Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.10.2018, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.10.2018, Blaðsíða 2
Morgunblaðið/Valli LÁRUS JÓHANNESSON SITUR FYRIR SVÖRUM Einstök tónlist Hvert er uppleggið á tónleikunum? „Við komum saman ásamt fjölskyldu og nánum vinum Jóhanns og flytjum verk hans en einnig verk innblásin af honum. Við heiðrum minningu þessa ótrúlega listamanns sem tengdi ólíka heima saman og má líta á þetta sem þakkargjörð og einnig yfirlýsingu um að við ætlum að halda minningu hans á lofti um ókomna tíð. Segja má að það sé stórt gat í okkur öllum sem við erum að reyna að fylla með því að sækja kraft í hvert annað.“ Eiga tónleikarnir sér langan aðdraganda? „Já. Vinir Jóa sáu um tónlistina í útförinni hans og strax að henni lokinni bundust menn fastmælum um að efna til minn- ingartónleika. Við gáfum okkur síðan góðan tíma til að skipu- leggja tónleikana og gera þetta vel.“ Hvert rennur ágóðinn? „Allir sem koma fram gefa vinnu sína og ágóðinn rennur óskiptur í sjóð sem fjölskylda og vinir Jóa hafa stofnað til minningar um hann. Sjóðurinn er stofnaður í Bandaríkj- unum og mun fyrst um sinn starfa þar og á Íslandi. Með tíð og tíma mun hann vonandi starfa víðar. Starf sjóðsins er í mótun en fyrir liggur að markmið hans verða aldrei skilgreint þröngt. Fyrst og fremst að láta gott af sé leiða í nafni Jóa.“ Stendur til að gera fleira til að halda minningu Jóhanns á lofti? „Já. Ýmislegt stendur til, meðal annars að efna til hátíðar hér á Íslandi sem tengjast mun hugðarefnum Jóa. Það sem Jói stóð fyrir má ekki glatast og nú berum við vinir hans og fjölskylda ábyrgð á því að halda merki hans á lofti. Okkur dreymir einnig um að styrkja ungt og hæfileikaríkt fólk og hugsanlega að opna því dyr út í heim.“ Hvers vegna náði Jóhann svona langt? „Margir þættir gerðu það af verkum en fyrst og fremst voru það þó miklir hæfileikar sem hann bjó að. Auðvelt er að sóa hæfi- leikum en Jói hlúði alla tíð vel að sínum, auk þess að vera forvit- inn og metnaðargjarn að eðlisfari. Það var dásamlegt að fylgjast með honum springa út og finna sína rödd. Jói var mjög óvenju- legur listamaður, fór sínar eigin leiðir og tónlistin hans er algjör- lega einstök.“ Og aðdáendahópurinn var stór. „Heldur betur. Við höfum fundið vel fyrir því eftir að við stofn- uðum sjóðinn; fólk út um allan heim er boðið og búið að leggja okk- ur lið. Sum kvikmyndatónskáld eru þeirrar gerðar að fólk fer í bíó nær eingöngu til að hlusta á tónlistina. Jóhann Jóhannsson var eitt af þeim. Ég held að margir Íslendingar hafi kannski ekki áttað sig á því fyrr en nú hversu djúp spor Jói skilur eftir.“ Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.10. 2018 Ritstjórn Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Það er upplífgandi að lesa viðtal við mann sem hefur ferðast um heimallan tala um góðmennsku fólks í öllum heimshornum. Í blaðinu í dager rætt við Kristján Gíslason sem tók sig til og spólaði um jarðar- kringluna á mótorhjóli í tíu mánuði. Og hvað ætli sitji helst eftir hjá honum eftir þetta mikla ferðalag? Jú, alls staðar hitti hann gott og vandað fólk. Gestrisni og gleði kynntist hann í löndum sem hann hafði talið hættulegt að fara til. Hið góða í fari mannskepnunnar stendur upp úr hjá ferðalangnum. Oft er talað um að fjölmiðlar dragi upp helst til dökka mynd af veröldinni, hún sé jú ekki svona slæm í heild sinni og flest fólk sé í raun gott. Seinni hlutinn af þessu er vafalaust réttur; veröldin er ekki svona slæm og flest fólk er gott. Engu að síður er það hlutverk fjölmiðla að stinga á kýlum, að segja frá því sem eru frá- vikin frá þessari meginreglu um góðmennsku. Geri fjölmiðlar ekki grein fyrir stríðum, slysum, hörm- ungum og náttúruhamförum eru þeir að bregðast skyldum sínum. En útgangspunkturinn – um að flest fólk sé gott – er gagnlegur og heldur gildi sínu þótt fjallað sé um stríð og það sem vont fólk gerir. Raunar ættum við öll að halda sem fastast í þennan útgangspunkt og horfa á heiminn með gleraugum góðmennskunnar frekar en með tortryggni og ótta. „Það er ekki lengur hægt að segja mér að kraftaverk séu ekki til. Hvern- ig strákurinn okkar braggast er kraftaverk og ég sé hvernig hann gefur Fanneyju kraft. Það er eins og hann sé að reyna að vera duglegur fyrir mömmu sína.“ Svo kemst annar viðmælandi Sunnudagsblaðsins að orði, Ragnar Snær Njálsson, sem tekst á við það verkefni að sinna nýfæddum syni á vökudeild meðan kona hans Fanney Eiríksdóttir gengst undir erfiða lyfjameðferð við leghálskrabbameini. Þau takast á við slæmar fréttir og erf- iða stöðu með jákvæðni að leiðarljósi og sjá litla drenginn sinn, sem taka þurfti með keisara eftir 29 vikna meðgöngu, sem kraftaverk í miðri barátt- unni. Viðhorfið til fólksins í kringum okkur og til þeirra verkefna sem lífið færir fleytir fólki langt. Það að geta horft á ljósið í myrkrinu og að sjá það góða í fólki eru eiginleikar til eftirbreytni. Morgunblaðið/Eggert Gott fólk og kraftaverk Pistill Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is ’Það að geta horft áljósið í myrkrinu ogað sjá það góða í fólki erueiginleikar til eftirbreytni. Helga Valtýsdóttir Nei, þau eiga að koma eins snemma og hægt er. Ég elska jólin! SPURNING DAGSINS Koma jólin of snemma? Signý Magnúsdóttir Þau koma alltaf snemma og of snemma í IKEA. Vignir Maríasson Já. Þau koma líka of oft. Rebekka Rut Harðardóttir Ég elska jólin en finnst samt nóg að þau komi í nóvember. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal Umsjón Eyrún Magnúsdóttir, eyrun@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Forsíðumyndina tók Kristinn Magnússon Lárus Jóhannesson er stjórnarformaður í The Jóhann Jóhannsson Foundation. Í kvöld, laugardagskvöld, kl. 20 verða minningar- tónleikar um tónskáldið í Iðnó, þar sem fram koma Kira Kira, Skúli Sverrisson, Dustin O’Halloran, Atli Örvarsson, Apparat Organ Quartet, Ham, Erna Ómarsdóttir og fleiri. Tónleikunum er streymt beint á síðunni facebook.com/thejohannjohanns- sonfoundation og hægt að leggja sjóðnum lið á thejohannjohannssonfoundation.org.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.