Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.10.2018, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.10.2018, Blaðsíða 12
HRINGFERÐ 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.10. 2018 H ann stóð á tímamótum; kominn á miðjan aldur, hafði selt fyr- irtækið sitt og langaði að upp- lifa eitthvað nýtt og skemmti- legt. Sautján ára hafði hann farið sem skiptinemi til Bandaríkjanna og minntist þess tíma með mikilli hlýju. Er meira að segja ennþá í góðu sambandi við fólkið sem hann bjó hjá, sína aðra fjölskyldu. Það var stórkostlegt ár, mesta upplifun lífsins, og hann velti fyrir sér hvernig hann gæti endurupplifað þá sælu. Að fara aftur sem skiptinemi kom þó tæplega til greina enda viðbúið að erfitt yrði að finna fjölskyldu sem tekur við 58 ára göml- um manni. Þá frétti Kristján Gíslason af vini sínum sem hafði í hyggju að fara á mótorhjóli umhverfis hnöttinn ásamt tveimur félögum sínum. „Mér fannst það stórkostleg hugmynd og varð strax ástarskotinn. Þetta ætlaði ég að gera,“ rifjar Kristján upp. „Mér datt í hug að slást í hópinn með þeim en það hentaði ekki. Í staðinn bað ég annan vin minn að koma með mér og hann sagði strax já. Ég fann hins vegar að áhugi hans var ekki eins mikill og hjá mér, þannig að ég setti honum afarkosti um áramótin 2013-14. Og þá sagði hann nei. Var ekki tilbúinn í svona langt og strangt ferðalag um framandi slóðir. Mín viðbrögð voru þau að hann væri búinn að lesa of mikið af neikvæðum fréttum á netinu.“ Heljarstökk aftur á bak Kristján lét þetta ekki slá sig út af laginu; ákvað í staðinn að fara bara einn. Seinna hættu raunar þremenningarnir við sína ferð og þegar vinur hans leitaði hófanna um sam- flot hafnaði Kristján því; hann væri búinn að ákveða að fara einn og við það miðaðist allur undirbúningur. Vinir og vandamenn hleyptu almennt brún- um þegar hann kynnti áform sín fyrir þeim en studdu hann. Það á til dæmis við um eiginkonu hans til fjörutíu ára, Ásdísi Rósu Baldurs- dóttur. „Ef þetta er það sem þú vilt þá skaltu gera það,“ sagði hún. Stuðningur er eitt, hvatning annað og hana fékk Kristján frá föð- ur sínum, Gísla Kristjánssyni, sem þá var 89 ára. „Á sjötugsafmæli sínu, sem haldið var á Hótel Örk, kvaddi pabbi sér hljóðs á sundlaug- arbakkanum áður en hann fór heljarstökk aft- ur á bak út í laugina. Mælti svo þegar hann kom upp úr: „Aldrei hætta að þora!“ Mikið til í því hjá honum. Auðvitað á að gæta skynsemi en í öllum bænum látið ekki hræðsluna koma í veg fyrir að þið fáið það sem þið getið út úr líf- inu. Það er alla vega mitt mottó.“ Við tók átta mánaða undirbúningur, þar sem Kristján skipulagði leiðina sem hann vildi fara, fékk tilheyrandi sprautur, sótti um vega- bréfsáritanir, lærði hjálp í viðlögum og skellti sér á sjálfsvarnarnámskeið hjá Mjölni, svo dæmi sé tekið. Hann tryggði sig líka fyrir mannráni, svo fjölskyldan fengi alltént bætur sneri hann ekki aftur. Allur er varinn góður. Ferðamaður á mótorhjóli Kristján þurfti líka að læra sitthvað um farar- skjótann, BMW 800 GSA, til dæmis að gera við helstu hugsanlega kvilla, en öfugt við það sem margir lesendur gætu haldið þá var hann alls ekki vanur mótorhjólamaður. „Biddu fyrir þér. Ástríðuhobbíið mitt var alltaf golf, ég var kominn niður í eins stafs tölu í forgjöf, en eftir að ég fékk brjósklos árið 2012 þurfti ég að leggja kylfurnar á hilluna. Þá þurfti ég að finna mér nýtt hobbí og Guðmundur Ragn- arsson vinur minn stakk upp á þessu. Hjólið heillaði mig strax upp úr skónum en ég lít samt ekki á mig sem mótorhjólamann, heldur ferðamann á mótorhjóli. Þetta er frábær ferðamáti.“ Kristján lagði í’ann í ágúst 2014 og gerði ráð fyrir að ferðalagið tæki fjóra mánuði. Mánuð- irnir urðu á endanum tíu og hann hafði þá lagt 48.000 kílómetra í 36 löndum og fimm heims- álfum að baki. Sleppti Afríku í þessari lotu. „Ég ætlaði að taka stöðuna í Malasíu, hvort ég færi beint til Bandaríkjanna þaðan eða til Ástralíu; báðar leiðir eru viðurkenndar í hringferðinni. Niðurstaðan var sú að fara nið- ur Indónesíu og þaðan til Ástralíu, Suður- og Mið-Ameríku áður en endað var í Bandaríkj- unum.“ Það sem Kristján óttaðist mest á ferðalag- inu var að skilja hjólið eftir og eiga á hættu að því yrði stolið. Þá hefði hann ekki aðeins tapað fararskjóta sínum, heldur líka öllum búnað- inum. Fyrir vikið vék hann helst ekki frá því og svaf til dæmis með það inni í tjaldinu þegar hann þurfti að sofa þar. Þessi strategía gafst vel og hjólið skilaði sér alla leið í mark. Enda þótt Kristján ferðaðist einn var hann aldrei einmana á þessu ferðalagi; fólk dróst hvarvetna að honum. Bæði segir hann hjólið hafa virkað eins og segulstál á innfædda, þar sem hann kom, fólk sé víðast hvar óvant svona stórum hjólum, auk þess sem hann sjálfur var augljóslega kominn um langan veg. „Ég fann Kristján Gíslason við Litlu kaffistofuna þegar lagt var af stað. Ljósmynd/Baldur Kristjánsson Aldrei hætta að þora! Kristján Gíslason er breyttur maður og sér heiminn í öðru ljósi eftir að hann fór einn í tíu mánaða ferðalag umhverfis hnöttinn á mótorhjóli. Hvarvetna var honum tekið með kostum og kynjum. Bók um ferðalagið kom út í vikunni og í næsta mánuði verður heimildarmynd frumsýnd á RÚV. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.