Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.10.2018, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.10. 2018
VETTVANGUR
Maðurinn er búinn að notajörðina sem ruslahaug ítíu þúsund ár. Þetta gekk
án teljandi vandræða í níu þúsund og
átta hundruð ár en það verður ekki
sagt um síðustu tvö hundruð árin eða
frá því að vélknúin iðnbylting hófst.
Á þessa leið ritar Jim Antal, banda-
rískur guðfræðingur og baráttu-
maður, í bók sinni Climate Church,
Climate World. Og hann botnar
þessa hugsun með því að benda á að
samhliða sífellt ágengari tækni við að
nýta auðlindir jarðar – og hafi þá oft-
ar en ekki verið látið undir höfuð
leggjast að spyrja um sjálfbærni – að
ógleymdri sprengingu í mannfjölda,
þá séu margfeldisáhrifin af þessari
þróun nú að koma í ljós með svo
hrikalegum hætti að lífi á jörðinni sé
raunverulega ógnað.
Og enn vitna ég í Jim Antal þegar
hann minnir á, að þegar tortímingar-
máttur kjarnorkunnar hafi orðið lýð-
um ljós um miðja síðustu öld, hafi
þeirri hugsun vaxið ásmegin að þörf
væri á nýjum siðferðisviðmiðum
bæði í friði og stríði. En ekki nóg
með þetta. Nú væru menn að vakna
upp við þá skelfilegu martröð að
koltvísýringssprengjan, CO2, hefði á
sinn hljóðláta hátt verið að springa
allar götur frá því að iðnbyltingin
hófst. Mannkynið hefði einfaldlega
ekki gert sér grein fyrir því. Þar til
nú.
Sennilega erum við flest byrjuð að
rumska. En það er ekki nóg, segja
kunnáttumenn,
það þarf að
greina vandann,
fylgjast með hon-
um þróast, sam-
félagið þarf í al-
vöru að skilja
hættuna, þá fyrst
megi vænta raun-
verulegra að-
gerða. Í þessu
samhengi var
spurt í fyrirsögn
greinar sem birt-
ist í Morgun-
blaðinu fyrir fá-
einum dögum:
„Hefur lofts-
lagsógnin náð eyrum stjórnmála-
manna og og almennings?“ Hið
ósagða í greininni er að sennilega og
því miður sé ekki hægt að svara
spurningunni afdráttarlaust játandi.
Sá sem spurði var Hjörleifur Gutt-
ormsson, náttúrufræðingur og fyrr-
verandi stjórnmálamaður með
meiru.
Hjörleifur á flestum, ef ekki öllum,
öðrum hérlendis meiri innistæðu fyr-
ir umvöndun sinni. Fyrir nær hálfri
öld hafði hann komið auga á hina
hljóðlátu tortímingarsprengju koltví-
sýringsins. Í bók sinni Vistkreppa
eða náttúruvernd, sem út kom árið
1974, gerir hann rækilega grein fyrir
rannsóknum á því sem þá var þegar
farið að kalla gróðurhúsaáhrif. Segir
hann að þrátt fyrir tímabundna kóln-
un upp úr miðri 20. öld, að hluta til
vegna vaxandi mengunar af manna-
völdum, séu „athafnir mannsins
farnar að hafa mjög róttæk áhrif á
veðurfarsþáttinn í visthvolfi plánetu
okkar“ og greina megi augljós
hættumerki: „Aukning á koldíoxíði í
andrúmsloftinu er talin leiða til svo-
kallaðra gróðurhúsaáhrifa, sem
byggjast á því að koldíoxíð hleypir
sýnilegu ljósi óhindrað til jarðar, en
endurkastar innrauðri hitageislun,
sem berst frá jörðu, svipað og gler í
gróðurhúsi og virkar þannig sem
hitaeinangrari. Niðurstaðan er því
minni hitageislun frá jörðu út í geim-
inn og hækkað hitastig í neðstu lofts-
lögunum.“
Hlýnun jarðar var að sjálfsögðu
mál málanna á nýafstaðinni Arctic
Circle-ráðstefnu, hinni sjöttu sinnar
tegundar sem Ólafur Ragnar Gríms-
son, fyrrverandi forseti, stendur fyr-
ir. Framtak Ólafs Ragnars er stór-
merkilegt og hlýtur að teljast til
afreksverka eins
og þau gerast
mest. Sífellt
fjölgar þeim sem
sækja þennan
vettvang til að
afla upplýsinga
og miðla upplýs-
ingum um breyt-
ingar á vistkerf-
unum á norður-
hveli jarðar og
afleiðingum
þeirra fyrir jörð-
ina alla.
