Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.10.2018, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.10.2018, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.10. 2018 M iklu færri fylgjast spenntir með úrslitum í eins konar stjórnmálalegri útsláttar- keppni, svo sem kosningum, en með sambærilegum at- burðum í heimi íþrótta og er þá knattspyrna oft efst á blaði, að minnsta kosti aust- an Atlantshafs. Hverju breyta kosningar? Flest bendir þó til að niðurstöður kosninga hafi enn afdrifaríkari áhrif á hag einstaklinga og þjóða en hitt, eða ættu að hafa það. Áhugaleysið er sagt komið til vegna þess að sífellt færri trúa að kosningar breyti miklu. Það sé þannig ekki allur munur á því hvort repú- blikanar eða demókratar hafi meira að segja vestra, svo ekki sé talað um miðjumoðið í Evrópu. Öll höfum við séð að það breytir engu um áhrif í Evrópusam- bandinu hvernig fulltrúakosningar fara í einstökum löndum. Þar er haldið áfram eins og ekkert hafi gerst. Þau örfáu þjóðaratkvæði sem tekst að knýja fram eru önnur saga. Þegar Trump ákvað að stefna í forsetaframboð varð hann að byrja á því að fara úr Demókrataflokkn- um yfir í hinn. Einhver barna hans og tengdabarna urðu of sein til að skipta um flokk og náðu því ekki að kjósa karlinn í prófkjörinu. Bretar undir leiðsögn Blairs voru á svipuðu róli undir leiðsögn Majors. Báðir eru ákafir stuðnings- menn veru Breta í ESB. Báðir eru stjórnlyndir stjórnmálamenn. Sama gilti um Merkel eða Schröder í Þýskalandi, svo ekki sé talað um smástirnin Hollande, Macron eða Sarcozy. Chirac hélt á lofti gagnrýnissjónarmiðum um ESB í forsetakosningum, en engin beyting varð þó þegar hann tók við af Mitterrand. Risinn sagði nei Eftir að til Fimmta lýðveldisins var stofnað í Frakk- landi með breytingu á stjórnarskrá hafa 8 forsetar setið í Élysée-höllinni fögru. Sá fyrsti, Charles de Gaulle hershöfðingi, gnæfir enn yfir þá alla. Hann sat í tíu ár á forsetastóli og var fyrir löngu orðinn sver kafli í franskri samtímasögu. Hugrakkur, erfiður og dramblátur og sagt var að hann gerði stundum lítinn mun á sér og Frakklandi. Eftirmenn hans búa enn að breytingum á stjórnarskrá þegar forsetanum voru fengin mjög aukin völd. De Gaulle hefði ekki snúið til baka úr sjálfskipaðri pólitískri útlegð án þess. Þrátt fyrir það hafa eftirmennirnir allt önnur og minni völd en fyrsti forseti Fimmta lýðveldisins hafði. Honum var fengið allt það sama vald og þeim með stjórnarskránni, en að auki var hann de Gaulle. Póli- tísku dvergarnir sjö sem komu í kjölfarið voru ekki de Gaulle og urðu það aldrei. Nú þegar Bretar paufast við að hlýða fyrirmælum þjóðarinnar um að koma sér út úr ESB, undir ólán- legri leiðsögn Theresu May, fer vel á því að nefna til sögunnar frægt dæmi um framgöngu de Gaulle er hann synjaði Bretum undir stjórn Macmillans um að- ild að ESB í þeirri mynd sem það var þá. Hið fræga „non“ Charles de Gaulle í janúar 1963 kom eins og þruma úr heiðskíru lofti. Talið var að hin aðildarlöndin væru fylgjandi því að Bretar yrðu með og sama ætti við um ríkisstjórn Frakklands og franska stjórnkerfið. Hvorugt hafði nein áhrif á de Gaulle. Þýskaland (þá Vestur-) var ekki komið með þá yfirburðastöðu á meginlandinu sem landið fékk smám saman síðar, uns þar var komið að það á loka- orðið í ESB, þótt það sé hvergi skráð. De Gaulle leit þannig á að sameiginlegi markaður- inn væri fyrst og síðast rammi um samvinnu Frakk- lands og Vestur-Þýskalands og ætti að öðru leyti að- eins við um meginlandið. Hann hellti salti í sár Breta þegar hann benti á að „l’Anglaterre, ce n’est plus grand chose“. (England skiptir ekki miklu lengur). Af hverju nei? Sagt var að ekkert eitt annað hefði æst upp í jafn- mörgum Bretum þörf fyrir það að komast inn í Evr- ópusambandið og þessi yfirlætisyfirlýsing gamla hershöfðingjans. Menn gáfu sér margar skýringar á framgöngu hans. De Gaulle þætti óþolandi að þurfa að burðast með hina miklu þakkarskuld sína og Frakklands við Stóra-Bretland, sem blasti við hverj- um manni. Það hafði skotið yfir hann skjólshúsi í neyð og veitt honum stjórnmálalega og hernaðarlega stöðu langt umfram það sem tilefni var til og ásamt Bandaríkjunum fært Frakklandi frelsi á ný. En á meginlandinu var synjun stórveldisins í Ély- sée-höll túlkuð á annan veg. De Gaulle hefði ætíð ver- ið fullur óvildar í garð Bandaríkjanna sem bjargað höfðu Frakklandi tvívegis úr greipum Þjóðverja. Og það var að hans mati einn af göllum Breta að þeir væru enn í bandi Bandaríkjanna og með inngöngu þeirra fengju Bandaríkin innhlaup í Efnahags- bandalagið sem þau ættu ekki að fá. Að auki væru Bretar enn vafðir inn í heimsveldið sitt, þótt það væri aðeins afturganga frá stór- mennskutíð og á meðan sá hluti fortíðar hefði ekki verið gerður upp ættu þeir ekkert erindi til samstarfs eða áhrifa á meginlandinu. Vildi mikilmennið inn? Nei. Oft hefur verið vitnað í eina af ræðum Winstons Churchills og hún lögð út sem hvatning um að Bretar gengju í ESB eða að minnsta kosti viðurkenning á því að þar ættu Bretar að lokum heima. Var vitnað til þess með réttu að Soames, tengda- sonur stríðshetjunnar, hefði verið áhugasamur um aðild að ESB. Churchill var hins vegar ætíð mjög upptekinn af heimsveldinu og hinu sérstaka sam- bandi Breta og Bandaríkjanna og hefði þótt þessi túlkun á fyrrnefndri ræðu fráleit. Churchill hefði hins vegar þekkt flestum betur hið mikla tjón sem styrjaldirnar 1914-1918 og 1939-1945 höfðu valdið. Manntjónið var auðvitað óbærilegt. Hvernig gat breskur leiðtogi, sem staðið hafði blóð- ugur upp að öxlum með þjóð sinni, annað en velt því Loksins hafa þeir sýnt á spilin sín ’ En ný tegund af vandræðagangi við að réttlæta tilveru ESB birtist í sal Evr- ópuþingsins í liðinni viku. Núverandi for- seti þess, Ítalinn Antonio Tajani, fékk hlátursbylgju í fangið þegar hann lýsti því yfir í ræðu að það yrði ekki frá ESB tekið að það hefði brotið nasismann á bak aftur og unnið sigur á sovétkommúnismanum. Reykjavíkurbréf26.10.18

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.