Morgunblaðið - 01.11.2018, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 01.11.2018, Blaðsíða 2
„Þetta er tals- verður rússíbaní fyrir svona við- kvæmar sálir eins og okkur rithöf- unda, við erum ekkert voðalega sviðsvæn eða sjónvarpsvæn,“ sagði Auður Ava Ólafsdóttir rit- höfundur við blaðamann mbl.is í gær, en hún var þá á heimleið eftir að hafa veitt Bók- menntaverðlaunum Norðurlanda- ráðs viðtöku á þriðjudagskvöldið fyrir bókina Ör, sem kom út hér- lendis árið 2016. Sagði hún verðlaunin vera hvatn- ingu fyrir sitt nýja líf sem atvinnu- rithöfundur, en hún lét af störfum sem lektor í listfræði við Háskóla Ís- lands í byrjun sumars og hyggst nú einbeita sér að fullu að ritstörfum. Rætt er ítarlega við Auði Övu í Morgunblaðinu í dag um nýjustu bók hennar, Ungfrú Ísland, en hún kemur út í næstu viku. Bókin segir frá ungri konu, Heklu, sem vill verða rithöfundur í kvenfjandsamlegu karlaveldi árið 1963. „Mér fannst ég þurfa að segja þessa sögu, mér fannst ég þurfa að segja sögu sem fjallar um sköpunarþrána, um feg- urðarþrána,“ segir Auður meðal annars um bókina. »72-73 Rússíbani fyrir við- kvæma sál Auður Ava Ólafsdóttir  Verðlaunin hvatn- ing fyrir Auði Övu 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2018 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Tekist var á um fiskveiðisamninga Ís- lands og Færeyja á fundi embættis- manna í Kaupamannahöfn nýlega, en Íslendingar vilja gera breytingar á þeim samningum sem í gildi hafa ver- ið. Kristján Þór Júlíusson sjávarút- vegsráðherra segir að hann vilji nálg- ast þessar viðræður þannig að um jöfn skipti á verðmætum verði að ræða, en nú halli á Íslendinga í þeim efnum. Færeyingar hafa nú heimild til að veiða hér við land 5.600 tonn af bol- fiski og 5% af útgefnum heildarloðnu- kvóta við Ísland, þó að hámarki 25 þúsund tonn. Á móti hafa Íslendingar rétt til að veiða kolmunna í færeyskri lögsögu. Boltinn hjá Færeyingum „Sérfræðingar í ráðuneytinu meta það svo að út frá verðmætum veiði- heimildanna hafi frekar hallað á Ís- lendinga,“ segir Kristján Þór. „Það er í raun það sem við erum að taka upp við þá og óskum eðlilega eftir að nálgast þetta út frá jöfnum skipt- um.“ Hann segist hafa gefið fyrir- mæli um að miða við þessa útreikn- inga í viðræðun- um til að fá rök- rétta niðurstöðu. Ekki sé komið að nánari útfærslu hvað varðar einstaka fiskstofna. Niðurstaða náðist ekki á fundinum í Kaupmannahöfn og segir Kristján eðlilegt að breytingar sem þessar geti tekið einhvern tíma. Núna sé boltinn hjá Færeyingum og beðið sé eftir við- brögðum frá þeim. „Ég held að þessi sjónarmið um jöfn skipti njóti ákveð- ins skilnings,“ segir Kristján Þór. „Sem betur fer gengur mjög vel í Færeyjum um þessar mundir, en þegar verulega illa áraði hjá þeim voru aflaheimildir þeirra við Ísland auknar, sem var þeim gríðarlega mik- ilvægt,“ segir ráðherra. Vill jöfn skipti í verðmætum  Viðræður um fiskveiðisamning Íslands og Færeyja  Hallað hefur á Íslendinga Kristján Þór Júlíusson Bréfamagn það sem fer um hendur Íslandspósts á grundvelli einka- réttar fyrirtækisins hefur dregist mun meira saman en fyrirtækið gerði ráð fyrir í áætlunum sínum