Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.10.2018, Side 4
INNLENT
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.10. 2018
900 vinnudagar á fyrsta starfsári
Þjónustu- og nýsköpunarmið-stöðin Blábankinn á Þingeyrifagnaði eins árs starfsafmæli í
síðasta mánuði og eru aðstandendur
hennar ánægð með hvernig til hefur
tekist fyrsta árið en þetta tilrauna-
verkefni stendur í þrjú ár hið
minnsta. Blábankinn er miðstöð sem
rekin er af hinu opinbera og einkaað-
ilum en þar má m.a. finna ýmsa þjón-
ustu sem opinberar stofnanir og
fyrirtæki geta illa veitt á svo litlum
stað, nema með rekstrartapi. Í Blá-
bankanum er t.a.m. veitt bankaþjón-
usta og tölvuaðstoð og haldið utan um
þjónustu Ísafjarðarbæjar við íbúa
Þingeyrar sem og tengingu við
Verkalýðsfélag Vestfjarða. Þá er Blá-
bankinn milliliður fyrir Bókasafn Ísa-
fjarðar og hýsir glæpasagnaskipti-
markað sem er talsvert notaður.
New York eða Þingeyri
Í húsnæði Blábankans er einnig vel
útbúið samvinnurými og fundar-
aðstaða sem fyrirtæki, stofnanir og
einyrkjar geta leigt til skemmri og
lengri tíma, og aðstaða fyrir viðburði,
samveru og ýmiss konar sköpun og
vinnu. „Þetta gengur bara vel, Blá-
bankinn er náttúrlega alveg nýr af
nálinni og við erum dálítið að finna
upp hjólið,“ segir Haukur Sigurðsson
en hann og eiginkona hans, Vaida
Braziunate, stýra Blábankanum um
þessar mundir meðan aðalbanka-
stjórarnir eru í fæðingarorlofi.
„Við erum að reyna að vera rosa-
lega margt í einu en fyrir heima-
mönnum er Blábankinn talsvert ann-
að en hann er fyrir utanaðkomandi.
Við erum aðallega þjónustumiðstöð
fyrir Dýrfirðinga, sjáum til dæmis
um bankaþjónustu tvisvar í viku. Það
er nú aðallega þess konar þjónusta
sem flestir geta gert í heimabanka en
sumum finnst þægilegt að geta komið
hingað til að millifæra og borga
reikninga og þess háttar.“
Haukur segir að Blábankinn sé
einnig opinn fyrir hverskonar við-
burði í bænum og sé því nokkurs kon-
ar samfélagsmiðstöð fyrir heima-
menn. En það sem laði utanbæjarfólk
að sé helst samvinnurýmið og ný-
sköpunartækifærin. „Við bjóðum
fólki upp á að vera hér í tvo daga,
tvær vikur, mánuði eða jafnvel ár og
fá hér ró og næði og fína aðstöðu til að
vinna.“ Haukur segir markhópinn
ekki síst vera útlendinga en á Þing-
eyri sé nokkuð um að ekki sé höfð
heilsársbúseta í húsum og því sé tals-
vert af húsnæði í boði yfir vetrartím-
ann svo Blábankinn geti haft milli-
göngu um gistimöguleika líka.
„Í dag eru svo margir sem vinna
þannig vinnu að það skiptir þá engu
hvort þeir sitja á sófanum heima hjá
sér í New York eða á skrifstofu á
Þingeyri, svo lengi sem það er góð
nettenging og kannski gott kaffi,“
segir Haukur og nefnir sem dæmi að
grafískur hönnuður frá Bretlandi hafi
dvalið á Þingeyri í tvo mánuði og nýtt
aðstöðuna í Blábankanum. „Einnig
vorum við með nýsköpunarhraðal hér
í vor en þá voru hér tíu manns frá
ýmsum stöðum í heiminum, Noregi,
Þýskalandi og Indlandi jafnvel, sem
dvöldu hér heilan mánuð og unnu í
sínum viðskiptahugmyndum undir
handleiðslu ýmissa sérfræðinga. Ný-
sköpun á að vera stór þáttur í starf-
semi Blábankans svo við munum aft-
ur bjóða upp á svona hraðal í vor.“
Nýtingin á fyrsta starfsári Blá-
bankans var ágæt, þar fengu alls 70
manns vinnuaðstöðu á árinu og unnu
samanlagt 900 vinnudaga, 87 við-
burðir voru haldnir með 1.300 þátt-
takendum og átta þróunarverkefni
sett í gang auk þess sem Blábankinn
gerði fimm þjónustusamninga fyrir
Dýrfirðinga. Þá fékk Blábankinn sér-
staka viðurkenningu fyrir nýsköpun í
opinberri stjórnsýslu í júní.
