Morgunblaðið - 01.11.2018, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2018
Veður víða um heim 31.10., kl. 18.00
Reykjavík 0 léttskýjað
Akureyri 4 alskýjað
Nuuk -7 heiðskírt
Þórshöfn 6 rigning
Ósló 9 skýjað
Kaupmannahöfn 8 heiðskírt
Stokkhólmur 7 súld
Helsinki 10 skýjað
Lúxemborg 8 heiðskírt
Brussel 10 rigning
Dublin 9 skýjað
Glasgow 9 skýjað
London 11 léttskýjað
París 9 rigning
Amsterdam 9 heiðskírt
Hamborg 9 léttskýjað
Berlín 10 heiðskírt
Vín 15 heiðskírt
Moskva 1 alskýjað
Algarve 14 súld
Madríd 11 léttskýjað
Barcelona 15 þrumuveður
Mallorca 14 rigning
Róm 17 heiðskírt
Aþena 20 heiðskírt
Winnipeg 1 snjóél
Montreal 1 rigning
New York 14 heiðskírt
Chicago 9 þoka
Orlando 26 heiðskírt
1. nóvember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 9:12 17:12
ÍSAFJÖRÐUR 9:29 17:04
SIGLUFJÖRÐUR 9:13 16:47
DJÚPIVOGUR 8:44 16:38
VEÐUR KL. 12 Í DAG
Á föstudag Vestan 10-18 NA-lands fram eftir degi,
annars mun hægari. Bjartviðri S-til á landinu en
snjókoma við N-ströndina. Frost 0 til 5 stig. Vaxandi
norðaustanátt á S- og V-landi síðdegis.
Norðvestlæg átt og snjókoma eða él N- og A-lands. Víða léttskýjað sunnan heiða en stöku él við
SV-ströndina. Hiti kringum frostmark.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Sala áfengis í Vínbúðunum fyrstu
tíu mánuði ársins er nánast á pari
við sama tímabil í fyrra. Sam-
kvæmt upplýsingum frá ÁTVR
hefur heildarsalan aukist um 0,3%
í ár.
Þegar sölutölur Vínbúðanna eru
skoðaðar vekur athygli að minna
hefur selst af léttvínum í ár en í
fyrra. Sala á rauðvíni minnkaði um
0,6%. Sala á hvítvíni minnkaði enn
meira, eða um 3,1%. „Ef til vill
hefur sumarveðrið haft eitthvað
um það að segja,“ segir Sigrún
Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarfor-
stjóri ÁTVR.
Sala á ókrydduðu brennivíni og
vodka hefur aukist. Sala á lag-
erbjór dróst hins vegar lítillega
saman en á móti hefur sala á öðr-
um bjórtegundum aukist nokkuð.
Sala á svokölluðum blönduðum
drykkjum jókst mikið. Nemur
aukningin heilum 25%. Blandaðir
drykkir eru drykkir sem eru í
grunninn með sterku áfengi eins
og Breezer. Síðustu misseri hafa
komið á markað nýjungar í þess-
um flokki, til að mynda dósir með
blönduðu gini og greip, og kann
það að skýra sölu aukninguna.
Sala á freyðivíni hefur tekið
kipp í ár, en sem kunnugt er þykir
hún ágætis mælikvarði á velmegun
í þjóðfélaginu. Aukning í sölu á
freyðivíni nemur 21% í ár. Í þeirri
tölu er bæði sala á kampavíni og
freyðivíni. „Ef kampavínið er
skoðað sérstaklega er aukningin
þar 29%. Í fyrra voru seldir 6.434
lítrar en í ár er salan 8.282 lítrar,“
segir Sigrún Ósk.
