Morgunblaðið - 31.10.2018, Qupperneq 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 2018
SMÁRALIND – KRINGLAN
HILLA+STOÐIR
VERÐ 12.900,- STK.
PYTHAGORAS
Auðbjörg Brynja Bjarna-dóttir, ljósmóðir oghjúkrunarstjóri á
Heilsugæslunni á Kirkjubæj-
arklaustri, á 40 ára afmæli í
dag. Á heilsugæslunni starfa
auk hennar læknir í hálfu starfi
og móttökuritari. Að auki eru
sjúkraflutningamenn á bak-
vakt og er Auðbjörg einn
þeirra, en hún hefur nýlega
lokið viðbótarnámi í sjúkra-
flutningum.
„Heilsugæslan á Kirkjubæj-
arklaustri er ein af mörgum
starfsstöðvum Heilbrigðis-
stofnunar Suðurlands í stærsta
heilbrigðisumdæmi landsins.
Svæðið okkar er mjög víðfeðmt
og fjölmennt enda margir
ferðamenn á svæðinu. Það má
segja að lögformleg mörk séu
ekki lengur á svæðinu en svæð-
ið okkar nær hálfa leið að Vík og austur fyrir Skaftafell, sem kallar á
náið samstarf við heilsugæsluna í Vík og á Höfn í Hornafirði. Maður
þarf að vera í stakk búinn til að takast á við fjölþætt verkefni. Starfið
er í senn ögrandi og krefjandi en bráðskemmtilegt. Það er óhætt að
segja að engir tveir dagar séu eins í starfi mínu.“
Auðbjörg hefur einnig tekið virkan þátt í ýmsum nefndastörfum,
bæði á vegum sveitarfélagsins og í almennum félagsstörfum, ýmist
sem stjórnarmaður eða félagsmaður. Þar má nefna að hún er formað-
ur Rauða krossins á Klaustri.
Auðbjörg hefur í rúmlega tíu ár búið á Maríubakka í Fljótshverfi
ásamt sambýlismanni sínum og börnum. Auðbjörg er úr Garðabæ en
maðurinn hennar er frá Maríubakka. „Við erum með fáeinar kindur
og rófurækt. Við tókum við því af tengdaforeldrum mínum, en þau
höfðu stundað rófubúskap áratugum saman.“
Í frítíma sínum nýtur Auðbjörg þess að vera með fjölskyldu og vin-
um og býst við að afmælisdagurinn verði hæfileg blanda af leik og
starfi. „Svo stefnum við á fjölskylduferð í sólina í vetur þegar um
hægist, hver veit nema maður geri sér dagamun þegar tækifæri gefst
til. Hver stund er dýrmæt og er hver dagur gjöf með sínu fólki – lífið
er núna.“
Sambýlismaður Auðbjargar er Bjarki Vilhjálmur Guðnason,
sjúkraflutningamaður og vélstjóri. Börn þeirra eru Maríanna Katrín,
14 ára, Bríet Sunna, 8 ára, og Kristófer Gunnar, 6 ára.
Afmælisbarnið Auðbjörg Brynja.
Hjúkrunarstjóri
og rófuræktandi
Auðbjörg Brynja Bjarnadóttir er fertug í dag
S
tefán Baxter fæddist í
Växjö í Svíþjóð 31.10. 1968
þegar móðir hans, Þur-
íður Baxter, stundaði þar
nám 1968: „Við mamma
fluttum heim þegar ég var tveggja
ára og ég ólst upp í Breiðholtinu til 11
ára aldurs. Þá var þar allt morandi af
krökkum og hverfið ævintýraheimur
fyrir uppátækjasama grallara. Eftir
stutt stopp á Húnavöllum fluttum við
í miðbæinn. Pabbi minn er Spánverji
sem mamma kynntist við nám í
Barcelona, en pabbi mömmu er Am-
eríkani sem amma kynntist hér á
stríðsárunum og skrapp rétt sem
snöggvast með til Ameríku. Þessi
blanda hefur svínvirkað fyrir mig og
er stanslaus áminning um að heim-
urinn er stærri en 101 Reykjavík.“
Skólagangan hjá Stefáni var í
styttri kantinum og félagslífið oftast
Stefán Baxter tæknistjóri – 50 ára
Í sprotastarfinu Stefán með tveimur ungum ofurhugum í frumkvöðlakeppninni Start up Reykjavík fyrir skömmu.
Kraftmikill torfæru-
jeppi ótroðinna slóða
Á níunda áratugnum Ungi breikarinn í banastuði í Hollywodd á árum áður.
Baldur Sveinn Scheving raf-
virkjameistari á 80 ára af-
mæli í dag. Hann fagnar deg-
inum í sólinni á Tenerife.
Árnað heilla
80 ára
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.