Þessar ráð-
stefnur sækja
færustu vísinda-
menn heims, stjórnmálamenn og
fulltrúar félagasamtaka, að ógleymd-
um einstaklingum með brennandi
áhuga á því sem þarna er til umræðu.
Skipulagðar eru málstofur, hver
annarri áhugaverðari, samhliða alls-
herjarfundum ráðstefnunnar, og
skipta þær hundruðum. Sjálfur var
ég fenginn til að stýra pallborðs-
umræðu höfuðbiskupa Norður-
landanna og er áhugi þeirra á mál-
efninu og skilningur á mikilvægi
þess vonandi tímanna tákn.
Arctic Circle er merkilegt framlag
Íslands til umræðu sem er mannkyn-
inu öllu lífsnauðsynleg í óhugnanlega
bókstaflegri merkingu. Valkostirnir
eru vistkreppa eða náttúruvernd
eins og Hjörleifur Guttormsson
sagði fyrir tæpri hálfri öld. Því miður
reyndist hann sannspár eins og í
mörgu öðru sem hann hefur vakið
máls á og snýr að samskiptum
manns og náttúru.
Vistkreppa eða náttúruvernd
’Arctic Circle ermerkilegt framlag Íslands til umræðu sem er mannkyninu öllu lífs-
nauðsynleg í óhugnan-
lega bókstaflegri merk-
ingu. Valkostirnir eru
vistkreppa eða náttúru-
vernd eins og Hjörleifur
Guttormsson sagði fyrir
tæpri hálfri öld. Því mið-
ur reyndist hann sann-
spár.
Úr ólíkum
áttum
Ögmundur Jónasson
ogmundur@ogmundur.is
Morgunblaðið/RAX
Guðmundur
Andri Thors-
son, rithöfundur
og þingmaður,
skrifaði á Face-
book: „Var að
horfa á sögu Danmerkur með
honum Lars. Aldrei hef ég skilið
hvað við erum að gera með
styttu af þessum gamla þýska aft-
urhaldssegg, Kristjáni níunda, fyrir
framan Stjórnarráðið og enn síður
hvað merki þessa manns er að
gera á alþingis-
húsinu okkar.“
Hulda Há-
kon myndlistar-
kona var ein af
þeim sem lögðu
orð í belg við
færslu Guðmundar Andra: „Á sín-
um tíma var búið að vinna lág-
mynd af íslenska skjaldarmerkinu
sem átti að fara upp í stað þess
danska. Svo var hætt við það.
Spurði mótasmiðinn einhvern tím-
ann út í þetta og þá voru mótin í
geymslu á Selfossi. Mörg ár síðan.
Kannski hefur þessu bara verið
hent.“
Jón Gnarr,
rithöfundur og
uppistandari með
meiru, tísti:
„Kæru lands-
menn. Að gefnu
tilefni vil ég benda á það í vin-
semd að það er ekkert X í
espressó og heldur ekkert T í sal-
adi. Fleira síðar.“
Ljóðskáldið og varaþingkonan
Eydís Blöndal
tísti: „Hógvær
femínismi: „kenn-
um konum að
biðja um hærri
laun og vera
djúpraddaðar svo karlmenn taki
mark á þeim“.
Róttækur femínismi: „hættum
að kenna körlum að taka ekki
mark á konum“.
AF NETINU
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Úrval af rafdrifnum
hvíldarstólum
Opið virka daga
10-18
laugardaga
11-15
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
Komið og skoðið úrvalið