Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.10.2018, Blaðsíða 17
væri ekki henni að kenna. Við höfum
ekki fengið skýringar á því af hverju
krabbameinið uppgötvaðist ekki í
þessum strokum en nú er hraðinn
bara það mikill í okkar ferli að það er
ekki í forgangi að skoða það núna, en
þegar við erum búin að sigra, þá vilj-
um við gera það, finna út hvernig
krabbamein á stærð við bolta á þess-
um stað, sem myndast hjá fullkom-
lega heilbrigðri konu sem fór í allar
sínar skoðanir, uppgötvast ekki fyrr
en á þessu stigi,“ segir Ragnar.
„Ég byrjaði í lyfjameðferð þótt ég
væri ólétt og ekki væri alveg vitað
hvaða áhrif krabbameinslyfin hefðu
á barnið, við urðum að taka þá erfiðu
ákvörðun í ljósi þess á hvaða stig
krabbameinið var komið, það var
það mikið í húfi að það þoldi ekki bið.
Von læknanna var að meðferðin
myndi annað hvort halda þessu í
skefjum eða minnka það en það varð
þveröfugt og það stækkaði þrátt fyr-
ir meðferðina. Því varð að grípa fyrr
inn í og koma drengnum í heiminn
með keisara svo ég gæti undirgeng-
ist geislameðferð.“
Í upphafi stóðu vonir til að barnið
gæti fengið að þroskast í móðurkviði
til 35. viku að minnsta kosti en þegar
ljóst var hvert stefndi var Fanney
einn daginn mætt og sagt að í stað
þess að vera að fara í lyfjameðferð
daginn eftir væri hún á leið í keisara
eftir örfáa daga.
„Lyfjameðferðirnar hafa farið
mjög illa í Fanneyju og þarna bætt-
ust við áhyggjur af því að drengur-
inn væri að koma of snemma í heim-
inn þar sem Fanney hafði lítið getað
nærst. Við vorum búin að miða við að
hann yrði mjög lítill og léttur en svo
kom hann í heiminn, miklu stærri og
þyngri en allir bjuggust við, hann
tók alla þá næringu sem hann gat,
sem er gott. Enn sem komið er hefur
allt gengið vel,“ segir Ragnar.
Dýrmætur stuðningur
Tíminn sem þið biðuð, ekki vitandi
með áhrif lyfjanna á barnið og óvissa
um framhaldið, þetta hlýtur að hafa
verið skrýtinn tími?
„Þetta hefur verið ótrúlegur til-
finningarússibani. Á sama tíma og
maður var drullustressaður yfir því
að þetta og hitt gæti farið illa varð-
andi strákinn var maður líka með
það á hreinu að Fanney þurfti lífs-
nauðsynlega aðstoð. Læknarnir
voru mjög hreinskilnir við okkur
varðandi það og tuggðu ofan í okkur
alvarleika málsins,“ segir Ragnar og
segir það hafa verið mikinn létti þeg-
ar sonur þeirra var kominn í heiminn
og allt gekk vel. „Það er ekki lengur
hægt að segja mér að kraftaverk séu
ekki til. Hvernig strákurinn okkar
braggast er kraftaverk og ég sé
hvernig hann gefur Fanneyju kraft.
Það er eins og hann sé að reyna að
vera duglegur fyrir mömmu sína.“
Fanney byrjaði fljótlega eftir
keisaraskurð í geislameðferð og hef-
ur nú farið 13 sinnum í geisla. Hún
segir það hafa hjálpað mikið hve um-
hyggjusamt starfsfólk vökudeildar
sé. Ragnar segir leitun að fólki með
betra hjartalag.
„Það sýnir ástandi okkar mikinn
skilning og sér á mér þegar ég er
þreytt og líður ekki vel og býður
fram alla sína hjálp, það er bara svo
ríkt í manni að vilja sinna barninu
sínu sjálfur þótt orkan sé lítil,“ segir
Fanney og Ragnar segist eiga erfitt
með að lýsa aðdáun sinni á styrk
Fanneyjar án þess að fara hreinlega
að skæla.
„Við erum á bólakafi í þessari bar-
áttu, það er erfitt að segja núna hvar
þetta stendur, við erum með vindinn
í fangið og það er ekki tímabært til
að líta upp og skoða árangurinn,
meðferðin er ekki hálfnuð. Á meðan
erum við bjartsýn og alveg uppfull af
þakklæti til allra þeirra sem hafa
sýnt okkur velvilja og stuðning.
