstarfsfélagi
til 30 ára, var hrifsaður frá okk-
ur á besta aldri, einungis 48 ára
gamall. Hann háði hetjulega
baráttu við illvígan sjúkdóm og
lét í minni pokann þann 13.
október síðastliðinn, eftir 18
mánaða baráttu, baráttu sem
hann háði af æðruleysi og ein-
stökum dugnaði. Leiðir okkar
Ómar Ingi
Friðleifsson
✝ Ómar IngiFriðleifsson
fæddist 19. mars
1970. Hann lést 13.
október 2018. Útför
Ómars fór fram 26.
október 2018.
Omma lágu saman í
gegnum starf okkar
hjá Sambíóunum,
hann byrjaði sem
dyravörður í einu
bíóanna og ég var á
skrifstofu fyrirtæk-
isins. Árin liðu og
áður en maður vissi
af var Ommi tekinn
við starfi sölustjóra
myndbandadeildar,
starfi sem hann
sinnti af alúð og ótrúlegum
áhuga til þess dags, er hann
þurfi að láta undan í baráttu
sinni. Ommi átti ákaflega auð-
velt með öll mannleg samskipti,
var hreinskiptinn og menn vissu
nákvæmlega hvar hann stóð í
málum, enda eignaðist hann
mikið af góðum vinum í gegnum
bransann, þar sem hann heillaði
menn með sínum góða og beitta
húmor og fróðleik um allt er við-
kom kvikmyndabransanum, og
reyndar á öðrum áhugasviðum
sínum, eins og t.d. tónlist og fót-
bolta. Þessu fékk ég að kynnast
vel, við vorum miklir mátar og
báðir algjörir bíónördar, gátum
endalaust talað um myndir, og
höfðum svipaðan smekk fyrir
kvikmyndum og vorum alltaf að
ræða hvernig við myndum sigra
íslenska bíómarkaðinn með
þessari og ekki síður þessari
kvikmynd. Við héldum á ófáa
kvikmyndamarkaði saman og
gátum þar verið á bíó-
prufusýningum, helst allan dag-
inn – og við elskuðum það. Ann-
að áhugamál áttum við
sameiginlegt og það var fótbolti,
og númer eitt, tvö og þrjú, Liv-
erpool.
Við vorum báðir miklir Pool-
arar og fórum saman í okkar
fyrstu ferð á Anfield, þar sem
átta ára sonur minn var með í
för. Þetta var stórkostleg ferð
um haustið 2001 og ekki þótti
okkur verra að Liverpool sigraði
Man Utd, 3-1. Ég hugsa oft til
þessarar ferðar og ekki fyrir svo
löngu síðan, fann ég heima litla
bók sem sonur minn fékk í ferð-
inni, Liverpool-bók til að safna
eiginhandaráritunum. Fletti ég
henni og höfðu miklir snillingar
skrifað í bókina, eins og Ian
Rush og Michael Owen, og svo
gat ég ekki annað en brosað, því
einn íslenskur meistari hafði rit-
að í bókina, þar stóð skrifað
„Ómar Friðleifsson“.
Því miður atvikaðist það
þannig að ég er staddur erlendis
og get ekki fylgt vini mínum,
Omma, til grafar og er það
þyngra en tárum tekur. Hugur
minn og hjarta verður hins veg-
ar hjá Svölu hans, strákunum
þeirra og fjölskyldum á þessum
erfiðu tímum. En ég mun hugsa
til gömlu góðu stundanna, skála
fyrir Omma í einum köldum,
þegar lengra líður frá, þá mun
ég hugsa hlýtt til míns góða vin-
ar, ylja mér við minningar um
góðan dreng og mikils meistara.
Eitt þykir mér hins vegar sárt,
að við náum ekki að upplifa
saman þegar Liverpool lyftir
bikarnum mikla, ekki verður
langt í það. En ég veit að hann
verður með mér, því eins og við
Liverpool-stuðningsmenn segj-
um „Lífsins veg þú fetar ei
einn“ (YNWA). Guð blessi góð-
an dreng.
Þorvaldur Árnason.
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
KJARTAN K. STEINBACH
rafmagnstæknifræðingur,
Lágabergi 7, Reykjavík,
lést á Landspítalanum fimmtudaginn
25. október. Útför fer fram frá Fella- og Hólakirkju
mánudaginn 5. nóvember klukkan 15.
Marta Guðmundsdóttir
Karólína Steinbach Örvar Steinbach
Brynjar Steinbach Fríða Hjaltested
Viktoría Arna, Þórey Emilíana og Arnór Mikkel
Sonur okkar og bróðir,
BRAGI ÓLAFSSON
Marbakkabraut 14, Kópavogi,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans í
Fossvogi föstudaginn 26. október.
Útförin fer fram frá Lindakirkju mánudaginn
5. nóvember klukkan 15.
Þeim sem vilja minnast hans bendum við á Styrktarfélagið Ás.
Ólafur Jóhann Ólafsson Sigríður Einarsdóttir
Andrea Diljá Ólafsdóttir
Hrefna Ólafsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ERLA MAGNÚSDÓTTIR
lést á Hjúkrunarheimilinu Ísafold í Garðabæ
þriðjudaginn 23. október.
Útförin fer fram frá Neskirkju föstudaginn
2. nóvember klukkan 13.
Anna Sigurveig Ólafsdóttir Björn Magnússon
Ragna Ólafsdóttir
Emil Ólafsson
Sunna Ólafsdóttir Þröstur Jóhannsson
barnabörn og langömmubörn
Elskuleg móðir mín og systir okkar,
GUÐRÚN SIGRÍÐUR HARALDSDÓTTIR
listamaður,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í
Reykjavík föstudaginn 2. nóvember
klukkan 13.
Óðinn Örn Hilmarsson
Brynjar Haraldsson Þórir Haraldsson
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðn-
ir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra
horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr
felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að
hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstu-
degi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist
áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri
en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru ein-
göngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna.
Minningargreinar