Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.10.2018, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.10.2018, Blaðsíða 27
28.10. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27 jakkafatajoga.is ÁNÆGJA EFLING AFKÖST ALÞJÓÐADAGUR PSORIASIS 2 9 . o k t ó b e r 2 0 1 8 DAGSKRÁ HVAÐ ER PSORIASIS MIKILVÆGI HREYFINGAR FÓLKS MEÐ PSORIASISGIGT RANNSÓKNARSTOFA Í GIGTARSJÚKDÓMUM - SÓRAGIGTARRANNSÓKNIR Dýragarðurinn í Frederiksberg er virkilega heillandi. Hann er á skemmtilegum stað við Frederiksberg-almenningsgarðinn sem gaman að heimsækja. Maður getur verið heppinn og séð fílana úr garðinum, án þess að heimsækja dýragarðinn. Heimsóknin er samt sannarlega þess virði. Dýragarðurinn var stofnaður 1859 og er einn af elstu dýragörðunum í Evr- ópu. Í garðinum er sífellt verið að breyta og bæta. Það sem heillar gesti hvað mest er nýja fílahúsið sem hann- að var af Sir Norman Foster. Nýtt svæði tileinkað norður- skautinu er líka mjög skemmtilegt en þar er hægt að sjá ís- birni bæði ofan í vatni og uppúr auk þess sem hægt er að fræðast um dýr á norðurslóðum í gegnum margmiðlun. Í dýragarðinum eru öll möguleg heimsins dýr en ekki missa heldur af gíröffunum, þeir fara kannski heldur ekki framhjá manni, svo hávaxnir eru þeir. Svo er líka hús- dýragarður þar sem hægt er að klappa geitum, sem slakar á jafnvel stressaðasta fólki. zoo.dk Norðurpólssvæðið er nýlegt og sérlega flott. Mynd/Henrik Sørensen DÝRAGARÐURINN Í FREDERIKSBERG Ekki missa af ísbjörnunum Flestir hafa heyrt um Tivoli í Kaupmannahöfn en ef til vill vita ekki allir að þar er nú opið stór- an hluta ársins. Sérstakt hrekkja- vökuþema ríkir til dæmis í garð- inum í kringum skólafrí á haustin. Garðinum er svo lokað um tíma og hann settur í jóla- búning. Í ár bættist síðan við að nú er Tivoli opið í kringum skólafrí í febrúar. Þetta er þriðji elsti skemmti- garður í heimi en Tivoli var opn- að 1843. Garðurinn er samt langt í frá staðnaður og mörg ný tæki hafa verið tekin í notkun á síðustu árum. Ef ætlunin er að fara í mörg tæki er best að kaupa „turpas“ með aðganginum inn í Tivoli því þá er hægt að komast í öll tæki án þess að borga meira. Mörg tæki eru þarna fyrir yngstu kynslóðina, til dæmis eru fall- turnar fyrir stóra og smáa. Tivoli þykir mörgum einhver fallegasti skemmtigarður heims og tekur hann á sig nýja mynd þegar dimma tekur og því gam- an að vera þarna eftir myrkur. Veitingastaðirnir eru ótalmargir og því er ekki mikið mál að dvelja þarna allan daginn með góðum pásum inni á mili. Fólk á ferð til Kaupmannahafnar með börn ætti endilega að stíla inná að ferðast til borgarinnar þegar Tivoli er opið. tivoli.dk TIVOLI Töfrandi skemmtigarður Tivoli er klætt í hrekkjavökubúning á hverju ári. Mynd/Martin Heiberg Vísindamiðstöðin Experiment- arium hefur verið starfrækt frá 1991 en var nýverið opnuð í end- urbættri og stærri mynd í Helle- rup. Áherslan er lögð á vísindi og tækni og er safninu skipt nið- ur í mörg svæði á þremur hæð- um auk útisvæðis á þaki. Þarna er hægt að kanna áhrif loftslags- breytinga og skoða viðbrögð við þeim, rannsaka flutningsmiðlun með því að senda varning um allan heim í formi kúlna sem ferðast um í loftinu, sápukúlu- svæðið er heilt ævintýri og ekki má gleyma svæðinu þar sem áhersla er lögð á hreyfingu og samvinnu en þar geta hópar skráð sig sem lið og tekið hinum ýmsu áskorunum. Á einum bás eru heilabylgjur rannsakaðar þar sem tveir geta keppt í því að vera sem allra rólegastir, sem er meira spennandi en það hljómar. Síðan er heilt svæði tileinkað ströndinni þar sem hægt er að mynda öldur og leika sér í vatni. Leikur að ljósi og litum er á ein- um stað þar sem til dæmis er hægt að spila á leysigeislahörpu og rannsaka skuggamyndun. Á þessu safni má snerta, það er hreint og beint nauðsynlegt. Allt sem er þarna inni byggist á því að leika og læra. Safnið í heild sinni er kjörið fyrir börn á grunnskólaaldri en einnig er þarna að finna sérstök svæði sem eru ætluð yngstu börnunum, m.a. á neðstu hæð og á byggingaleikvelli á efstu hæð þar sem eldri krakkar eru spurðir hvort þeir séu örugglega nógu litlir til að fara þangað inn. Yngstu börnunum á því ekki að finnast þau vera útundan þó þau ráði ekki við allt þarna. Hér er alls ekki allt upp talið sem hægt er að gera eins og margmiðlunarkvikmyndahús en það er þó hægt að gera sér grein fyrir því að það er hægt að vera þarna allan daginn, eða marga daga ef því væri að skipta. Experimentarium.dk Litir, ljós og skuggar eru þemað í ljósa- völundarhúsinu. Mynd/Anders Bruun Vísindatilraunir, fræðsla og gaman Á strandsvæðinu er hægt að rannsaka öldumyndum. Mynd/David Trood EXPERIMENTARIUM

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.