Morgunblaðið - 31.10.2018, Page 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. OKTÓBER 2018
Sú stund rennur brátt uppað meta verður heildar-þátt Vladimirs Ashkenazyí íslensku tónlistarlífi, þ.
á m. nána vináttu þeirra Þorkels
Sigurbjörnssonar tónskálds.
Ashkenazy pantaði ófá tónverkin
og frumflutti með hljómsveitum
sínum um heiminn, svo sem og
Gang í Prag haustið 2001 að Þor-
katli viðstöddum. Verkefnaskrá
kvöldsins var eins konar málandi
tónafljóð frá norðrinu, sú sama og
bíður gesta í tónleikaför Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands í Japan í
nóvember nk. Jökulljóðið, hlið-
stæðan við Mistur frá 1972, er ör-
stutt skáldleg nálgun Þorkels á
náttúruna; röð skjáskota við
jökulrætur án þess að vera eftir-
herma náttúrunnar, heldur úr-
vinnsla höfundar á minningum
hans um áhrif náttúrunnar á hann
sjálfan, eða svo var skrifað um
það leyti sem verkið var frumflutt
í Berlín haustið 1998; á næturnar
ríkir kyrrð við jökulinn, aðeins
brestirnir í ísmassanum rjúfa
þögnina sem þenst út eða dregst
saman og hljóðin framkalla tón-
verk náttúrunnar var haft eftir
Þorkatli. Strengjasveit framkall-
aði langvarandi stillu fannbreið-
anna en bassatromma ásamt
bassaklarínettu dýpstu tóna úr
iðrum, allt fimlega leyst. Nobu-
yuki Tsujii, einleikari kvöldsins,
var nú mættur öðru sinni í ár í
Eldborg. Í minningunni hljómar
skínandi bjartur tónn, hreinn og
fagur, og næmninni hjá þessum
blinda tónlistarmanni er við-
brugðið. Nú var röðin komin að
konsertnum sem færði Tsujii sigur
í Van Cliburn-keppninni. Flutn-
ingurinn náði því miður aldrei
flugi, var snauður og flatur, og í
full hægu tempói. Ef til vill var
það sambandsleysi við stjórnand-
ann þetta kvöldið, en það var
áberandi hve illa Tsujii gekk að
framkalla eðlilega framvindu,
andardrátt, andann í verkinu,
m.ö.o. rússneska eldmóðinn. Leik-
urinn varð þess vegna of léttur og
varfærnislegur, flæðið ómarkvisst
og taktslag á köflum milli hans og
hljómsveitar úr skorðum. Það
vantaði sárlega rífandi kraftinn og
ákefð í stað blíðuhóta í svo til
hverri hendingu konsertinn á
enda. Best tókst Tsujii upp í mið-
kaflanum.
Önnur sinfónía Sibelius er
dirfskufull tónsmíð, köld með
skarpri innri glóð. Fyrsti kaflinn
er meistaralega ofinn úr nánast
mósaík, hljómbrotum sem rísa í sí-
fellt máttugri hendingatilbrigði.
Helsti styrkur Askhenazy sem
hljómsveitarstjóra er ómæld út-
geislun en hún skilaði sér ekki
áfram til bandsins í þetta sinn.
Það var líkt og ferðaskrekkur sæti
í hljómsveitinni sem hljómaði óör-
ugg og skaplaus, án áræðis. Allra
síðast, á seinustu metrum loka-
kaflans, kreisti hljómsveitin fram
það afl og skap sem til þarf. Og
nú heldur Sinfónían íslenska út í
heim – og er vel að því komin, að
viðra sig eftir dygga þjónustu inn-
anlands síðustu ár – og spila sig
betur saman í jafnvel enn betri
tónleikasölum en Eldborg.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Á leið til Asíu
Eldborg í Hörpu
Sinfóníutónleikar bbmnn
Þorkell Sigurbjörnsson: Jökulljóð; Serg-
ei Rakhmanínov: Píanókonsert nr. 2 og
Jean Sibelius: Sinfónía nr. 2. Einleikari:
Nobuyuki Tsujii á píanó. Hljómsveitar-
stjóri Vladimir Ashkenazy. Eldborg
Hörpu fimmtudaginn 25. október 2018.
