Morgunblaðið - 01.11.2018, Síða 10

Morgunblaðið - 01.11.2018, Síða 10
30% afsláttur af stökum jökkum, buxum og vetrarjökkum Fimmtudag, föstudag og langan laugardag Laugavegi 47, sími 552 9122 Laugavegi 47, sími 551 7575 10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2018 Áhugafólk um framtíð þjóðkirkj- unnar stendur fyrir opnum mál- fundi í Háteigskirkju fimmtudaginn 1. nóvember kl. 15-17 undir heitinu „Þjóðkirkjan: Framtíðarsýn ósk- ast!“ Í tilkynningu segir að ljóst sé að kirkjuleg starfsemi á Íslandi eigi eftir að breytast mikið á þessari öld sem enn er ung. Erfið mál sem upp hafa komið í starfi kirkjunnar hér á landi hafi sennilega flýtt fyrir þessari þróun. Hún sé í takt við það sem hafi verið að gerast í Evrópu. Hefð- bundnar þjóðkirkjur hafi nánast alls staðar tapað fyrri stöðu en þeim fjölgað sem kjósa að standa utan trúfélaga. „Við sem stöndum að þessum umræðufundi teljum mikilvægt að grundvallarumræða um stöðu þjóð- kirkjunnar hefjist með skipulegum hætti. Þar má nefna hvernig kirkj- an hyggst starfa í þessu gjör- breytta menningarlandslagi, um samskipti ríkis og kirkju og um fjármál kirkjunnar.“ Brýnt sé að leysa mál er varða samskipti ríkis og kirkju hér á landi. Framsögu á fundinum hafa Anna Guðrún Sigurvinsdóttir, formaður sóknarnefndar Grafarvogskirkju, og sr. Halldór Reynisson. Ræða framtíð þjóðkirkjunnar Guðni Einarsson gudni@mbl.is Ný gjaldskrá fyrir Vestmannaeyja- ferjuna Herjólf og siglingaáætlun sem taka eiga gildi 30. mars 2019 bíða samþykkis Vegagerðarinnar. „Þetta er enn óskoðað af okkar hálfu,“ sagði G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar. Stjórn Herjólfs ohf. leggur m.a. til hækkun á almennu fargjaldi full- orðinna í 1.600 krónur. G. Pétur sagði að stjórn Herjólfs ohf. þyrfti væntanlega að færa rök fyrir þörf- inni á fargjaldshækkuninni. Fulltrú- ar Vegagerðarinnar og Herjólfs ohf. ætla að funda í dag. Farþegar geta keypt afsláttar- og inneignarkort sem veitir 40% af- slátt af fargjaldi og gjaldi fyrir bíla. Vilja hafa borð fyrir báru Samningur milli Vestmannaeyja- bæjar og Vegagerðarinnar um rekstur nýja Herjólfs var ræddur í bæjarstjórn Vestmannaeyja í apríl í vor og var hann einnig kynntur á íbúafundi. Þá var rætt um að gjald- skráin yrði nánast óbreytt. Rætt var um að hækka fargjaldið úr 1.380 krónum í 1.400 krónur en nú er lagt til að fargjaldið verði 14% hærra. „Þótt ákveðið hafi verið á sínum tíma að hafa fargjaldið í kringum 1.400 krónur er almennt óvissa um þróun í rekstrar- umhverfinu. Ferjan er ekki komin og reksturinn ekki að fullu form- aður. Menn reyna að hafa borð fyr- ir báru. Þess vegna var gerð tillaga um að teygja sig upp í 1.600 krónur. Þetta er háð samþykki Vegagerðarinnar,“ sagði Guð- bjartur Ellert Jónsson, fram- kvæmdastjóri Herjólfs ohf. Hann sagði að ef breyta þyrfti gjaldskrá Herjólfs væri betra að geta lækkað verðið en að þurfa að knýja á um hækkun. Guðbjartur sagði orðið brýnt að Vegagerðin staðfesti siglingaáætlun og gjaldskrá nýs Herjólfs sem allra fyrst. „Ferðaskipuleggjendur og aðrir þurfa að hafa siglingaáætl- unina og gjaldskrána á hreinu þeg- ar þeir eru að selja ferðir. Öll ferða- þjónustufyrirtæki eru að skipu- leggja sína markaðssetningu. Ég ætla að vona að menn ákveði fljótt hvað á að sigla mikið og hvernig á að verðleggja ferðirnar,“ sagði Guð- bjartur. Hann sagði að ekki yrði opnað fyrir bókanir með nýjum Herjólfi fyrr en samþykkt siglinga- áætlun og gjaldskrá lægi fyrir. Nýr Herjólfur Unnið er að smíði ferjunnar í Póllandi. Stefnt er að því að hún byrji siglingar 30. mars 2019. Beðið eftir gjaldskrá og siglingaáætlun  Leggja til 14% hækkun á fargjaldi með nýjum Herjólfi Ljósmynd/Svanur Gunnsteinsson Stjórn Herjólfs ohf., sem mun annast rekstur nýju ferjunnar, fjallaði um tillögu um siglinga- áætlun næsta árs og gjaldskrá á fundi 26. október. Sam- kvæmt fundargerð er gert ráð fyrir því að almennt fargjald fyrir fullorðna farþega verði 1.600 krónur og helmingi minna fyrir börn 12-15 ára, elli- lífeyrisþega, öryrkja og náms- menn. Börn yngri en 12 ára borga ekkert fargjald. Þá munu íbúar með lögheimili í Vest- mannaeyjum fá 50% afslátt frá gjaldskrá. Ekki er gert ráð fyrir breytingu á gjaldi fyrir flutning á bílum frá því sem nú er. Nú kostar almennt fargjald 1.380 kr. og helmingi minna fyrir börn 12-15 ára, ellilífeyris- þega, öryrkja og námsmenn. Almennt far 1.600 krónur GJALDSKRÁ HERJÓLFS Bæjarstjórn Akraness hefur sam- þykkt að útnefna Braga Þórðarson, rithöfund og bókaútgefanda, heiðursborgara Akraness. Bragi er fæddur á Akranesi árið 1933. Þar hefur hann búið og starf- að alla tíð, m.a. við prentsmiðju- rekstur, bókaútgáfu, bóksölu og rit- störf. Hann rak um langa hríð Hörpuútgáfuna ásamt konu sinni Elínu Þorvaldsdóttur. Um áratugaskeið hefur Bragi safnað og gefið út sögur af fólki og annan fróðleik um Akranes og byggðir og fólk á Vesturlandi, alls 22 bækur auk fjölda annarra verka. Hann samdi meðal annars átta bæk- ur undir heitinu Borgfirzk blanda. Einnig hefur hann samið og flutt út- varpsþætti um mannlíf og eftir- minnilega atburði á Vesturlandi. „Í verkum hans liggja ómetanleg verðmæti sem hann hefur bjargað frá því að falla í gleymsku og þannig lagt sinn skerf til sam- félagsins á Akra- nesi. Bragi hefur ætíð haft hags- muni samfélags- ins að leiðarljósi með velvilja og já- kvæðni,“ segir í frétt á heimasíðu Akranesbæjar. Bragi hefur einnig starfað mikið að félagsmálum, með- al annars í skátahreyfingunni á Akranesi. Bragi hlýtur nafnbótina við at- höfn sem fer fram á Bókasafni Akraness í kvöld, fimmtudag, kl. 20 og eru allir velkomnir. sisi@mbl.is Nýr heiðursborgari útnefndur á Akranesi Bragi Þórðarson
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.