Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.10.2018, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.10.2018, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.10. 2018 VETTVANGUR Maðurinn er búinn að notajörðina sem ruslahaug ítíu þúsund ár. Þetta gekk án teljandi vandræða í níu þúsund og átta hundruð ár en það verður ekki sagt um síðustu tvö hundruð árin eða frá því að vélknúin iðnbylting hófst. Á þessa leið ritar Jim Antal, banda- rískur guðfræðingur og baráttu- maður, í bók sinni Climate Church, Climate World. Og hann botnar þessa hugsun með því að benda á að samhliða sífellt ágengari tækni við að nýta auðlindir jarðar – og hafi þá oft- ar en ekki verið látið undir höfuð leggjast að spyrja um sjálfbærni – að ógleymdri sprengingu í mannfjölda, þá séu margfeldisáhrifin af þessari þróun nú að koma í ljós með svo hrikalegum hætti að lífi á jörðinni sé raunverulega ógnað. Og enn vitna ég í Jim Antal þegar hann minnir á, að þegar tortímingar- máttur kjarnorkunnar hafi orðið lýð- um ljós um miðja síðustu öld, hafi þeirri hugsun vaxið ásmegin að þörf væri á nýjum siðferðisviðmiðum bæði í friði og stríði. En ekki nóg með þetta. Nú væru menn að vakna upp við þá skelfilegu martröð að koltvísýringssprengjan, CO2, hefði á sinn hljóðláta hátt verið að springa allar götur frá því að iðnbyltingin hófst. Mannkynið hefði einfaldlega ekki gert sér grein fyrir því. Þar til nú. Sennilega erum við flest byrjuð að rumska. En það er ekki nóg, segja kunnáttumenn, það þarf að greina vandann, fylgjast með hon- um þróast, sam- félagið þarf í al- vöru að skilja hættuna, þá fyrst megi vænta raun- verulegra að- gerða. Í þessu samhengi var spurt í fyrirsögn greinar sem birt- ist í Morgun- blaðinu fyrir fá- einum dögum: „Hefur lofts- lagsógnin náð eyrum stjórnmála- manna og og almennings?“ Hið ósagða í greininni er að sennilega og því miður sé ekki hægt að svara spurningunni afdráttarlaust játandi. Sá sem spurði var Hjörleifur Gutt- ormsson, náttúrufræðingur og fyrr- verandi stjórnmálamaður með meiru. Hjörleifur á flestum, ef ekki öllum, öðrum hérlendis meiri innistæðu fyr- ir umvöndun sinni. Fyrir nær hálfri öld hafði hann komið auga á hina hljóðlátu tortímingarsprengju koltví- sýringsins. Í bók sinni Vistkreppa eða náttúruvernd, sem út kom árið 1974, gerir hann rækilega grein fyrir rannsóknum á því sem þá var þegar farið að kalla gróðurhúsaáhrif. Segir hann að þrátt fyrir tímabundna kóln- un upp úr miðri 20. öld, að hluta til vegna vaxandi mengunar af manna- völdum, séu „athafnir mannsins farnar að hafa mjög róttæk áhrif á veðurfarsþáttinn í visthvolfi plánetu okkar“ og greina megi augljós hættumerki: „Aukning á koldíoxíði í andrúmsloftinu er talin leiða til svo- kallaðra gróðurhúsaáhrifa, sem byggjast á því að koldíoxíð hleypir sýnilegu ljósi óhindrað til jarðar, en endurkastar innrauðri hitageislun, sem berst frá jörðu, svipað og gler í gróðurhúsi og virkar þannig sem hitaeinangrari. Niðurstaðan er því minni hitageislun frá jörðu út í geim- inn og hækkað hitastig í neðstu lofts- lögunum.“ Hlýnun jarðar var að sjálfsögðu mál málanna á nýafstaðinni Arctic Circle-ráðstefnu, hinni sjöttu sinnar tegundar sem Ólafur Ragnar Gríms- son, fyrrverandi forseti, stendur fyr- ir. Framtak Ólafs Ragnars er stór- merkilegt og hlýtur að teljast til afreksverka eins og þau gerast mest. Sífellt fjölgar þeim sem sækja þennan vettvang til að afla upplýsinga og miðla upplýs- ingum um breyt- ingar á vistkerf- unum á norður- hveli jarðar og afleiðingum þeirra fyrir jörð- ina alla. Þessar ráð- stefnur sækja færustu vísinda- menn heims, stjórnmálamenn og fulltrúar félagasamtaka, að ógleymd- um einstaklingum með brennandi áhuga á því sem þarna er til umræðu. Skipulagðar eru málstofur, hver annarri áhugaverðari, samhliða alls- herjarfundum ráðstefnunnar, og skipta þær hundruðum. Sjálfur var ég fenginn til að stýra pallborðs- umræðu höfuðbiskupa Norður- landanna og er áhugi þeirra á mál- efninu og skilningur á mikilvægi þess vonandi tímanna tákn. Arctic Circle er merkilegt framlag Íslands til umræðu sem er mannkyn- inu öllu lífsnauðsynleg í óhugnanlega bókstaflegri merkingu. Valkostirnir eru vistkreppa eða náttúruvernd eins og Hjörleifur Guttormsson sagði fyrir tæpri hálfri öld. Því miður reyndist hann sannspár eins og í mörgu öðru sem hann hefur vakið máls á og snýr að samskiptum manns og náttúru. Vistkreppa eða náttúruvernd ’Arctic Circle ermerkilegt framlag Íslands til umræðu sem er mannkyninu öllu lífs- nauðsynleg í óhugnan- lega bókstaflegri merk- ingu. Valkostirnir eru vistkreppa eða náttúru- vernd eins og Hjörleifur Guttormsson sagði fyrir tæpri hálfri öld. Því mið- ur reyndist hann sann- spár. Úr ólíkum áttum Ögmundur Jónasson ogmundur@ogmundur.is Morgunblaðið/RAX Guðmundur Andri Thors- son, rithöfundur og þingmaður, skrifaði á Face- book: „Var að horfa á sögu Danmerkur með honum Lars. Aldrei hef ég skilið hvað við erum að gera með styttu af þessum gamla þýska aft- urhaldssegg, Kristjáni níunda, fyrir framan Stjórnarráðið og enn síður hvað merki þessa manns er að gera á alþingis- húsinu okkar.“ Hulda Há- kon myndlistar- kona var ein af þeim sem lögðu orð í belg við færslu Guðmundar Andra: „Á sín- um tíma var búið að vinna lág- mynd af íslenska skjaldarmerkinu sem átti að fara upp í stað þess danska. Svo var hætt við það. Spurði mótasmiðinn einhvern tím- ann út í þetta og þá voru mótin í geymslu á Selfossi. Mörg ár síðan. Kannski hefur þessu bara verið hent.“ Jón Gnarr, rithöfundur og uppistandari með meiru, tísti: „Kæru lands- menn. Að gefnu tilefni vil ég benda á það í vin- semd að það er ekkert X í espressó og heldur ekkert T í sal- adi. Fleira síðar.“ Ljóðskáldið og varaþingkonan Eydís Blöndal tísti: „Hógvær femínismi: „kenn- um konum að biðja um hærri laun og vera djúpraddaðar svo karlmenn taki mark á þeim“. Róttækur femínismi: „hættum að kenna körlum að taka ekki mark á konum“. AF NETINU Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Úrval af rafdrifnum hvíldarstólum Opið virka daga 10-18 laugardaga 11-15 N Ý F O R M h ú s g a g n a v e r s l u n Komið og skoðið úrvalið

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.