INGVAR
BATES
TÓNLIST
Ferðafélagar Píanóleikarinn Nobuyuki Tsujii og hljóm-
sveitarstjórinn Vladimir Ashkenazy halda senn með
Sinfóníuhljómsveit Íslands í tónleikarferð um Japan.
Hljómsveitin
GÓSS heldur
tónleika í Iðnó í
kvöld kl. 20.30.
GÓSS er skipuð
tveimur af ást-
sælustu söngv-
urum landsins,
þeim Sigríði
Thorlacius og
Sigurði Guð-
mundssyni, og einnig er í henni
bassaleikarinn Guðmundur Óskar,
bróðir Sigurðar og meðleikari
Sigríðar úr hljómsveitinni Hjaltal-
ín, svo fátt eitt sé nefnt.
„GÓSS á sér djúpar rætur,
þrátt fyrir að vera nokkuð ný af
nálinni. Sveitin hefur spilað víða
um land undanfarin tvö ár og
mun nú í fyrsta sinn halda tón-
leika í Iðnó,“ segir á Facebook um
tónleikana en miðasala fer fram á
tix.is.
Salurinn verður opnaður kl. 20.
Setið verður á tónleikunum og er
sætaval frjálst.
Tríóið GÓSS heldur
tónleika í Iðnó
Sigríður Thorlacius
Kristján
Jóhannsson ten-
ór og Antonía
Hevesí píanó-
leikari koma
fram á hádegis-
tónleikum í Bú-
staðakirkju í
dag, miðviku-
dag, kl. 12.05.
Á efnis-
skránni eru
nokkrar perlur tónbókmennt-
anna. Um er að ræða síðustu tón-
leikana í Bleikum október sem
staðið hefur í Bústaðakirkju allan
mánuðinn undir listrænni stjórn
Jónasar Þóris.
Sem fyrr er aðgangur ókeypis
og allir velkomnir.
Lokatónleikar Bleiks
októbers í hádeginu
Kristján
Jóhannsson
Myndstef, myndhöfundarsjóður Ís-
lands, veitti styrki til myndhöfunda í
sextánda sinn á föstudaginn var, 26.
október, í sal Sambands íslenskra
myndlistarmanna. Rúmum 10 millj-
ónum var úthlutað í verkefnastyrki
og ferða- og menntunarstyrki, sem
hækkaði heildarupphæð styrkja til
myndhöfunda á þessum sextán árum
yfir 100 milljónir, að því er fram
kemur í tilkynningu. „Stjórn og
starfsfólk Myndstefs er sérlega
ánægt með að geta stutt og styrkt
starfandi myndhöfunda við störf sín,
en styrkþegarnir koma frá fjöl-
breyttum geirum sköpunar; mynd-
listarmenn, ljósmyndarar, arkitekt-
ar, teiknarar og alls kyns hönnuðir,“
segir þar og að fjármunir sem
Myndstef úthluti með þessum hætti
séu greiðslur til samtakanna vegna
notkunar á vernduðum mynd-
verkum. Eitt af hlutverkum samtak-
anna sé að koma þeim greiðslum til
myndhöfunda og þá meðal annars í
formi styrkja.
Í fyrra var slegið fjöldamet í um-
sóknum sem bárust, eða nánast tvö-
földun frá árunum áður, sem má
m.a. rekja til þess að umsóknarferlið
var gert rafrænt í fyrsta sinn og í ár
var fjöldametið slegið aftur því um
70% fleiri umsóknir bárust í ár en í
fyrra.
162 sóttu um verkefnastyrk og
hlutu þá 34 umsækjendur; 92 um-
sóknir bárust um ferða- og mennt-
unarstyrk og hlutu þá 22 umsækj-
endur. Lista yfir styrkþega má finna
á vef Myndstefs, myndstef.is.
Ljósmynd/Myndstef/GSV
Styrkþegar Hópurinn fyrir utan sýningarsal SÍM á föstudaginn var.
Umsóknir aldrei fleiri
Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi, Akureyri | ) 588 0640 | casa.is
Cuero Mariposa
Hannaður árið 1938 af:
Bonet, Kurchan & Ferrari
Leður stóll verð 149.000,-
Leður púði verð 13.900,-
ICQC 2018-20