fyrir árið. Þær gerðu ráð fyrir 7% samdrætti. Það sem af er ári hefur samdrátturinn hins vegar numið 14%. Þá benda nýjar tölur til að í september og október nemi sam- drátturinn, miðað við sama tímabil í fyrra, yfir 20%. Fyrirtækið segir samdráttinn meginorsök fyrir rekstrarvanda þess en í september síðastliðnum tilkynnti fjármála- og efnahags- ráðuneytið að ákveðið hefði verið að veita fyrirtækinu 500 milljóna króna lán til 12 mánaða vegna lausafjár- vanda þess. Á sama tíma og rekstrarvandi Ís- landspósts virðist aukast stendur fyrirtækið í fjárfestingu upp á 700 milljónir króna við nýja viðbyggingu á Stórhöfða 21. »ViðskiptaMogginn Gríðarleg fækkun bréfasendinga Ljósmynd/Hörður Ásbjörnsson Samdráttur Bréfsendingum hefur fækkað gríðarlega á síðustu árum. Draugar, forynjur og aðrar hræðilegar vættir fóru á stjá þegar hrekkjavakan var haldin í Árbæjarsafni í gær fyrir krakka og fjöl- skyldur þeirra. Var safnið sveipað dulúð- legum blæ vegna hrekkjavökunnar og gátu gestir safnsins bankað upp á í draugalegum húsum og beðið framliðna íbúa þeirra um grikk eða gott. Hrekkjavakan var haldin víða um höfuð- borgarsvæðið og gengu skrautbúin skrímsli um í sumum hverfum borgarinnar og inntu húsráðendur eftir því hvort þeir ættu sæl- gæti. Siðurinn er vel þekktur erlendis en hef- ur verið að ryðja sér til rúms í síauknum mæli hérlendis á síðustu árum. Hroði og hryllingur á hrekkjavökunni Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Grímuklæddir gestir gengu aftur í Árbæjarsafni Kínverjar og Indverj- ar leita starfa hér Arthúr Vilhelm Jóhannesson, fram- kvæmdastjóri Elju starfsmanna- þjónustu, segir fyrirtækið hafa fengið margar umsóknir frá Ind- landi og Kína og fleiri ríkjum varð- andi störf á Íslandi. „Sem við auðvitað höfnum. Hér er verið að gera hlutina rétt, þann- ig að sómi sé að fyrir notenda- fyrirtækið, Elju og starfsmanninn,“ segir Arthúr Vilhelm og bendir á að fyrirtækið taki eingöngu við starfsfólki frá EES-svæðinu. Hann segir eftirspurnina eftir erlendu starfsfólki á næsta ári „líta nokkuð vel út“. „Það er auðvitað að hægjast á hagkerfinu. Við erum núna í sam- bandi við okkar viðskiptavini, til dæmis varðandi næsta sumar. Það þarf að fara að huga að því. Við merkjum ekki að það sé að verða neitt stopp.“ »26 Renndu við hjá okkur í Tangarhöfða 13 Allar almennar bílaviðgerðir TANGARHÖFÐA 13 577 1313 - kistufell.com BIFREIÐAVERKSTÆÐIÐ Kauphöll Íslands vísaði einu máli til Fjármálaeftir- litsins á þriðja ársfjórðungi þar sem grunur leik- ur á að markaðs- misnotkun hafi átt sér stað. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem Nas- daq gefur út ársfjórðungslega um eftirlit í kauphöllum í Evrópu. Morgunblaðið leitaði upplýsinga hjá Páli Harðarsyni, forstjóra Kauphallarinnar, sem tjáði blaðinu að honum væri ekki heimilt að gefa upp hvaða fyrirtæki ætti í hlut eða hvers eðlis meint brot væru. Hann sagði í samtali við Morgunblaðið að fátítt væri að mál af þessu tagi kæmu upp sem vísa þyrfti til eftir- litsaðila á borð við Fjármáleftir- litið. ses@mbl.is Vísa meintri mis- notkun til FME Viðskipti Málið er komið til FME.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.