Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.10.2018, Page 19
28.10. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19
Boxað í
Bronx
Það er heitt og mollulegt í John’s Boxing Gym í suð-
urhluta Bronx morgun einn í október. Vöðvastæltir
og húðflúraðir karlmenn eru þar í óðaönn að berja
púða, sippa og æfa sig í hringnum. Svitinn bogar af
kroppum enda engin loftkæling í þessari 35 ára
gömlu boxstöð. Líklega hefur fátt
breyst þarna síðan opnað var árið
1983, því enginn er íburðurinn.
Upplituð plaköt og fánar eru uppi
um alla veggi, boxpúðar hanga úr
loftinu og gamlir verðlaunagripir
standa rykfallnir á hillum. Allt
þarna inni er gamalt og sjúskað,
engin tæki eru ný og skáparnir all-
ir hver af sínu taginu. Það skiptir víst ekki máli;
þarna er athvarf fyrir fólk til að koma og þjálfa. Svo
eru þeir víst ófáir meistararnir sem hafa einhvern
tímann látið hnefahöggin dynja á vel börðum box-
púðum í John’s Boxing Gym, menn eins og Mike
Tyson og Roberto Duran. Merkilegra er að þarna
hafa ófá ungmennin fengið athvarf og skjól frá
hinum harða heimi götunnar.
Ljósmyndir
ÁSDÍS
ÁSGEIRSDÓTTIR
Stund milli stríða. Gott getur verið að setjast niður og hvíla sig eftir erfiða æfingu. Hann er vígalegur þessi, alsettur húðflúri.