Sala á áfengi fyrstu 10 mánuði ársins 2017 og 2018
Sala á áfengi í þúsundum lítra Sala í lítrum eftir tegundum
Heimild: ÁTVR
Sala í janúar-október 2017 2018 Breyting
Rauðvín 1.536 1.526 -0,6%
Hvítvín 953 923 -3,1%
Brennivín og vodka 191 198 3,7%
Lagerbjór og pilsner 13.153 13.117 -0,3%
Freyðivín/kampavín 114 137 20,6%
Ávaxtavín 306 254 -17,0%
Blandaðir drykkir 307 385 25,4%
Aðrar bjórtegundir 404 425 5,3%
Samtals 17.825 17.872 0,3%
Bjór Rauðvín Hvítvín
Brennivín og vodka Annað
Blandaðir drykkir
2017 2018
307
385
+25,4%
Freyðivín/kampavín
2017 2018
114
137
+20,6%
Alls
17.872
þús. lítrar
Sala blandaðra drykkja
hefur aukist um 25% í ár
Arion banki hefur lokað útibúi sínu
við Garðatorg í Garðabæ og opnað í
staðinn sjálfsafgreiðslu á 30 fer-
metra svæði inni í verslun Hagkaupa
við Litlatún, steinsnar frá. Þar eru
tveir starfsmenn sem leiðbeina við-
skiptavinum. Útibúið við Garðatorg
var í 412 fermetra húsnæði og þar
voru fimm starfsmenn. Opið var frá
9 til 16 á gamla staðnum, en í Litla-
túni er opið allan sólarhringinn og
starfsmenn við á staðnum á tíma-
bilinu frá 12.30 til 19.00 virka daga.
„Þetta er hluti af af þróun og ein-
földun á útibúaneti bankans þar sem
við erum að bregðast við breyttri
eftirspurn viðskiptavina eftir þjón-
ustu,“ segir Haraldur Guðni Eiðsson
hjá Arion banka.
Hann segir að rúmlega 96% af af-
greiðslum viðskiptavina fari nú fram
í gegnum stafrænar leiðir eins og
app og netbanka og samhliða því fari
heimsóknum viðskiptavina í útibú
fækkandi. Þetta sé þróun sem sé
drifin áfram af kröfum viðskiptavina
enda flestir með snjalltæki við hend-
ina öllum stundum.
„Við finnum hins vegar líka að við-
skiptavinir vilja fá persónulega þjón-
ustu varðandi fjármálin sín öðru
hverju – ekki síst þegar um stærri og
flóknari ákvarðanir er að ræða. Þess
vegna skipta útibúin áfram miklu
máli – en þau þurfa ekki að vera jafn-
mörg og með jafnmikinn fjölda
starfsfólks og áður,“ segir hann.
Haraldur segir að útibú Arion
banka í Kringlunni hafi verið fyrsta
útibúið á þessari vegferð þar sem
fjarlægðar voru gjaldkerastúkur og
skrifborð og viðskiptavinir fái ráð-
gjöf og aðstoð úti á gólfi eða í gegn-
um fjarfundarbúnað þar sem sér-
fræðingar í þjónustuveri afgreiða
flóknari mál. Þessi nýbreytni hafi
mælst vel fyrir. Arion banki í Kringl-
unni sé það útibú sem hafi hækkað
mest á undanförnu ári í ánægjumæl-
ingum.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Banki Sjálfsafgreiðsla Arion banka í Garðabæ er í verslun Hagkaupa.
Arion banki
inni í verslun
Fækkar starfsfólki og minnkar pláss
Framkvæmdir við Landspítalann eru nú í fullum gangi
og er ýmislegt umstang í kringum þær eins og gefur að
skilja. Hefur til dæmis þurft að loka malarstæðum neð-
an gömlu Hringbrautar, en á móti hafa ný malbikuð
stæði verið opnuð við BSÍ sem eingöngu eru ætluð
starfsmönnum spítalans. Þá er einnig verið að leggja
ný bílastæði fyrir sjúklinga vestan Eirbergs, auk þess
sem jarðvegsvinna við Barnaspítalann er hafin.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Framkvæmdir í fullum gangi
„Við teljum okkur vera að auðvelda viðskiptavinum aðgengi að okkar
þjónustu með því að vera betur í leiðinni fyrir þá – vera þar sem þeir
kaupa nauðsynjar og geta þá nýtt sér bankaþjónustu í leiðinni,“ segir
Haraldur Guðni Eðsson. Hann segir að útibúið í Litlatúni nái að sinna
a.m.k. um 90% af öllum þeim erindum sem viðskiptavinir bankans leita
til hans með í hefðbundnum útibúum. Fyrir þá sem þurfi flóknari þjón-
ustu sé stutt í útibúið í Smáranum, en það sé stórt útibú þar sem öll
þjónusta og ráðgjöf bankans sé í boði.
Arion banki hyggst fljótlega opna útibú á Hótel Sögu við Hagatorg sem
verður sambærilegt afgreiðslunni í Garðabæ. Útibúið verður við nýja
póstafgreiðslu sem verður þar til húsa.
Í banka og verslun samtímis
ÞÆGILEGRA FYRIR VIÐSKIPTAVINI SEGIR ARION BANKI