Blábankinn á erindi
til fólks á öllum aldri.
Ljósmyndir/Blábankinn
Blábankinn á Þingeyri hefur sannað gildi sitt eftir fyrsta starfsárið en verkefnið er talið gott dæmi um árangursríka nýsköpun í
opinbera geiranum. Nýsköpunarvogin er nýtt tæki sem nota á til að safna upplýsingum um nýsköpun og miðla þekkingu áfram.
Ingibjörg Rósa Björnsdóttir ingibjorgrosa@gmail.com
Vaida Braziunate og
Haukur Sigurðsson.
Opinber nýsköp-
un er hugtak
sem enn er ekki
orðið öllum þjált
í munni. Sam-
kvæmt upplýs-
ingum frá fjár-
mála- og
efnahagsráðu-
neytinu er um
að ræða nýja eða umtalsvert breytta
aðferð til að bæta starfsemi og ár-
angur á vinnustaðnum. Nýsköpunin
þurfi að fela í sér nýjungar fyrir
vinnustaðinn en hún megi hafa verið
notuð annars staðar áður eða hafa
verið þróuð af öðrum.
Þessa dagana stendur einmitt yfir
viðamikil könnun á vegum hins
opinbera, Nýsköpunarvogin, sem
lögð er fyrir um 800 aðila ríkis og
sveitarfélaga. „Þetta er fyrsta könn-
un sinnar tegundar sem fram-
kvæmd er á Íslandi,“ segir Íris Huld
Christersdóttir, sérfræðingur á
skrifstofu stjórnunar og umbóta hjá
ráðuneytinu. Hún segir mikilvægt
að vita hvar hið opinbera standi
þegar kemur að nýsköpun og safna
á einn stað upplýsingum um þau
verkefni sem þar séu í gangi. „Þann-
ig að það sé ekki alltaf verið að finna
upp hjólið. Svona getum við lært
hvert af öðru og nýtt það sem virk-
ar.“ Nýsköpunarvogin er sam-
norrænt verkefni og segir Íris að nú
loks verði hægt að sjá hvar Ísland
stendur í samanburði við hin nor-
rænu löndin. „En tilgangurinn er
einnig að geta flutt lærdóm og hug-
myndir á milli Norðurlandanna,
ekki bara innan Íslands,“ útskýrir
Íris. Niðurstöður könnuninnar, og
væntanlega helstu nýjungarnar,
verða svo kynntar á ráðstefnu
OECD í París í nóvember. „Norður-
löndin eru mjög framarlega í opin-
berri nýsköpun og það er mikill
áhugi í öðrum löndum fyrir því
hvernig þetta virkar. Við styðjumst
hins vegar við sömu hugmyndafræði
um nýsköpun og notuð er í einka-
geiranum og fylgjum alþjóðlegum
stöðlum.“
Íris segir að hingað til hafi ákveð-
in þekking farið forgörðum í opin-
bera geiranum á Íslandi þar sem
þessari þekkingu hafi ekki verið
skipulega safnað saman fyrr. „Það
hefur ekki verið neinn svona al-
mennur vettvangur þar sem opin-
berar stofnanir og starfsmenn geta
miðlað upplýsingum á milli,“ segir
hún en til stendur að stofna upplýs-
ingagátt síðar meir, þar sem opin-
berir aðilar geta sótt lausnir og hug-
myndir í reynslubanka hver annars.
Íris Huld
Christersdóttir
Nýsköpunarvogin
Nýsköpunarvoginni er m.a.
ætlað að varpa ljósi á:
● Umfang opinberrar nýsköp-
unar
● Hvaða þættir styðja við ný-
sköpun og hverjar eru hindr-
anirnar
● Hvað einkennir vinnustaði
sem eru nýskapandi og hvað
einkennir vinnustaði sem eru
ekki að vinna að nýsköpun
● Hvort opinberir vinnustaðir
deili nýjungum sín á milli
● Hvaða virði nýsköpun skap-
ar hjá hinu opinbera
Sterkir í stálinu
Skipastál • Lunningajárn • Bakjárn
Kælirör • Fíber- og galvanhúðaðar ristar
Svört- og ryðfrí rör og fittings
Ál • Ryðfrítt stál • PVC plötur
POM öxlar • PE plötur
Lokar af ýmsum gerðum
Opið virka daga kl. 8-17
Skútuvogi 4, Rvk
Rauðhellu 2, Hafnarfirði
Sími 568 6844 | ga@ga.is | ga.is