Fanney getur skiljanlega ekkert
unnið og ég hef þurft að minnka tölu-
vert við mig vinnu. Í kringum svona
baráttu er svo ofboðsleg vinna, það
er alltaf eitthvað nýtt að takast á við
á hverjum degi og við höfum í raun
búið á spítalanum í þrjá mánuði.
Mamma mín, sem býr fyrir norðan
og er í vinnu þar og með fjölskyldu,
tók sér leyfi frá vinnu og hefur verið
í bænum óslitið frá því við fengum
fréttirnar, hefur hjálpað okkur með
dóttur okkar og séð um heimilið.
Eins hefur mamma Fanneyjar og
fjölskylda komið sterk inn.“
Fanney og Ragnar segjast hafa
vitað fyrir að þau ættu góða að en
það hafi þó komið þeim á óvart hvað
allir voru reiðubúnir að hjálpa þeim.
„Þá meina ég hreinlega allir og
það gerir mig svo stoltan og gefur
manni góða tilfinningu, að maður
hafi sjálfur gefið gott af sér í gegn-
um lífið og fái það til baka. Við erum
búin að fá þúsundir skilaboða, póst-
hólfin okkar eru full á hverjum degi,
líka frá ókunnugum“ segir Ragnar
og Fanney bætir við að í gær hafi
hennar beðið skilaboð frá þriggja
barna móður, sem er henni ókunnug,
þar sem hún vildi bjóða fram hjálp.
„Við tókum þá ákvörðun strax að
koma hreint fram með þetta og
leggja hjartað á borðið. Það hjálpaði
okkur mikið að gera þetta opinbert.
Við höfum kosið að vera eins jákvæð
í gegnum þetta ferli og við mögulega
getum. Fókusera á það góða sem
getur skapast við svona erfiðar að-
stæður. Þetta er okkar langstærsta
verkefni í lífinu hingað til og við finn-
um hvað maður þroskast hratt og
mikið. Frá byrjum höfum við sagt
við hvort annað að við ætlum að
sigra þetta, alveg sama hvaða fréttir
við fáum, annað er ekki fræðilegt,“
segir Ragnar.
Fanney segir að þrátt fyrir erfiða
daga hafi hún efst í huga hvað hún
hafi margt að lifa fyrir. „Ég á tvö
yndisleg börn sem þarfnast mín og
ég þarfnast þeirra líka. Á mínum erf-
iðu dögum eru það börnin mín sem
koma mér áfram.“ Ragnar bætir við
þau þurfi að standast þessa raun
núna. „Lífið er að veði og við verðum
bara að tækla þetta og það verður
enginn afsláttur gefinn af því.“
Fjölskyldan ekki löngu áður en
yngsti meðlimurinn kom í
heiminn; Ragnar Snær og Fann-
ey með dóttur sína Emilý Rósu.
Ljósmynd/Krissy Ljósmyndastúdíó
’ Ég byrjaði í lyfja-meðferð þótt ég væriólétt og ekki væri alvegvitað hvaða áhrif krabba-
meinslyfin hefðu á barn-
ið, við urðum að taka þá
erfiðu ákvörðun í ljósi
þess á hvaða stig krabba-
meinið var komið.
„Þetta er okkar langstærsta verkefni í
lífinu hingað til og við finnum hvað
maður þroskast hratt og mikið. Frá
byrjum höfum við sagt við hvort annað
að við ætlum að sigra þetta, alveg
sama hvaða fréttir við fáum, annað er
ekki fræðilegt,“ segir Ragnar Snær.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
28.10. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17
HRESSLEIKARNIR eru góðgerðarleikar heilsuræktstöðvarinnar
Hress og í ár er það þau Fanney Eiríksdóttir og Ragnar Snær Njáls-
son sem leikarnir styrkja. Aðgangur að leikunum er 3.000.- og
rennur óskiptur til söfnunarverkefnisins og ekki þarf að vera kort-
hafi í Hress til að taka þátt. Fyrir þá sem ekki komast á Hressleika
og vilja styrkja fjölskylduna er búið að stofna söfnunarreikninginn
0135-05-71304 á kennitölu 540497-2149.