Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.10.2018, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.10.2018, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.10. 2018 FERÐALÖG Ferðalag til Kaupmannahafnarhefur þann kost að þangað erstutt að fara, tímamismunur er lítill, verð á flugmiða með því hag- stæðasta sem gerist frá Íslandi og framboð á flugi er mikið. Þetta er því góður áfangastaður til að taka börn- in með sér í ferðalagið. Núna eru skólafrí bæði á haustönn og vorönn og er til dæmis kjörið að heimsækja þessa einstaklega fjölskylduvænu höfuðborg á þeim tíma þó líka sé gott að fara til borgarinnar á sumrin. Notaðu strætó Með appinu „DOT mobilbilletter“ er þægilegt að kaupa miða í strætó og lestir og leita að ferð. Athugaðu að hver fullorðinn má taka með sér tvö börn undir 12 ára án aukagjalds. Fyrir þá sem ætla að heimsækja mörg söfn og skemmtigarða í fríinu má athuga með að kaupa svokallað „Copenhagen Card“ en þá fæst af- sláttur af miðaverði og almennings- samgöngur eru innifaldar. Leigðu hjól Þeir sem fara til borgarinnar með börn ættu endilega að leigja hjól að minnsta kosti einn dag. Það er besta leiðin til að sjá borgina en maður kemst yfir svo miklu stærra svæði og er engum háður. Börn yngri en tíu ára geta til dæmis setið í kerru fram- an á hjóli en svona flutningahjól eru algeng í borginni, ekki síst hjá fjöl- skyldum þar sem þau koma hreinlega í staðinn fyrir fjölskyldubílinn. Ofan í kassann er hægt að koma bæði börn- um og farangri. Þegar hjólað er á svona hjóli er best að fara ekki of hratt yfir og halda sig hægra megin á hjólastígum. Mikilvægt er líka að nota hendurnar til að láta vita hvað maður ætlar sér í umferðinni; höndin upp þýðir stopp og svo er bent með hægri eða vinstri hendi í þá átt sem stefnt er en hendurnar koma í stað beygjuljósa. Taktu nesti Það getur verið dýrt að borða hverja einustu máltíð úti og gerðu því eins og Danirnir og taktu með þér nesti. Hægt er að stoppa víða við leikvelli og fá sér nesti þar og foreldrarnir geta setið lengur á meðan börnin leika sér. Nestisaðstaðan er stundum innan- dyra eins og í vísindasafninu Experi- mentarium, sem fjallað er um hér til hliðar. Líka eru mörg nestisborð í dýragarðinum fyrir gesti svo þar er algjör óþarfi að kaupa mat. Hægt er að heimsækja smurbrauðsstofur og taka með ekta smurbrauð í nesti en líka er möguleiki að kíkja bara í næstu matvöruverslun eða pizzastað í nágrenni við nestisstaðinn og grípa bita þar. Ekki fara í búðir Þegar fjölskyldur eru á ferð, sér- staklega þegar börnin eru lítil, ætti að takmarka tímann í búðum eins og kostur er, sérstaklega í fatabúðum. Úthald barna er almennt ekki mikið í verslunum og búðaráp getur því skapað heilmikla togstreitu. Ef það þarf að versla þá er um að gera að gera það skipulega og á stað sem börnin geta sest niður eða haft eitt- hvað annað að gera. Áfangastaður ársins 2019 Tveir af þeim stöðum sem fjallað er um hér til hliðar, Experimentarium og Tivoli, eru á lista tímaritsins Time yfir hundrað mögnuðustu staði í heimi árið 2018, fyrsta árið sem list- inn er birtur. Ennfremur er Kaup- mannahöfn í fyrsta sæti yfir þær borgir sem ferðatímaritið fræga Lonely Planet mælir með að fólk heimsæki árið 2019. Mynd/Thomas Rousing Sønder Boulevard í Vesterbro er nú griðastaður fyrir fjölskyldur með fjöl- mörgum kaffihúsum, veitingastöðum, boltavöllum og leikvöllum. Mynd/Büro Jantzen Leikvellir eru víða um borgina þar sem gott er að leyfa börnunum að hreyfa sig og foreldrarnir geta sest niður á meðan. Mynd/Büro Jantzen Kaupmannahöfn með krökkum Þessi fyrrverandi höfuðborg Íslendinga er frábær heim að sækja og ekki er verra ef fjölskyldan er öll með í för því borgin er mjög hentug fyrir börn. Ekki aðeins er margt hægt að gera heldur eru vegalengdir stuttar og auðvelt að ferðast um á hjóli og strætó eða lestum. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.